Aftur í bílskúrinn til að skapa sýndarveruleika

Síðasta sumar hættu þrír lyk­il­menn hjá tölvu­leikj­aris­anum CCP. Menn­irnir þrír, Reynir Harð­ar­son, sem var einn stofn­enda og list­rænn stjórn­andi CCP, Þor­steinn Högni Gunn­ars­son, sem var yfir við­skipta­þróun hjá fyr­ir­tæk­inu, og Kjartan Pierre Emilsson, áður yfir­leikja­hönn­uður Eve Online og fram­kvæmda­stjóri CCP í Sjanghæ árum saman, ákváðu að þær breyt­ingar sem voru að eiga sér stað á tölvu­leikja­geir­anum væru þess eðlis að þeir gætu ekki látið vera að taka þátt í þeim.

Breyt­ingin sem um ræðir er sýnd­ar­veru­leiki.

Spilarinn er inni í leiknum, ekki að horfa á hann

Í októ­ber 2014 stofn­uðu þeir fyr­ir­tækið

Sólfar Studios

sem fram­leiðir efni fyrir sýnd­ar­veru­leika. Flestir tengja sýnd­ar­veru­leika­bylt­ing­una við Oculus Rift, tæki sem lítur úr eins og voldug skíða­gler­augu sem færa not­endur inn í sýnd­ar­veru­leika­ver­öld. Það er erfitt að lýsa því með orðum fyrir þeim sem ekki hafa prófað hversu mikil breyt­ing sýnd­ar­veru­leika­tól sem eru í þróun eru frá þeirri upp­lifun sem tölvu­leikja­not­endur fá við að spila leiki í dag. Auð­veld­ast er kannski að segja að spil­ar­anum líður eins og hann sé inni í leiknum, í stað þess að vera að spila hann af skjá.

Fyrir mörgum hljómar til­urð svona tóla eins og fram­tíð­ar­músik. En stærstu fyr­ir­tæki í heimi, fyr­ir­tæki á borð við Facebook (sem keypti Oculus Rift) og Sony (sem er að fram­leiða sýnd­ar­veru­leika­tól fyrir Playstation-tölvu sína), eru að veðja stórum fjár­hæðum á sýnd­ar­veru­leik­ann og að setja gríð­ar­lega fjár­muni í að koma honum á almennan markað. Þeim er fúlasta alvara og það er búist við því að byrjað verði að selja tækn­ina til tölvu­leikja­spil­ara innan tólf mán­aða.

En það er ekki nóg að vera með bylt­ing­ar­kennda tækni. Það þarf að gera eitt­hvað með hana. Afþrey­ing­ar­þyrstir tölvu­leikja­spil­arar þurfa leiki til að spila. Og þar kemur Sólfar Studios, fyr­ir­tæki Reynis, Þor­steins og Kjartans til sög­unnar.

Langaði aftur í bílskúrinn

„Við hættum allir hjá CCP síð­asta sumar og Sólfar var stofnað í októ­ber,“ segir Reynir. Fyr­ir­tækið er því ein­ungis rúm­lega sex mán­aða gam­alt. Hann seg­ist hafa kol­fallið fyrir sýnd­ar­veru­leik­anum þegar hann sá í fyrsta sinn prufu­efni fyrir Oculus Rift-tækið. „Við sem stöndum að Sólfari fórum strax að tala um þetta. Að þetta væri of gott tæki­færi til að sleppa að taka þátt í þess­ari þróun sem er að fara að eiga sér stað. Ég hef aldrei fengið svona til­finn­ingu áður. Þetta er ein stærsta breyt­ingin sem hefur orðið á tölvu­leikja­geir­anum frá upp­hafi. Annars vegar að sýnd­ar­veru­leik­inn sé kom­inn og hins vegar að hægt sé að nálg­ast vél, Unreal 4, sem gerir manni kleift að búa til efni án þess að vera með her for­rit­ara.“

Á ein­föld­uðu máli gerir Unreal 4-vélin, sem er fram­leidd af Epic, nán­ast öllum kleift að gera hágæða­tölvu­leiki. Áður fyrr voru það nán­ast ein­vörð­ungu for­rit­arar sem gátu gert það sem vélin gerir. Og vélin er ókeypis. Þess í stað tekur Epic fimm pró­sent af sölu­tekjum tölvu­leikj­anna sem fram­leiddir eru með hjálp Unreal 4-vél­ar­innar.

En það voru fleiri ástæður fyrir því að þeir ákváðu að stofna Sólfar. Reynir segir að eftir öll þessi ár hjá CCP, sem var þegar mest var með um 600 starfs­menn (um 300 í dag) og starf­semi víða um heim­inn, hafi þá langað að kom­ast aftur á byrj­un­ar­reit. „Okkur lang­aði að vera með mjög litla starf­semi þar sem þarf ekki að halda marga fundi,“ segir Reynir og hlær. „Þegar starfs­menn fyr­ir­tækis ná ákveðnum fjölda þá þarf að byggja upp ákveðna inn­viði. Það þarf marga stjórn­endur og svo þarf stjórn­endur til að stýra stjórn­end­unum. Á end­anum ertu kom­inn með fyr­ir­tæki eins og CCP. Það er óum­flýj­an­leg afleið­ing þess að stækka og auð­vitað ekk­ert að því. Slík stækkun er áskorun sem þarf að takast á við og CCP hefur gert það mjög vel. Okkur lang­aði bara aftur í bíl­skúr­inn.“

[caption id="attachment_16320" align="alignnone" width="1024"] Flestir tengja sýnd­ar­veru­leika­bylt­ing­una við Oculus Rift, tæki sem lítur úr eins og voldug skíða­gler­augu sem færa not­endur inn í sýnd­ar­veru­leika­ver­öld.[/caption]

Leikir seldir í stafrænum búðum

Bíl­skúr­inn er reyndar skrif­stofa beint fyrir ofan bar og fyrir neðan skrif­stofu Þing­vall­ar­nefndar, með útsýni yfir Aust­ur­völl. Þar vinna nú fjórir starfs­menn en þeir verða sjö von bráðar. En hvað eru þeir nákvæm­lega að gera? Kjartan svarar því. „Við erum að búa til efni fyrir þessar nýju sýnd­ar­veru­leika­græjur sem eru að fara að koma út, lík­lega innan næstu tólf mán­aða. Við ætlum að vera til­búnir með tvo leiki þegar þetta fer allt af stað og með aðra tvo í þróun.“ Planið sé svo að gefa út tvo leiki á ári að jafn­aði. Leik­irnir verða seldir í svoköll­uðum „búðum“, svip­uðum t.d. App Store, hjá þeim fram­leið­endum sem bjóða upp á sýnd­ar­veru­leika. Gert er ráð fyrir því að að hver leikur muni kosta á bil­inu 15-20 dali, 2.000-2.700 krónur. „Það sem er svo sér­stakt við þetta sem við erum að gera er að mark­að­ur­inn er svona eins og App Store var í árdaga. Ef þér tekst að gera eitt­hvað flott­ara en aðrir þá ætti að vera til­tölu­lega auð­velt að koma sér fyrir. Sér­stak­lega fyrir okkur sem erum ágæt­lega þekktir í þessum tölvu­leikja­heimi.“

Reynir segir að allar hug­myndir þeirra að leikjum séu sniðnar að við­mót­inu, sýnd­ar­veru­leik­anum, á meðan að margir aðrir séu að reyna að aðlaga leiki sem þegar eru til að hinu nýja við­móti. „Við notum við­mótið til að móta leik­ina og þeir verða mjög upp­lif­un­ar­mið­aðir. Það ger­ist alltaf eitt­hvað ótrú­legt. Þetta er svo­lítið eins og að stjórna draumi. Eins og að fara inn í drauma­heim.“

[quote font="0" align="right"] „Sudoku væri til að mynda ekki góður leikur fyrir sýnd­ar­veru­leika. Í þessu við­móti er ekki nóg að skora stig eins og í mörgum tölvu­leikjum þar sem spil­ar­inn hleypur í gegnum þá, drepur allt sem hann sér og tekur í raun ekki eftir neinu í umhverf­inu. Í sýnd­ar­veru­leik­anum er þetta aðeins öðru­vísi. Þú vilt vera á staðnum og því skiptir máli að upp­lifunin sé mjög góð.“[/quote]

Hann bendir á að ekki henti allir leikir í sýnd­ar­veru­leika. „Sudoku væri til að mynda ekki góður leikur fyrir sýnd­ar­veru­leika. Í þessu við­móti er ekki nóg að skora stig eins og í mörgum tölvu­leikjum þar sem spil­ar­inn hleypur í gegnum þá, drepur allt sem hann sér og tekur í raun ekki eftir neinu í umhverf­inu. Í sýnd­ar­veru­leik­anum er þetta aðeins öðru­vísi. Þú vilt vera á staðnum og því skiptir máli að upp­lifunin sé mjög góð.“

Og í nákvæm­lega þeim, gæð­unum, ætlar Sólfar að skara fram úr. Að sögn Kjartans telja þeir að það vanti hágæða­efni inn á þennan markað. „Við teljum okkur geta fram­leitt það, með okkar reynslu, þekk­ingu og sam­böndum. Við teljum okkur geta skapað okkur sér­stöðu í þeim efnum. Næstu tvö árin verða örugg­lega mjög umróta­söm í þessum heimi. Það verða fram­farir og tækin sjálf verða betri og betri. Þetta er mögu­legt núna. Eftir kannski þrjú ár verða komnir leikir með mikið fram­leiðslu­fjár­magn á bak­við sig inn á þennan markað og hund­rað manna fyr­ir­tæki að búa þá til. En núna er þetta rosa­lega mikið Alaska-frum­kvöðla til­finn­ingin. Að vera á kanó að sigla á móti straumnum. Okkar við­skipta­hug­mynd er að þegar þetta fer á flug verðum við komnir með for­skot. Það er engin spurn­ing í okkar huga að þessi mark­aður á eftir að verða risa­stór. Það er bara spurn­ing um hversu hratt það ger­ist.“ Reynir skýtur inn í lík­ingu sem Íslend­ingar ættu að geta tengt við. „Í því ölduróti sem verður á næstu árum er betra að vera á litlum hrað­skreiðum spítt­bát, ekki hægu olíu­skipi.“

Það er að miklu að keppa. Grein­ing­ar­fyr­ir­tæki spá því að innan fárra ára verði sýnd­ar­veru­leika­leikja­mark­að­ur­inn 30-40 millj­arða dala mark­aður. Það gera 4.000-5.550 millj­arða króna. Fyr­ir­tæki þarf ekki stóran hluta af þeirri köku til að verða mjög arð­bært.

[caption id="attachment_26765" align="alignnone" width="1003"] Skjáskot úr einum þeirra leikja sem Sólfar er að þróa um þessar mundir.[/caption]

Skalar ekki niður Rolling Stones

Þeim er reyndar tíð­rætt um kosti þess að vera með litla og sveigj­an­lega starf­semi. Hversu mik­il­vægt það sé að vera með einn í teym­inu sem er góður í lyk­il­þætti starf­sem­innar, að vinna með öðrum skap­andi fyr­ir­tækjum, að halda fram­leiðslu­kostn­aði lágum svo að arð­semi geti verið mikil án þess að taka mikla áhættu.

Og þess vegna ákváðu þeir að stofna fyr­ir­tækið á Íslandi. Reynir segir að teymið hafi skoðað hvort betra hefði verið að stofna Sólfar ann­ars staðar í heim­inum. Nið­ur­staðan hafi verið að Ísland sé frá­bær staður til að gera þetta. Svo lengi sem fyr­ir­tækið helst lítið. „Við erum með gott net og sam­bönd á Íslandi. Það er til tölu­verður pen­ingur hérna og við þekkjum sam­starfs­að­il­ana sem við getum unnið með vel. Hér er gott „talent-pool“, en það er ekki mjög stórt. Svo lengi sem við ætlum að vera með undir tíu manna fyr­ir­tæki er Ísland frá­bær staður.

Ef við þurfum að stækka upp í 40 til 50 manns þá er strax orðin miklu meiri áskorun að vera á Íslandi. Við sáum það vel hjá CCP, sem hefur þurft að flytja inn ofboðs­lega mikið af fólki, að það er erfitt að fá hæfi­leika­fólk frá öðrum löndum til að flytja til Íslands. CCP getur gert það vegna þess að þeir eru þekkt nafn í leikja­heim­inum en ef þú ert lítið sprota­fyr­ir­tæki þá er kannski erf­ið­ara að laða slíkt fólk hingað. En við viljum vera litlir, að minnsta kosti eitt til tvö ár fram í tím­ann. Það er mjög erfitt að meta hvað ger­ist svo. Þú gerir líka ekk­ert endi­lega betur með stærra teymi. Þú getur gert fleiri hluti en þeir eru ekk­ert endi­lega betri. Þú skalar til dæmis ekki upp Rolling Stones. Þeir yrðu ekk­ert betri ef það væru 50 í band­inu.“

[quote font="0" align="right"]En við viljum vera litlir, að minnsta kosti eitt til tvö ár fram í tím­ann. Það er mjög erfitt að meta hvað ger­ist svo. Þú gerir líka ekk­ert endi­lega betur með stærra teymi. Þú getur gert fleiri hluti en þeir eru ekk­ert endi­lega betri. Þú skalar til dæmis ekki upp Rolling Stones. Þeir yrðu ekk­ert betri ef það væri 50 í band­inu.[/quote]

Búnir að sækja 500 þúsund dali

Þótt tækni­fram­þróun hafi gert fram­leiðslu á efni eins og því sem Sólfar ætlar að fram­leiða mun ódýr­ari þá kostar hún samt pen­inga. Stofn­end­urnir voru reyndar ekki að hafa áhyggjur af fjár­mögnun þegar þeir stofn­uðu fyr­ir­tækið. Þeir fóru í það ferli eftir á.

Nú hefur fyr­ir­tækið náð í 500 þús­und dali, 68 millj­ónir króna, í svo­kall­aða engla­fjár­fest­ingu frá ýmsum aðilum. Um helm­ing­ur­inn kemur frá inn­lendu fjár­fest­unum Investa og Vil­hjálmi Þor­steins­syni og hinn helm­ing­ur­inn frá erlendum aðilum, aðal­lega frá Finn­landi. Þeir eru Vili Miettinen, Sisu Game Ventures, Isaac Kato og nokkrir aðrir alþjóð­legir engla­fjár­festar.

Kjartan segir að á teikni­borð­inu sé að ná í meira fjár­magn í sumar eða haust til að tryggja rekst­ur­inn næstu árin. Það er aug­ljóst að þeim líður vel að vera komnir „aftur í bíl­skúr­inn“. Og finnst gaman að fara í gegnum öll vaxt­ar­skrefin. Reynir segir raunar hreint út að það sé óvissan sem geri þetta allt saman skemmti­legt. „Sumum líður kannski illa í óviss­unni. En okkur líður hvergi betur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár