Slitastjórn Glitnis óskar eftir undanþágu frá gjaldeyrishöftum

Slita­stjórn Glitnis hefur sent Seðla­banka Íslands form­lega beiðni um und­an­þágu frá gjald­eyr­is­höftum, til þess að geta fram­fylgt því sam­komu­lagi sem gert var milli hluta kröfu­hafa og sér­staks fram­kvæmda­hóps stjórn­valda um losun fjár­magns­hafta. Sam­komu­lagið, það eru til­lögur frá hluta kröfu­hafa Glitnis um hvernig ljúka megi upp­gjöri án þess að það raski stöð­ug­leika í efna­hags- og gjald­eyr­is­málum, var birt á vef­síðu fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins í júní síð­ast­liðnum. Tillögur kröfu­hafa Lands­bank­ans og Kaup­þings lágu þá einnig fyrir en sam­komu­lags­drögin voru birt í kjöl­far kynn­ing­ar­fundar stjórn­valda um áætlun um losun fjár­magns­hafta.

Glitnir sótti um und­an­þág­una í gær. Steinunn Guð­bjarts­dóttir, for­maður slita­stjórn­ar­innar, segir að nú muni Seðla­bank­inn taka afstöðu til und­an­þágu­beiðn­innar. Ef und­an­þága fæst mun slita­stjórnin leggja fram frum­varp að nauða­samn­ingi á grund­velli þess sam­komu­lags sem und­ir­ritað var í júní milli hluta kröfu­hafa og fram­kvæmda­hóps stjórn­valda. Kröfu­hafar Glitnis muni þá í kjöl­farið kjósa um sam­þykkt nauð­samn­inga.


Und­an­þágu­beiðni Glitnis var lögð fram á sama tíma og greint var frá ramma­sam­komu­lagi milli Glitnis og Íslands­banka. Bankinn er stærsta eign Glitnis en ramma­sam­komu­lagið er liður í að gera bank­ann sölu­hæfan og kveður á um að fram­fylgja áður­nefndum til­lögum kröfu­hafa við fram­kvæmda­hóp­inn. Sam­komu­lag milli Glitnis og Íslands­banka felur meðal ann­ars í sér lækkun á eigin fé bank­ans og útgáfu skulda­bréfa til Glitnis. Þá er kveðið á um að sala á Íslands­banka til íslenskra fjár­festa verði tak­mörkuð.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár