Dönsk sveitarfélög hafa eytt hátt í 850 milljónum króna í sólarlandaferðir fyrir vandræðaunglinga

Fjöldi danskra sveit­ar­fé­laga hefur eytt um 42 millj­ónum danskra króna, eða 841,5 millj­ónum íslenskra, frá árinu 2010 í að senda 59 ung­menni í fíkni­efna­neyslu eða afbrotum í óhefð­bundna með­ferð á gamlar snekkjur í Karí­ba­haf­inu. Danski frétta­mið­ill­inn Metrox­press greinir frá mál­inu, sem hefur vakið tölu­verða athygli hér í Danmörku.

Metrox­press greindi fyrst frá því hvernig bæj­ar­yf­ir­völd í Hró­arskeldu vörðu hátt í tutt­ugu millj­ónum íslenskra króna í ferða­lag og uppi­hald síbrotaung­lins, sem hlotið hafi dóm fyrir vopnað rán, til með­ferðar í Karí­ba­hafið. Kjarninn sagði frá umfjöllun danska frétta­mið­ils­ins á dög­unum, en nú hefur málið heldur betur undið upp á sig.

Meðferðir sem litlu hafa skilað


Sveit­ar­fé­lögin sem um ræðir eru 26 tals­ins, sam­kvæmt rann­sókn Metrox­press. Þau hafa verið gagn­rýnd fyrir að kasta fjár­munum á glæ með því að senda korn­unga glæpa­menn og fíkla í sól­ar­landa­ferð til ein­hvers konar með­ferðar. Þó ung­menn­inn búi við meiri aga en þau hafa mörg hver nokkurn tím­ann búið við, á meðan á dvöl þeirra stendur í sól­inni, hefur úrræðið þótt skila litlum árangri.

Þá hefur Metrox­press eftir nokkrum ung­mennum í neyslu að þau hafi stundað næt­ur­lífið grimmt í Karí­ba­haf­inu á meðan þau dvöld­ust þar á kostnað danskra sveit­ar­fé­laga.

Sveitarfélög vöknuð upp við vondan draum


Mörg sveit­ar­fé­lag­anna hafa hins vegar ákveðið að senda ekki fleiri ung­menni í Karí­ba­hafið, en eitt þeirra er Albertslund sem gerði athuga­semd við fag­mennsku starfs­fólks með­ferð­ar­snekkj­anna.

„Það er mjög flókið að vinna með þessi börn, og þó þú kunnir að hnýta hnúta er það ekki endi­lega það sem til þarf. Fólkið sem er að vinna með þessum börnum þarf þjálfun og sér­þekk­ingu, það er ekki nóg að hrópa á þau og segja þeim að klifra upp mastrið. Við hættum ein­fald­lega að trúa á að það væri hægt að galdra með söltu vatni,“ segir Terje Bech, for­stöðu­maður fjöl­skyldu- og vel­ferð­ar­sviðs Albertslund, í sam­tali við Metrox­press.

Þau tvö sveit­ar­fé­lög sem hafa varið hvað mestu skattfé í sól­ar­landa­ferðir fyrir vand­ræðaung­linga eru Fred­riks­sund og Guld­borgsund. Fyrr­nefnda sveit­ar­fé­lagið hefur eytt tæpum átta millj­ónum danskra króna í ferða­lög og uppi­hald tólf ung­menna í Karí­ba­haf­inu, það síð­ar­nefnda varði rúmum 7,2 millj­ónum danskra í sam­bæri­legt verk­efni. Sam­an­lagt hafa því sveit­ar­fé­lögin tvö eytt hátt í 305 millj­ónum í íslenskum krónum talið í óhefð­bundið með­ferð­ar­úr­ræði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár