Vanoufakis segir af sér sem ráðherra - nærveru hans var ekki óskað við samningaborðið

Yanis Varoufakis, fjár­mála­ráð­herra Grikk­lands, sagði í morgun af sér emb­ætti. Hann til­kynnti þetta á blogg­síðu sinni og setti síðan skila­boðin á Twitter. Tíðindin eru óvænt í ljósi þess að gríska þjóðin hafn­aði samn­ingum við kröfu­hafa lands­ins, hið svo­kall­aða þrí­eyki (e. troika) í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu í gær. Um 61 pró­sent Grikkja sagði nei eða 39 pró­sent já sam­kvæmt bráða­birgða­tölum.


Minister No More! http://t.co/Oa6MlhTPjG


— Yanis Varoufakis (@yanisvaroufakis) July 6, 2015

Varoufakis, sem var mjög stór­yrtur í aðdrag­anda atkvæða­greiðsl­unnar og sagði kröfu­hafa Grikk­lands meðal ann­ars fremja hryðju­verk á þjóð sinni, sagði í færsl­unni að skömmu eftir að nið­ur­staða atkvæða­greiðsl­unnar hafi legið fyrir hafi hann fengið þær upp­lýs­ingar að nær­veru hans við samn­inga­borðið væri ekki óskað af hálfu ýmissa sem við það sitja. Alexis Tsipras for­sæt­is­ráð­herra tók undir þessa hug­mynd og því hafi Varoufakis ákveðið að segja starfi sínu lausu.

Frétta­skýrendur virð­ast sam­mála um að Tsipras hafi þar með verið að fara af vilja kröfu­hafa Grikkja: Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins, Seðla­banka Evrópu og fram­kvæmd­ar­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins sem vildu ekki að Varoufakis kæmi meira að við­ræðum um nýtt sam­komu­lag.

Gengi evru hækk­aði eftir afsögn Varoufakis í morgun en þeir hluta­bréfa­mark­aðir Evrópu sem eru þegar opnir hafa lækkað.

Varoufa­k­i

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár