Taylor Swift snýr ákvörðun Apple: Tónlistarmenn fá borgað

Opinbert bréf banda­rísku söng­kon­unnar Taylor Swift til stjórn­enda Apple hafði þau áhrif að fyrri ákvörðun þeirra, um að greiða ekki laga­höf­undum höf­und­ar­rétt­ar­laun á fyrstu starfs­mán­uðum nýrrar tón­list­ar­veitu fyr­ir­tæk­is­ins, var snúið við. Apple hugð­ist ekki greiða tón­list­ar­mönnum höf­und­ar­rétt­ar­laun fyrstu þrjá mán­uði eftir opnun Apple Music, nýrrar tón­list­ar­veita fyr­ir­tæk­is­ins, en þá verður hægt að skrá sig án end­ur­gjalds. Að þremur mán­uðum liðnum munu not­endur þurfa að greiða tíu doll­ara á mán­uði.

Pistill Taylor Swift vakti mikla athygli um helg­ina en hann birt­ist á Tumblr síðu tón­list­ar­kon­unnar og hét „Til Apple, ást­ar­kveðjur Taylor“. Þar sagð­ist Swift, sem er ein allra vin­sælasta popp­stjarna heims um þessar mundir, ekki streyma nýj­ustu breið­skíf­unni sinni 1989 í gegnum tón­list­ar­veit­una vegna ákvörð­unar Apple um að greiða tón­list­ar­mönnum ekki höf­und­ar­rétt­ar­laun fyrstu þrjá mán­uð­ina. Hún sagði ákvörð­un­ina ekki snú­ast um sig heldur nýja lista­menn. „Með fullri virð­ingu, það er ekki of seint fyrir Apple að breyta um stefnu og fá fólk innan tón­list­ar­geirans til þess að skipta um skoðun, þá sem munu finna mest fyrir ákvörðun ykkar. Við biðjum ykkur ekki um ókeypis iPhone síma. Vin­sam­leg­ast ekki biðja okkur um að skaffa ykkur tón­list án end­ur­gjalds,“ skrif­aði Swift. Eddy Cue, einn æðsti yfir­maður Apple, brást við á Twitter og sagð­ist með­taka skila­boðin.


We hear you @taylorswift13 and indie artists. Love, Apple


— Eddy Cue (@cue) June 22, 2015

#AppleMusic will pay art­ist for str­eam­ing, even during customer’s free trial per­iod — Eddy Cue (@cue) June 22, 2015

Apple Music, ný tón­list­ar­veita í sam­keppni við Spotify og fleiri, fer í loftið þann 30. júní næst­kom­andi. Í boði verða um 30 milljón lög. Mán­að­ar­gjald verður tíu doll­arar á mán­uði eða 15 doll­arar fyrir fjöl­skyldu, að loknu ókeypis þriggja mán­aða prufu­tíma­bili.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár