Sólfar og CCP vekja athygli á E3 sýningunni

Íslenska sýnd­ar­veru­leika-fyr­ir­tækið Sólfar Studios og tölvu­leikja­fram­leið­and­inn CCP léku bæði hlut­verk á kynn­ing­ar­fundi Sony á E3 tölvu­leikja­ráð­stefn­unni í Los Angeles borg fyrr í vik­unni, þegar Andrew House, for­stjóri Sony Enterta­in­ment, kynnti fram­tíð­ar­sýn fyr­ir­tæk­is­ins fyrir Playstation 4 leikja­tölv­una. Sólfar hefur gert sam­starfs­samn­ing við Sony um fram­leiðslu sýnd­ar­veru­leika-tölvu­leiks en Sony stefnir að því að gefa út Project Morpheus, sýnd­ar­veru­leika­búnað fyrir Playstation 4, á næsta ári. E3 tölvu­leika­ráð­stefnan er sú stærsta sinnar teg­undar.

Tölvu­leikur Sólfars heitir Godling. Spi­lendur munu fara í hlut­verk Godling, guðs á unga­barns­aldri, og kynn­ast sýnd­ar­veru­leika leiks­ins í gegnum hann. Stutt brot úr leiknum má sjá hér að neðan og lesa má um hann hér.



Stofn­endur Sólfars eru þrír fyrrum lyk­il­menn hjá CCP, þeir Reynir Harð­ar­son, Þor­steinn Högni Gunn­ars­son og Kjartan Pirre Emilsson. Þeir stofn­uðu fyr­ir­tækið í októ­ber á síð­asta ári og vinna að gerð sýnd­ar­veru­leika­leikja. „Við sem stöndum að Sólfari fórum strax að tala um þetta. Að þetta væri of gott tæki­færi til að sleppa að taka þátt í þess­ari þróun sem er að fara að eiga sér stað. Ég hef aldrei fengið svona til­finn­ingu áður. Þetta er ein stærsta breyt­ingin sem hefur orðið á tölvu­leikja­geir­anum frá upp­hafi. Annars vegar að sýnd­ar­veru­leik­inn sé kom­inn og hins vegar að hægt sé að nálg­ast vél, Unreal 4, sem gerir manni kleift að búa til efni án þess að vera með her for­rit­ara,“ sagði Reynir um til­urð fyr­ir­tæk­is­ins og þennan nýja markað sýnd­ar­veru­leika, í við­tali við Kjarnann í apríl síð­ast­liðnum.


CCP gerir leik fyrir Morpheus


Á kynn­ing­ar­fund­inum tal­aði for­stjóri Sony Enterta­in­ment einnig um CCP, sem eins og Sólfar á í sam­starfi við Sony um útgáfu leiks. Stefnt er að útgáfu tölvu­leiks­ins EVE: Valkyrie og mun hann not­ast við áður­nefnd Morpheus sýnd­ar­veru­leika­gler­augu. CCP hefur áður til­kynnt að leik­ur­inn komi út fyrir PC leikja­vélar og verður þá spil­an­legur með þrí­vídd­ar­bún­aði Oculus Rift. Brot úr leiknum má sjá hér:



Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár