CCP tapaði níu milljörðum í fyrra - eigið fé neikvætt og starfsfólki fækkar hratt

Tölvu­leikja­fyr­ir­tækið CCP tap­aði alls 65,7 millj­ónum dala, um 8,7 millj­örðum króna, á síð­asta ári. Það tap bæt­ist við halla­rekstur fyr­ir­tæk­is­ins á árinu 2013, þegar það tap­aði 21,3 millj­ónum dala, eða 2,4 millj­örðum króna. Því nemur sam­an­lagt tap CCP á tveimur árum um ell­efu millj­örðum króna. Eigin fé fyr­ir­tæk­is­ins var nei­kvætt um síð­ustu ára­mót um 15,3 millj­ónir dala, um tvo millj­arða króna. Þetta kemur fram í frétt DV í dag sem byggir á nýjasta árs­reikn­ingi CCP sem skilað var inn til fyr­ir­tækja­skráar á þriðju­dag.

Helsta ástæða taps­ins er gjald­færður rann­sóknar- og þró­un­ar­kostn­aður. Hann jókst mikið bæði síð­ustu ár og var til að mynda 11,4 millj­arðar króna í fyrra. Árið áður var gjald­fært um 5,5 millj­arða króna vegna hans. Kostn­að­ur­inn er bæði til­komin vegna áfram­hald­andi þró­unar á Eve Online, en einnig vegna kostn­aðar sem lagt var út í vegna fyrstu per­sónu­skot­leiks­ins DUST 514 og World of Darkness, sem var blás­inn af í fyrra.

Tekjur CCP, sem eru fyrst og fremst til komnar vegna Eve Online leiks­ins, lækk­uðu um rúman millj­arð króna í fyrra. Starfs­mönnum CCP fækk­aði tölu­vert á síð­asta ári, úr 504 í 339. Þar spilar stóra rullu að hætt var við fram­leiðslu á World of Darkness. Samhliða þeirri ákvörðun voru 56 stöðu­gildi lögð niður.

Fer CCP úr landi?



Í Frétta­blað­inu á mið­viku­dag var greint frá því að rætt hafi verið um það á síð­asta árs­fundi CCP að flytja hluta starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins úr landi. Sé til dæmis í skoðun að flytja höf­uð­stöðvar þess til ann­ars lands. Fjár­magns­höft sem eru við lýði á Íslandi skipta þar miklu og gera það erf­ið­ara fyrir CCP að fá starfs­fólk við hæfi og að laða að fjár­festa.

Hilmar Veigar Pét­urs­son, fram­kvæmda­stjóri CCP, flutti fræga ræðu á Iðnþingi í byrjun mars 2014 sem gaf ýmis vand­kvæði sem fylgja rekstri fyr­ir­tæk­is­ins á Íslandi til kynna. Þar fór hann meðal ann­ars yfir feril CCP, hinn mikla upp­gang sem fyr­ir­tækið hefði gengið í gegnum og hvernig það væri að stýra alþjóð­legu fyr­ir­tæki í höftum og með íslenskri krónu.

Hilmar sagði einnig frá því að til­boðum um að færa CCP til útlanda hefði rignt inn og að erlend sendi­ráð hér­lendis væru mjög dug­leg að tala við fyr­ir­tæki sem „vit er í“. Í dag væri staðan þannig að þeir sem næðu árangri á hans vett­vangi settu ekki upp fyr­ir­tæki á Íslandi. Hann hefði hins vegar ákveðið að CCP yrði áfram á Íslandi í stað þess að fara til dæmis til Kanada, en þar bauðst CCP að borga enga skatta í fimm ár ef það flytti sig.

Hilmar sagði ástæðu þess að hann hefði ekki flutt fyr­ir­tækið ein­vörð­ungu byggða á til­finn­ingum. Eftir á að hyggja hefði það ekki verið sér­stak­lega góð ákvörðun. „Það stenst enga skoðun ef maður skoðar stað­reynd­irnar. Það meikar ekk­ert sens,“ sagði hann í ræðu sinni.

Kjarninn greindi frá því í apríl í fyrra að erlendir hlut­hafar CCP hafi verið afar óánægðir með tap­rekstur fyr­ir­tæk­is­ins á árinu 2013 og komið þeim skila­boðum sterkt til skila á aðal­fundi síð­asta árs. Það hafi búið til nýja samn­ings­stöðu fyrir þá sem vilja flytja höf­uð­stöðvar CCP burt frá Íslandi. Þegar þeir komu hingað til lands til að vera við­staddir aðal­fund CCP ræddu þeir, og aðrir hlut­hafar fyr­ir­tæk­is­ins, fram og til baka um flutn­ing höf­uð­stöðva úr landi. Ljóst er að þær við­ræður eru fjarri því að vera að deyja út.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár