Viðskipti stöðvuð í kauphöllinni í New York

Öll verð­bréfa­við­skipi í kaup­höll­inni í New York, NYSE, vor stöðvuð í dag klukkan 11:32 að stað­ar­tíma. Í fyrstu voru ekki gefnar neinar skýr­ingar á því hvers vegna við­skipti voru stöðvuð en sam­kvæmt nýj­ustu upp­lýs­ingum frá kaup­höll­inni er um tækni­leg vanda­mál að ræða.

Kaup­höllin í New York er stærsti mark­aður með hluta­bréf í Banda­ríkj­unum. Enn er þó hægt að eiga við­skipti með hluta­bréf skráð á NYSE mark­að­inum ann­ars staðar, meðal ann­ars á verð­bréfa­mark­aði Nasdaq.

Dagurinn í dag hefur verið fjár­festum erf­iður á hluta­bréfa­mörk­uðum um allan heim. Í Evrópu ríkir mikil óvissa um fram­tíð Grikk­lands innan evru­sam­starfs­ins og hefur ástandið, eins og áður, haft verð­mynd­andi upp­lýs­ingar á evr­ópskum hluta­bréfa­mark­aði. Í Kína hefur hluta­bréfa­verð hrunið und­an­farnar vikur og lækk­uðu helstu vísi­tölur þar í dag um allt að sjö pró­sent. Við bæt­ist síðan stöðvun við­skipta í Banda­ríkj­unum en frek­ari frétta er beðið um ástæður þess að við­skipti voru stöðvuð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár