Hlutabréfakrísa í Kína: Eftir 150 prósent hækkun þá hríðfellur hlutabréfaverð

Örfáum mín­útum eftir opnun hluta­bréfa­mark­aða í Kína í dag tók verð að hríð­falla og lækk­uðu helstu hluta­bréfa­vísi­tölur mark­að­ar­ins um allt að átta pró­sent. Á innan við tíu mín­útum höfðu hluta­bréf í fleiri en þús­und fyr­ir­tækjum lækkað um meira en tíu pró­sent og voru við­skipti með bréfin stöðvuð, sam­kvæmt reglum kín­versku kaup­hall­ar­innar um sjálf­virka stöðvun við­skipta við verð­fall. Um 1.400 fyr­ir­tæki, sem telja ríf­lega helm­ing allra fyr­ir­tækja á kín­verska mark­að­inum, ósk­uðu eftir frestun frek­ari við­skipta til þess að koma í veg fyrir verð­hrun á mark­aðsvirði sínu. Við lokun mark­aða höfðu vísi­tölur lækkað um fimm til sjö pró­sent.

Mikið hefur verið um að vera á kín­verskum hluta­bréfa­mark­aði und­an­farnar vikur og verð verið í frjálsu falli, mest á allra síð­ustu dögum. Kínversk stjórn­völd hafa á síð­ustu vikum reynt hvað þau geta til þess að ýta undir hluta­bréfa­verð, meðal ann­ars með lækkun stýri­vaxta, reglu­breyt­ingum sem eiga að draga úr hvata til þess að selja hluta­bréf og nú síð­ast beinum kaupum á hluta­bréfum. Aðgerð­irnar hafa dugað skammt og sölu­þrýst­ingur á mark­að­inum hefur verið gríð­ar­legur. Kín­verskir eft­ir­lits­að­ilar segja skelf­ing­ar­á­stand fjár­festa órök­rétt og róa nú öllum árum að stöð­ug­leika á hluta­bréfa­mark­að­inum.


Í síð­asta mán­uði stóð verð hluta­bréfa á mark­að­inum í Sjanghaí í hæstu hæðum og hafði ekki verið hærra í sjö ár. Hluta­bréf höfðu hækkað um rúm­lega 150 pró­sent á síð­ustu tólf mán­uðum en hafa nú fallið um 30 pró­sent á síð­ustu þremur vikum. Þar af nemur lækk­unin 12 pró­sentum á síð­ustu viku. Verð­lækkun upp á þrjá­tíu pró­sent jafn­gildir öllu fram­leiðslu­virði Bret­lands á síð­asta ári.


Í ljósi stærðar kín­verska hluta­bréfa­mark­að­ar­ins og mögu­legra áhrifa á aðra mark­aði, ekki síst í Asíu, þá hafa erlendir fjöl­miðlar haldið því fram að kín­verska hluta­bréfa­krísan sé jafn­vel alvar­legri en gríska efna­hag­skrísan. Í umfjöllun The Tel­egraph segir að sumir vilji þegar kalla ástandið „Hið kín­verska 1929“ og vísa þar til sögu­legs verð­falls á hluta­bréfa­mörk­uðum það árs og upp­haf Krepp­unnar miklu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár