Ryanair lokar í Kaupmannahöfn eftir helgi - hótar að loka líka í Billund í næstu viku

Írska lággjalda flug­fé­lagið Ryanair hyggst flytja starf­stöð sína í Kaup­manna­höfn til Kaunas í Litháen þann 14. júlí næst­kom­andi. Í frétta­til­kynn­ingu sem flug­fé­lagið sendi frá sér í dag segir að áfram verði þó flogið frá Kastrup flug­velli í Kaup­manna­höfn til þrettán áfanga­staða félags­ins víðs vegar um Evrópu.

Eins og Kjarninn hefur greint frá tap­aði Ryanair nýverið dóms­máli fyrir dönskum vinnu­rétt­ar­dóm­stóli, sem snérist um hvort dönskum flug­vall­ar­starfs­mönnum væri heim­ilt að efna til vinnu­stöðv­unar í því skyni að neyða flug­fé­lagið til að fara að dönskum lögum um kaup og kjör. Stjórn­endur Ryanair voru mjög ósáttir við nið­ur­stöð­una og hyggj­ast fara með málið fyrir dóm­stól Evr­ópu­sam­bands­ins.

Boðuð alls­herjar vinnu­stöðvun dönsku stétt­ar­fé­lag­anna, til stuðn­ings starfs­mönnum Ryanair í Danmörku, átti að að fara fram þann 18. júlí næst­kom­andi og því brugðu for­svars­menn flug­fé­lags­ins á það ráð að loka starfs­stöð­inni í Kaup­manna­höfn.

Hætta í Billund verði ekki fallið frá aðgerðum


Ein vél í eigu félags­ins er með Billund sem heima­höfn, og byrjar og endar sínar ferðir þar. Danska alþýðu­sam­bandið benti á sínum tíma á að með slíku fyr­ir­komu­lagi ætti að greiða sam­kvæmt dönskum kjara­samn­ingum en í Billund vógu hags­mun­irnir af starf­semi Ryanir hærra og þar við sat. Starfs­fólk Ryanair í Danmörku var ekki ráðið sam­kvæmt dönskum kjara­samn­ingum, það er sama fyr­ir­komu­lagið og flug­fé­lagið hefur haft víða um lönd.

Rök Ryanair hafa ætíð verið þau sömu, félagið sé írskt, skráð á Írlandi og beri þarafleið­andi engin skylda til að hlíta lögum og reglum um kaup og kjör í þeim löndum sem félagið flýgur til og hefur aðra starf­semi. Þetta hefur Ryanair tek­ist, þangað til núna.

Þá greindi við­skipta­blað Berl­ingske Tidende frá því í kvöld að önnur frétta­til­kynn­ing hafi borist fjöl­miðlum frá írska lággjalda flug­fé­lag­inu í kvöld þar sem það hóti að starfs­stöð­inni í Billund verði sömu­leiðis lokað frá og með mið­nætti á föstu­dag­inn í næstu viku, falli dönsku verka­lýðs­fé­lögin ekki frá boð­uðum aðgerðum gegn félag­inu þann 18. júlí næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár