Næstu 48 klukkustundir veigamiklar í Grikklandi - Hvað gerist næst?

Mikil óvissa ríkir um næstu skref í Grikk­landi eftir að gríska þjóðin hafn­aði sam­komu­lagi við kröfu­hafa í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu á sunnu­dag með ríf­lega 60 pró­sent atkvæða. Seðla­banki Evrópu lok­aði fyrir lána­línu til grískra banka í kjöl­far þess að Alexis Tsipras, for­sæt­is­ráð­herra Grikk­lands, boð­aði til atkvæða­greiðsl­unnar. Full­trúa­ráð seðla­bank­ans mun í dag ákveða hvort opnað verði fyrir fjár­mögnun á ný. Lík­leg­ast þykir að beðið verði eftir við­brögðum og ákvörð­unum leið­toga evru­ríkj­anna, sem funda um stöð­una bæði í kvöld og á morgun. Ólíklegt þykir að Seðla­banki Evrópu dragi alfarið úr fjár­hags­að­stoð til Grikk­lands en það er mat sér­fræð­inga að slíkt yrðu enda­lok Grikkja í evru­sam­starf­inu.

Nið­ur­staða þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar er sigur fyrir Tsipras for­sæt­is­ráð­herra og rík­is­stjórn hans. Lítill tími er þó til að fagna því alvar­leg skulda­staða Grikk­lands stendur eftir sem áður óleyst. Um 1,6 millj­arða evra greiðsla af láni frá Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inum (AGS) féll á gjald­daga í byrjun mán­að­ar­ins og rúm­lega tvö­falt hærra lán frá Seðla­banka Evrópu fellur á gjald­daga þann 20. júlí. Grikkir krefj­ast þess að sam­komu­lag við kröfu­hafa feli í sér minna aðhald í rík­is­rekstri en kröfur hafa verið gerðar um til þessa. Það er mat fjöl­miðla, meðal ann­ars The Guardian, að næstu 48 klukku­stundir muni reyna á þá full­yrð­ingu Tsipras að afstaða grísku þjóð­ar­innar í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni styrki samn­ings­stöðu lands­ins.


Robert Peston, rit­stjóri efna­hags­mála hjá Breska rík­is­út­varp­inu BBC, hefur skrifað um stöð­una í dag og segir að hver sem nið­ur­staðan verði um áfram­hald Grikk­lands í evru­sam­starf­inu, þá verði hún dýr­keypt. Peston segir fram­tíð Grikk­lands í sömu höndum og áður, það er í höndum Angelu Merkel, kansl­ara Þýska­lands. Þá segir Peston frá skoðun Georgios Stathakis, efna­hags­ráð­herra Grikk­lands, að afar mik­il­vægt sé að Seðla­banki Evrópu styðji við gríska banka í að minnsta kosti viku til tíu daga til við­bótar, svo finna megi far­sæla lausn á mál­inu með samn­ingum.


Leið­togar stærstu evru­ríkj­anna hafa hver á fætur öðrum komið skila­boðum áleiðis til fjöl­miðla í dag. Í sinni ein­föld­ustu mynd eru skila­boðin þau að enn sé tími til þess að semja um skulda­stöðu Grikk­lands og áfram­hald­andi veru rík­is­ins í evru­sam­starf­inu. Margir urðu von­betri í morgun þegar til­kynnt var um afsögn hins yfir­lýs­ingaglaða Yanis Varoufakis, fjár­mála­ráð­herra Grikk­lands, sem í aðdrag­anda þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar líkti evru­leið­togum við hryðju­verka­menn. Leið­togar evru­ríkj­anna líta svo á að bolt­inn sé nú hjá Grikkjum sem þurfi að leggja fram ný samn­ings­drög. Sér­fræð­inga­hópur The Economist telur 60 pró­sent líkur á að Grikkir hætti evru­sam­starf­inu.


Bankar í Grikk­landi hafa verið lok­aðir síð­ustu sex við­skipta­daga en til stendur að opna þá á morgun. Óvíst er hvort það gangi eftir en margir telja það ómögu­legt án aðkomu Seðla­banka Evrópu og lof­orðs um líf­línu til bank­anna. Almenn­ingur í Grikk­landi hefur aðeins mátt taka út 60 evrur á dag frá því þar­síð­ustu helgi og hefur gætt skorts á tutt­ugu evru seðlum í land­inu á síð­ustu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár