Vandræðaunglingur sendur á snekkju í Karabíska hafinu á kostnað sveitarfélagsins

Bæj­ar­yf­ir­völd í Hró­arskeldu í Danmörku vörðu hátt í milljón danskra króna í ferða­lag og uppi­hald sautján ára vand­ræðaung­lings í Kar­ab­íska haf­inu, eftir að hann hlaut dóm fyrir vopnað rán. Dag­blaðið Metrox­press greinir frá mál­inu.

Ung­ling­ur­inn, sem nefndur er Christian í umfjöllun Metrox­press, framdi rán í 7-Eleven verslun í Hró­arskeldu árið 2009, íklæddur lambús­hettu og vopn­aður stórum grill­hníf. „Í fjöl­skyld­unni minni eru ein­tómir glæpa­menn, þannig að ég varð það bara líka,“ hefur dag­blaðið eftir Christian. „Ég byrj­aði í afbrotum þegar ég var tólf til þrettán ára, þannig að ránið í 7-Eleven var bara enn einn glæp­ur­inn.“

Christian var dæmdur til að und­ir­gang­ast áfengis- og fíkni­efna­með­ferð eftir ránið, en í stað þess að senda hann á til þess bæra með­ferð­ar­stofnun, ákváðu bæj­ar­yf­ir­völd í Hró­arskeldu að senda síbrotaung­ling­inn í Kar­ab­íska hafið á gamla snekkju. Á snekkj­unni hafa vand­ræðaung­lingar dvalist til lengri og skemmri tíma í óhefð­bund­inni með­ferð.

Óforbetranlegur glæpamaður á leið í sólina


„Ég hélt alltaf áfram að brjóta af mér þrátt fyrir að hljóta dóma fyrir afbrotin, og svo kom ég mér líka oft­ast undan því að taka út mína refs­ingu. Svo þegar lög­mað­ur­inn minn og félags­ráð­gjafi stungu upp á þessu nýja úrræði tók dóm­ar­inn vel í þá hug­mynd,“ segir Christian.

Því næst keyptu bæj­ar­yf­ir­völd í Hró­arskeldu undir Christian flug­miða í Kar­ab­íska hafið, þar sem hann dvald­ist í eitt ár. Kostn­aður bæj­ar­fé­lags­ins vegna ferðar hans og dvalar þar nemur hátt í 976 þús­und danskra króna, eða tæpum 19,5 millj­ónum íslenskra króna.

[caption id="attachment_30856" align="align­right" width="734"] Hér má sjá Christian svamla í Kar­ab­íska haf­inu skammt frá snekkj­unni góðu.[/caption]

„Þetta var virki­lega skemmti­legt, og þá sér­stak­lega að fá að sjá þennan hluta heims­ins. En þetta var auð­vitað ekki bara sæld­ar­líf. Við sátum á skóla­bekk frá klukkan átta á morgn­ana og fram að hádegi, og þá tók vinna á bátnum við. En ég naut lífs­ins.“

Christian kveðst hafa skiln­ing á furðu margra yfir því að svo miklum skatt­pen­ingum hafi verið varið til að senda einn ræn­ingja í Kar­ab­íska hafið til afplán­unar. Þá bítur höf­uðið af skömminni að ferðin í suð­rænu höfin hefur ekki snúið Christian frá villu síns vegar. „Túrinn fékk mig því miður ekki til að hætta afbrotum,“ segir hann í sam­tali við Metrox­press. „Þegar ég kom heim ákvað bær­inn að senda mig rak­leiðis aftur í mitt gamla umhverfi, sem gerði mér ekki gott. Ég byrj­aði fljót­lega að selja hass og er nú með­limur AK81,“ sem er stuðn­ings­klúbbur glæpa­sam­taka Vít­isengla.

Bæj­ar­yf­ir­völd í Hró­arskeldu hafa ítrekað neitað Metrox­press um við­tal vegna máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár