Apple Music greiðir plötufyrirtækjum aðeins 0,26 krónur fyrir hverja spilun

Þótt Taylor Swift hafi snúið ákvörðun stjórn­enda Apple, um að greiða tón­list­ar­mönnum ekk­ert fyrir þær spil­anir sem lög munu fá á fyrstu þremur mán­uðum eftir opnun Apple Music, nýrrar tón­list­ar­veitu Apple, þá virð­ist sigur hennar og fylg­is­manna lít­ill í pen­ingum talið. Apple hyggst ein­ungis greiða plötu­fyr­ir­tækjum, og þar með lista­mönnum, sam­tals 0,002 doll­ara fyrir hverja hlustun. Það eru um 0,26 íslenskar krónur og þarf því fjórar hlust­anir til þess að tón­list­ar­maður fái eina krónu greidda frá Apple. Greiðslan er fyrir skatta. Það þýðir að í mörgum löndum leggst ofan á rúm­lega 20 pró­senta virð­is­auka­skattur.

Greint er frá áætlun Apple á vef Business Insider í dag en tekið er fram að fyr­ir­tækið hafi enn ekki greint frá fyr­ir­ætl­unum sínum opin­ber­lega. Um síð­ustu helgi vakti Taylor Swift athygli á fyrri áætl­unum Apple Music um að greiða ekk­ert fyrir spilun í gegnum tón­list­ar­veit­una á fyrstu þremur mán­uðum hennar, en ókeypis verður fyrir not­endur að skrá sig fyrst um sinn. Eftir harð­ort bréf Swift skiptu stjórn­endur Apple um skoðun og sögð­ust myndu greiða tón­list­ar­mönnum höf­und­ar­rétt­ar­laun.


Til sam­an­burðar greiðir Spotify plötu­fyr­ir­tækjum á bil­inu 0,006 til 0,0084 doll­ara fyrir hverja spilun. Hlutur tón­list­ar­manns af þeim hlut er að jafn­aði um 0,001128 doll­arar, sam­kvæmt frétta­skýr­ingu Guardian.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár