Nýtt tilboð frá Grikklandi á morgun - Bankarnir áfram lokaðir

Fjár­mála­ráð­herrar evru­ríkja búast við að fá í hend­urnar nýtt samn­ings­til­boð á morgun, þriðju­dag, frá Alexis Tsipras, for­sæt­is­ráð­herra Grikk­lands, og stjórn hans. Tals­maður Angelu Merkel, kansl­ara Þýska­lands, sagði í dag að stjórn­völd í Þýska­landi líti svo á að Grikk­land eigi næsta leik. Þar sem gríska þjóðin hafi hafnað síð­asta samn­ings­til­boði í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu þá þurfi Grikkir að leggja fram nýtt til­boð. Merkel fundar með Francois Hollande, for­seta Frakk­lands, í París í kvöld. Á sama tíma verður Euclid Tsa­klotos, sem leitt hefur við­ræður Grikkja gagn­vart kröfu­höfum, form­lega skip­aður í emb­ætti fjár­mála­ráð­herra lands­ins. Hann tekur við af Yanis Varoufakis sem hætti í dag.

Í kjöl­far nið­ur­stöðu þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar í Grikk­landi í gær, þar sem Grikkir höfn­uðu sam­komu­lagi við kröfu­hafa sem fól í sér mik­inn nið­ur­skurð og aðhald í rík­is­rekstri gegn frek­ari fyr­ir­greiðslum og neyð­ar­að­stoð, hafa þrír stjórn­ar­and­stöðu­flokkar lýst yfir stuðn­ingi við Syriza, stjórn­ar­flokk Tsipras for­sæt­is­ráð­herra, í við­ræð­unum við kröfu­hafa. Grikkir krefj­ast frek­ari skulda­nið­ur­fell­inga en þeim hefur verið boðið hingað til og benda máli sínu til stuðn­ings meðal ann­ars á nýlega grein­ingu Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins (AGS), þar sem talað er fyrir nauð­syn þess að grynnka á skuldum gríska rík­is­ins. AGS sendi frá sér yfir­lýs­ingu og dag og sagð­ist sjóð­ur­inn fylgj­ast grannt með stöðu mála og vera til­búin að aðstoða Grikki, kalli þeir eftir því.

Stærri gjalddaga 20. júlí - Bankar áfram lokaðir

Þýska­land er stærsti lána­drott­inn gríska rík­is­ins og ræður afstaða þeirra miklu um næstu skref. Efna­hags­ráð­gjafi Þýska­lands og næst­ráð­andi í rík­is­stjórn Merel, Sigmar Gabriel, sagði í dag að Grikkir standi frammi fyrir greiðslu­þroti og ef þeir vilji halda áfram evrustam­starfi þurfi þeir að gang­ast við kröfum kröfu­hafa. Næsti stóri gjald­dagi á neyð­ar­lánum til Grikk­lands er 20. júlí næst­kom­andi, þegar 3,5 millj­arða evra lán frá Seðla­banka Evrópu fellur á gjald­daga. Ef Grikkir greiða ekki af lán­inu hefur það mun viða­meiri afleið­ingar heldur en þegar gríska ríkið greiddi ekki af 1,6 millj­arða evra láni frá AGS um síð­ustu mán­að­ar­mót. Afleið­ing­arnar yrðu meðal ann­ars þær að önnur lán falla á gjald­daga vegna brost­inna skil­mála.


Staða gríska rík­is­ins er grafal­var­leg. Líflínur grískra banka til Seðla­banka Evrópu hafa verið frosnar frá því boðað var til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Stjórn­völd í Grikk­landi stefnu að því að opna banka­stofn­anir í land­inu aftur á morgun en af því verður ekki. Bank­arnir verða lok­aðir á morgun og mið­viku­dag, hið minnsta. Hámarks­út­greiðsla úr hrað­bönkum verður áfram 60 evrur á dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár