Írska flugfélagið Ryanair í sterkum dönskum sviptivindum

Írska lággjalda­flug­fé­lagið Ryanair tap­aði fyrir nokkrum dögum dóms­máli fyrir dönskum vinnu­rétt­ar­dóm­stóli. Dóms­málið sner­ist um það hvort dönskum flug­valla­starfs­mönnum væri heim­ilt að efna til vinnu­stöðv­unar í því skyni að neyða Ryanair til að fylgja dönskum lögum um kaup og kjör. Þetta er í fyrsta sinn sem Ryanair tapar slíku máli, stjórn­endur þess voru mjög ósáttir við nið­ur­stöð­una og hyggj­ast fara með málið fyrir dóm­stól Evr­ópu­sam­bands­ins.

Ryanair hóf fyrir nokkrum mán­uðum áætl­un­ar­flug milli Kaup­manna­hafnar og nokk­urra borga innan Evrópu. Félagið var þó ekki alls ókunn­ugt dönskum aðstæðum því fyrir fimm árum byrj­aði það áætl­un­ar­flug milli Billund og vin­sælla ferða­manna­staða á Ítalíu og Spáni og einnig til Ung­verja­lands. Í Billund var Ryanair tekið opnum örmum, sem þýddi aukin umsvif og fleiri störf á flug­vell­inum. Ryanair setti þar upp svo­kall­aða starfs­stöð, en í því felst að félagið sjálft er með til­tekna starf­semi á vell­inum, en kaupir ekki alla þjón­ustu af öðrum.

Ein vél í eigu félags­ins er með Billund sem heima­höfn, byrjar og endar sínar ferðir þar. Danska alþýðu­sam­bandið benti á sínum tíma á að með slíku fyr­ir­komu­lagi ætti að greiða sam­kvæmt dönskum kjara­samn­ingum en í Billund vógu hags­mun­irnir af starf­semi Ryanir hærra og þar við sat. Starfs­fólk Ryanair í Danmörku var ekki ráðið sam­kvæmt dönskum kjara­samn­ingum, það er sama fyr­ir­komu­lagið og flug­fé­lagið hefur haft víða um lönd. Rök Ryanair hafa ætíð verið þau sömu, félagið sé írskt, skráð á Írlandi og beri þarafleið­andi engin skylda til að hlíta lögum og reglum um kaup og kjör í þeim löndum sem félagið flýgur til og hefur aðra starf­semi. Þetta hefur Ryanair tek­ist, þangað til núna.

Starfsstöðin Kaupmannahöfn


Síð­ast­liðið haust greindu stjórn­endur Ryanair frá því að félagið myndi í mars á þessu ári hefja áætl­un­ar­flug milli Kaup­manna­hafnar og þriggja borga í Evrópu (London, Mílanó og Varsjár) og fljót­lega myndu margir fleiri staðir bæt­ast við. Þessi tíð­indi mælt­ust almennt vel fyrir en þegar til­kynnt var að Ryanair hyggð­ist jafn­framt opna starfs­stöð á Kastrup var annað upp á ten­ingnum.

[caption id="attachment_20226" align="alignnone" width="643"] Einmanna far­þegi á gangi á Kastrup-flug­velli. Mynd: EPA[/caption]

Þegar að því kom að áætl­un­ar­flugið skyldi hefj­ast, og starfs­stöðin var opnuð greip starfs­fólk á flug­vell­inum til aðgerða. Brottför í fyrsta áætl­un­ar­flug­inu tafð­ist um marga klukku­tíma og ljóst að dönsku laun­þega­sam­tökin ætl­uðu ekki að láta Ryanair ráða ferð­inni. For­stjóri Ryanair var sjálfur á staðnum og kvaðst undr­andi á við­brögðum Dana, yfir­leitt tæki fólk tveim höndum þeim tæki­færum sem byð­ust til að ferð­ast ódýrt.

Í Danmörku gilda danskir kjara­samn­ingar, punktur og basta, sögðu verka­lýðs­leið­tog­arnir. For­stjóri flug­fé­lags­ins til­kynnti að þar á bæ hefðu menn ekki sagt sitt síð­asta orð, félagið myndi leita réttar síns fyrir dóm­stólum.

Borgaryfirvöld sniðganga Ryanair


Eftir að ljóst var að flug­fé­lagið ætl­aði sér í hart til­kynnti yfir­borg­ar­stjóri Kaup­manna­hafnar að starfs­fólk borg­ar­innar myndi ekki fljúga með Ryanair þegar það ferð­að­ist vegna vinn­unnar. Mörg önnur bæj­ar­fé­lög fylgdu í kjöl­farið og nú eru sam­tals 22 sveit­ar­fé­lög sem snið­ganga félagið. Mörg sveit­ar­fé­lög á Jótlandi hafa ekki fylgt sömu stefnu og í Jót­land­s­póst­inum var haft eftir jóskum sveit­ar­stjórn­ar­manni að slíkt stæði ekki til.

Í Danmörku gilda dönsk lög og danskir kjarasamningar


„Úrskurður danska vinnu­rétt­ar­dóm­stóls­ins fyrir nokkrum dögum var okkur mikil von­brigði og við erum mjög ósáttir við nið­ur­stöð­una,“ sagði Michael O’Leary for­stjóri Ryanair á frétta­manna­fundi í Kaup­manna­höfn þegar dóm­ur­inn hafði verið kveð­inn upp.

Danskir frétta­menn voru mjög aðgangs­harðir við for­stjór­ann sem neit­aði algjör­lega að upp­lýsa um kaup og kjör starfs­fólks. Nefndi tölur en var ekki til­bú­inn til að leggja fram gögn máli sínu til stuðn­ings. Benti frétta­mönnum á að tala við starfs­fólkið en var þá minntur á að því er bannað, að við­lögðum brott­rekstri, að tala við fjöl­miðla.

[caption id="attachment_33212" align="align­right" width="848"] Hinn lit­ríki og umdeildi for­stjóri Ryanair, Michael O’Leary, á blaða­manna­fundi með dönskum frétta­mönnum. Mynd: EPA[/caption]

Loka starfsstöðinni í Kaupmannahöfn og kannski líka í Billund


Á áður­nefndum frétta­manna­fundi til­kynnti Michael O’Leary for­stjóri að Ryanair myndi loka starfs­stöð sinni í Kaup­manna­höfn og gaf í skyn að kannski yrði það líka gert í Billund. Hann sagði jafn­framt að áætl­un­ar­flug félags­ins til Dan­merkur yrði eins og búið væri að til­kynna og í lok árs­ins flýgur Ryanair til að minnsta kosti þrettán áfanga­staða frá Kaup­manna­höfn og fjög­urra frá Billund.

Fordæmið


Þótt Michael O’Leary for­stjóri nefndi það ekki eru áhyggjur hans og félags­ins ekki bundnar við þennan nýja dóm vinnu­rétt­ar­dóm­stóls­ins í Kaup­manna­höfn, það hangir nefni­lega margt fleira á spýt­unni. Félagið er með um fimm­tíu starfs­stöðvar í Evrópu og þar gæti dómur danska vinnu­rétt­ar­dóm­stóls­ins því haft for­dæm­is­gildi.

Þetta veit for­stjór­inn mæta­vel. Það verður því fróð­legt að fylgjst með fram­hald­inu og hvernig dóm­stóll Evr­ópu­sam­bands­ins tekur á mál­inu komi það til kasta hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár