Íslandsbanki gerður söluhæfur til erlendra aðila: Eigið fé lækkað og arður greiddur til ríkisins

Íslands­banki og Glitnir gerðu í dag ramma­sam­komu­lag um sam­starf svo að slita­með­ferð Glitnis nái fram að ganga. Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar eru listaðar þær aðgerðir sem ráð­ist verður í. Þær eru hinar sömu og áður hefur verið greint frá, það eru til­lög­urnar sem kröfu­hafar Glitnis lögðu fyrir stýrni­efnd stjórn­valda um losun fjár­magns­hafta í júní síð­ast­liðnum. Í þeim til­lögum var sér­stak­lega talað um aðgerðir sem ráð­ist yrði í fyrir sölu Íslands­banka til ann­arra aðila, en hann er í dag að stærstum hluta í eigu slita­bús Glitnis.

Ramma­sam­komu­lagið kveður meðal ann­ars á um að sala á Íslands­banka til íslenskra fjár­festa verður tak­mörkuð. Hvorki Íslands­banki né slita­stjórn Glitnis vildu tjá sig frekar um þetta atriði þegar eftir því var leitað.

Meðal þess sem gert verður er lækkun á eigin fé Íslands­banka úr 28,4 pró­sentum í 23 pró­sent. Þessi aðgerð felur meðal ann­ars í sér útgáfu um 16 millj­arða króna víkj­andi skulda­bréfs eða við­bótar eigin fjár í erlendri mynt til tíu ára, útgefið til Glitnis. Þá mun Íslands­banka gefa út um 36 millj­arða króna skulda­bréf til Glitnis á mark­aðs­kjörum til 10 ára. Auk þess greiðir Íslands­banki út tæp­lega þriggja millj­arða króna arð til Banka­sýslu rík­is­ins, sem heldur um hlut rík­is­ins í bank­anum.

Samkvæmt til­lög­unum mun Íslands­banki gefa út nýtt víkj­andi lán til Glitnis í stað núver­andi láns. Það verður í evrum á mark­aðs­kjörum til að minnsta kosti tíu ára. Glitnir mun auk þess fá afhent skulda­bréf í íslenskum krónum frá Íslands­banka að and­virði sam­tölu inn­lána Glitnis í íslenskum krónum hjá bank­anum. Það skulda­réf verður einnig á mark­aðs­kjörum til tíu ára.

Íslands­banki gefur út skulda­bréf til Glitnis undir svoköll­uðum „MTN útgáfuramma“ að and­virði 37 millj­arðar króna sem koma í stað erlendra inn­lána Glitnis hjá íslenskum bönkum. Auk þess verða gefin út undir sama ramma um 3 millj­arða króna skulda­bréf til Glitnis. Glitnir mun greiða fyrir þau með hagn­aði af sölu eft­ir­stand­andi eigna á Íslandi í erlendum gjald­miðli. Skulda­bréfin verða gefin út í áföngum, þau verða á mark­aðs­kjörum og til að minnsta kosti sjö ára.

"Eig­in­fjár­hlut­fall Íslands­banka er hátt, lausa­fjár­staða Íslands­banka er góð og verður bank­inn vel í stakk búinn til að veita fram­úr­skar­andi þjón­ustu til fram­tíðar eftir að aðgerðir tengdar þessu sam­komu­lagi koma til fram­kvæmda. Allir aðilar sam­komu­lags­ins koma til með að vinna sam­eig­in­lega að því að samn­ing­ur­inn gangi eftir á árang­urs­ríkan hátt," segir Birna Ein­ars­dóttir í til­kynn­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár