Stöðugleikaframlög slitabúa gætu numið á bilinu 300 til 400 milljörðum króna

Samn­ingar milli stjórn­valda og kröfu­hafa gætu skilað rík­inu á bil­inu 300 og 400 millj­örðum króna, miðað við þau skil­yrði sem liggja til grund­vallar samn­ing­unum í dag og hafa verið birt á heima­síðu fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins. Um er að ræða þá ramma­samn­inga, eða svoköllið „erindi“, milli hluta kröfu­hafa Kaup­þings, Glitnis og LBI ann­ars vegar og fram­kvæmda­hóp um losun fjár­magns­hafta hins vegar. Samn­ings­drögin voru und­ir­rituð dag­ana 7. og 8. júní, skömmu áður en áætlun um losun fjár­magns­hafta var kynnt í Hörpu. Það er mat fram­kvæmda­hóps­ins að sam­þykkja eigi samn­ing­ana.

Samn­ings­drög fyrir hvert þrotabú eru marg­þætt. Þau sam­an­standa af svoköll­uðu stöð­ug­leika­fram­lagi þrota­bús til stjórn­valda og frek­ari stöð­ug­leika­skil­yrðum, meðal ann­ars um fjár­mögnun nýju bank­anna og rík­is­ins, auk skil­yrða sem er ætlað að koma í veg fyrir útflæði erlends fjár­magns og gætu ógnað efna­hags­stöð­ug­leika.


Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra sagði þegar los­un­ar­á­ætlun fjár­magns­hafta var kynnt síð­asta mánu­dag að fjár­hæð til rík­is­ins vegna hennar gæti numið um 500 millj­örðum króna. Taka skal fram að í þess­ari umfjöllun er ein­göngu litið til mögu­legra stöð­ug­leika­fram­laga í tengslum við upp­gjör slita­búa gömlu bank­anna, en ekki ávinn­ing rík­is­ins af fyr­ir­hug­uðum gjald­eyr­is­út­boðum fyr­irr aflandskrónu­eig­endur.


Hér fyrir neðan má sjá hvað stöð­ug­leika­fram­lög þrota­bú­anna gætu skilað rík­inu, miðað við stöð­ug­leika­skil­yrðin eins og þau birt­ast á vef fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Stöðugleikaframlög Glitnis

Stöð­ug­leika­skil­yrði Glitnis fela í sér 58 millj­arða greiðslu reiðu­fjár til stjórn­valda. Hluti af millj­örð­unum 58 eru 37 millj­arða arð­greiðsla frá Íslands­banka, sem myndu renna úr bank­anum til Glitnis og þaðan til stjórn­valda. Stefnt er að því að lækka eigið fé Íslands­banka fyrir sölu hans í um 119 millj­arða, en það er í dag rúm­lega 180 millj­arðar. Eftir arð­greiðslu á eig­in­fjár­hlut­fall bank­ans að vera 23 pró­esnt, að fengnu leyfi FME og Seðla­bank­ans.


Auk þess fram­selur Glitnir kröfur og önnur rétt­indi að and­virði um 59 millj­arðar á bók­færðu virði til rík­is­ins. Nafn­virði þess­ara krafna og rétt­inda er um 200 millj­arðar króna. Til við­bótar bæt­ast við kröfur á inn­lenda aðila að virði um 14 millj­arðar króna.


Tvennt er í stöðu Glitnis er varðar sölu 95% eign­ar­hlutar í Íslands­banka og skipt­ingu sölu­verðs­ins milli kröfu­hafa og stjórn­valda. Ef bank­inn verður seldur erlendum aðilum fyrir gjald­eyri þá mun ríkið fá 60% sölu­and­virðis, en þó eigi meira en 60% af bók­færði virði eigin fjár sem yrði um 119 millj­arðar við söl­una. Það myndi þýða að ríkið fengi um 71 millj­arð í gjald­eyri ef bank­inn er seldur erlendum aðilum.


Samkvæmt erindi kröfu­haf­anna lítur málið öðru­vísi út ef bank­inn er seldur inn­lendum aðilum. Þá yrði gefið út 119 millj­arða veð­tryggt skulda­bréf á 5,5 pró­sent vöxtum til stjórn­valda, greitt við sölu 95% hlutar Glitnis í Íslands­banka. End­ur­heimtur bréfs­ins yrðu jafn­miklar og sölu­and­virði bank­ans, upp að 119 millj­örðum króna. Sölu­and­virði hærra en 119 millj­arðar og upp að 136 millj­örðum myndi skipt­ast til helm­inga milli kröfu­hafa og rík­is­ins. Sölu­and­virði hærra en 136 millj­arðar króna myndi renna að 75% hluta til rík­is­ins.


Sam­an­dregið þá færa þessi stöð­ug­leika­fram­lög kröfu­hafa Glitnis rík­inu á bil­inu um 200 til 250 millj­arða króna. Lægri talan gerir ráð fyrir sölu Íslands­banka fyrir erlendan gjald­eyri að jafn­virði 119 millj­arðar króna (jafnt bók­færðu virði eigin fjár). Hærri talan gerir ráð fyrir sölu bank­ans fyrir krónur á 119 millj­arða króna.


Vert er að taka fram að greiðsla sölu­and­virðis í erlendum gjald­eyri myndi ein­falda stjórn­völdum að greiða niður opin­berar skuldir, eins og áform standa til.

Stöðugleikaframlög Kaupþings

Erindi kröfu­hafa Kaup­þings gagn­vart fram­kvæmda­hópnum um losun hafta kveður á um útgáfu skulda­bréfs að and­virði 84 millj­arðar króna. Skulda­bréfið, útgefið til íslenskra stjórn­valda, er til þriggja ára, ber 5,5 pró­sent vexti og er veð­tryggt. Heimilt er að draga frá allt að fimm millj­arða af skulda­bréf­inu á líf­tíma þess vegna kostn­aðar sem stofnað er til á Íslandi við rekstur Kaup­þings og vegna lág­marks­greiðslna til inn­lendra kröfu­hafa. Undir ákvæðið falla ekki hvata­greiðslur. Gert er ráð fyrir að fimm millj­arðar verði dregnir frá stöð­ug­leika­fram­lögum hjá öllum slita­bú­unum, til að standa undir kostn­aði við þau á Íslandi.


Þá fram­selur Kaupþing kröfur á hendur inn­lendum aðilum og eign­ar­hluti í inn­lendum félögum og öðrum eignum. Nafnverð þess­ara krafna og eign­ar­hluta er 114,8 millj­arðar króna en bók­fært virði er um 14,4 millj­arðar. Hluti upp­hæð­ar­innar verður end­ur­greiddur í erlendri mynt.


Stefnt er að sölu Arion banka fyrir árs­lok 2016, að því gefnu að mark­aðs­að­stæður séu ákjós­an­legar. Hlutur rík­is­ins af sölu­and­virð­inu er mis­mun­andi eftir hvað fæst fyrir bank­ann. Ríkið fær þriðj­ung af sölu­and­virði umfram 100 millj­arðar og upp að 140 millj­örðum, helm­ing af sölu­and­virði á bil­inu 140 til 160 millj­arðar og 75 pró­sent af fjár­hæð umfram 160 millj­arðar. Miðað við að sölu­and­virði sé 120 millj­arðar, 150 millj­arðar eða 170 millj­arðar þá getur hlutur stjórn­valda verið á bil­inu 6,6 til 30,7 millj­arðar.


Miðað við að sölu­and­virði Arion banka gæti verið jafnt 80% af bók­færðu virði eigin fjár hans í dag, þá myndu samn­ingar sem þessir skila rík­inu ríf­lega 100 millj­örðum króna í stöð­ug­leika­fram­lagi frá Kaup­þingi.

Stöðugleikaframlög Gamla Landsbankans (LBI)

Samkvæmt erindi kröfu­hafa LBI verður lausafé bús­ins í krónum afhent stjórn­völdum, að frá­dregnum krónum sem standa til trygg­ingar ágrein­ings­kröfum og eru í dag tæp­lega 50 millj­arðar króna, auk inn­lends rekstr­ar­kostn­aðar að und­an­skildum hvað­tagreiðslum. Fjár­hæðin sem send verður íslenska rík­inu úr þrota­búi LBI yrði með þessu um 20 millj­arðar króna. Auk þess yrði inn­lendar kröfur að upp­hæð um 10 millj­arðar króna fram­seld til stjórn­valda. Samtals væru það því um 30 millj­arðar sem rynnu til rík­is­ins frá LBI.


Hluti frétta­skýr­ing­ar­innar sem snýr að Glitni hefur verið upp­færður frá fyrstu útgáfu. Í fyrstu útgáfu vant­aði inn­lendar kröfur metnar á um 14 millj­arða króna sem Glitnir myndi sam­kvæmt erindi kröfu­hafa fram­selja til rík­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár