CCP flytur í Vatnsmýrina

Leikja­fram­leið­and­inn CCP, sem nú er til húsa við Granda­garð í Reykja­vík, flytur í nýbygg­ingu sem mun rísa á svæði Vís­inda­garða Háskóla Íslands í Vatns­mýr­inni. Í bygg­ing­unni verður auk þess aðstaða fyrir fleiri nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki. Samn­ingar um flutn­ing á starf­semi CCP verða und­ir­rit­aðir í Öskju, nátt­úru­fræða­húsi HÍ, í dag. Undir samn­ing­inn rita Hilmar Veigar Pét­urs­son, fram­kvæmda­stjóri CCP, Kristín Ing­ólfs­dóttir, rektor HÍ, og Hilmar Bragi Janusson, stjórn­ar­for­maður Vís­inda­garða Háskóla Íslands. Tilkynnt var um fyr­ir­hug­aða flutn­inga CCP í dag.

„Það hef­ur margt breyst frá upp­hafs­ár­um fyr­ir­tæk­is­ins þegar starf­sem­in rúm­að­ist í lít­illi kjall­ara­skrif­stofu við Klapp­ar­stíg. Síðustu tíu ár höf­um við verið með meg­in­starf­semi okk­ar á Granda­svæð­inu, þar sem hef­ur farið vel um okk­ur inn­an um margs­kon­ar nýja starf­semi sem þar hef­ur sprottið upp á síð­ustu árum,“ seg­ir Hilm­ar Veig­ar í sam­tali við mbl.is í dag. Hann segir að tími hafi verið kom­inn á nýja stað­setn­ingu fyrir starf­sem­ina sam­hliða fram­tíð­ar­á­formum fyr­ir­tæk­is­ins.


Tölvu­leikja­fyr­ir­tækið CCP tap­aði alls 65,7 millj­ónum dala, um 8,7 millj­örðum króna, á síð­asta ári. Það tap bæt­ist við halla­rekstur fyr­ir­tæk­is­ins á árinu 2013, þegar það tap­aði 21,3 millj­ónum dala, eða 2,4 millj­örðum króna. Helsta ástæða taps­ins er gjald­færður rann­sóknar- og þró­un­ar­kostn­aður. Hann jókst mikið bæði síð­ustu ár og var til að mynda 11,4 millj­arðar króna í fyrra. Árið áður var gjald­fært um 5,5 millj­arða króna vegna hans. Kostn­að­ur­inn er bæði til­komin vegna áfram­hald­andi þró­unar á Eve Online, en einnig vegna kostn­aðar sem lagt var út í vegna fyrstu per­sónu­skot­leiks­ins DUST 514 og World of Darkness, sem var blás­inn af í fyrra.


CCP vinnur jafn­framt að tölvu­leiknum EVE:Valkyrie. Leik­ur­inn verður gef­inn út bæði fyrir PC tölvur og Playstation 4 og not­ast við sýnd­ar­veru­leika­búnað, Oculus Rift og Project Morpheus.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár