Bandarísk stórfyrirtæki vilja leggja sæstreng til Íslands - funduðu með ráðherrum í síðustu viku

Banda­rísku fyr­ir­tækin Starwood Energy Group og PowerBridge LLC, sem sér­hæfa sig í fjár­fest­ingum í innviðum raf­orku­flutn­ings­kerfa, hafa lýst yfir sam­eig­in­legum áhuga á að koma að lagn­ingu 1000 kíló­metra sæstrengs milli Íslands og Bret­landseyja.

Full­trúar fyr­ir­tækj­anna áttu fund með Ragn­heiði Elínu Árna­dóttur, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, og fleiri ráð­herrum í rík­is­stjórn­inni í síð­ustu viku. Starwood Energy og PowerBridge ósk­uðu eftir fund­unum til að ítreka áhuga sinn á verk­efn­inu.

Fyrirtæki sem ber að taka alvarlega


Fyr­ir­tækin eru leið­andi í lagn­ingu sæstrengja í Banda­ríkj­unum en þau fjár­mögn­uðu meðal ann­ars tæp­lega 105 kíló­metra 660 mega­vatta sæstreng milli Long Island í New York ríki og Sayreville í New Jersey. Þá komu fyr­ir­tækin sömu­leiðis sam­eig­in­lega að lagn­ingu sams­konar 19 kíló­metra sæstrengs frá Ridgefi­eld í New Jersey til Man­hattan, en rúmir sex kíló­metrar strengs­ins liggja á botni Hudson fljóts­ins.

Höf­uð­stöðvar Starwood Energy, sem er með um 40 millj­arða Banda­ríkja­dala í stýr­ingu, eru í New York borg, en fyr­ir­tækið er sömu­leiðis með starf­semi í Lúx­em­borg. Á vef­síðu félags­ins gefur að líta þær fjöl­mörgu fjár­fest­ingar sem félagið hefur ráð­ist í frá stofnun þess árið 2005.

PowerBridge er með höf­uð­stöðvar í Fairfi­eld í Connecticut ríki í Banda­ríkj­unum. Á vef­síðu félags­ins segir að það hafi komið á fjár­fest­ingum í geir­anum fyrir 1,5 millj­arða Banda­ríkja­dala. Eins og áður segir sér­hæfa fyr­ir­tækin sig í fjár­fest­ingum í innviðum raf­orku­flutn­ings­kerfa, það er þróun, fjár­mögnun, fram­kvæmd og rekstur slíkra kerfa.

Áhugi sem nær aftur til ársins 2012


Fyr­ir­tækin lýstu yfir áhuga á að hitta ráð­gjaf­ar­hóp Oddnýju G. Harð­ar­dóttur þáver­andi iðn­að­ar­ráð­herra, sem hún skip­aði í júní árið 2012 til að kanna mögu­legan sæstreng milli Íslands og Evrópu, og áttu tveir full­trúar frá Starwood Energy og einn frá PowerBridge fund með full­trúum ráð­gjaf­ar­hóps­ins síðla árs 2012. Þetta kemur fram í skýrslu hóps­ins, þar sem hvatt er til að lagn­ing sæstrengs frá Íslandi til Evrópu verði könnuð betur.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er tölu­verður þungi á bak­við áhuga banda­rísku stór­fyr­ir­tækj­anna á sæstreng milli Íslands og Bret­landseyja, eins og fundur þeirra með íslenskum stjórn­völdum í síð­ustu viku er til marks um, og bíða þau nú átekta hvað verða vill varð­andi vilja íslenskra stjórn­valda til að ráð­ast í verk­efnið. Annar full­trúi Starwood, sem átti fund með íslenskum ráða­mönnum fyrir skemmstu, heitir John Dizard, en hann er fjár­fest­inga­ráð­gjafi sem skrifar reglu­lega pistla í Financial Times og hefur skrifað mikið um orku­mál.

Nokkrir um hituna - ef verða vill


Eins og kunn­ugt fer Charles Hendry, fyrr­ver­andi orku­mála­ráð­herra Bret­lands, fyrir hópi fjár­festa sem nú reynir að afla fram­kvæmd­inni fjár. Í fjár­festa­hópnum, sem fer fram undir nafn­inu Atlantic Superconnection, er að finna meðal ann­ars erlenda líf­eyr­is­sjóði. Þriðji aðil­inn sem hefur sömu­leiðis lýst yfir áhuga á lagn­ingu sæstrengs er breska rík­is­fyr­ir­tækið National Grid. Þá hafa fleiri hópar viðrað áhuga sinn við íslensk stjórn­völd, þó eng­inn form­lega að því er heim­ildir Kjarnans herma.

[caption id="attachment_26371" align="alignnone" width="548"] Charles Hendry, fyrr­ver­andi orku­mála­ráð­herra Bret­lands, fer fyrir hópi áhuga­samra fjár­festa um lagn­ingu sæstrengs milli Íslands og Bret­landseyja. Mynd: Kjarninn[/caption]

Samkvæmt til­lögu áður­nefnds ráð­gjaf­ar­hóps hefur iðn­að­ar­ráðu­neytið þegar boðið út ýmsa þætti varð­andi frek­ari hag­kvæmn­is­at­hugun á lagn­ingu sæstrengs til Bret­landseyja. Ekki liggur enn fyrir hvenær tíð­inda verður að vænta úr þeim ranni.

Þá skrif­aði Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar, grein í Morg­un­blaðið á dög­unum þar sem hann taldi lagn­ingu sæstrengs væn­legan kost fyrir þjóð­ar­búið. „Fyrir liggur að í boði gæti verið umtals­vert hærra orku­verð en nemur með­al­verði Lands­virkj­unar, þannig að um er að tefla mikla fjár­hags­lega hags­muni fyrir fyr­ir­tækið og þjóð­ina alla. Með teng­ingu við aðra mark­aði gæf­ist okkur kostur á að nýta þá umframorku sem óhjá­kvæmi­lega er til staðar í lok­uðu raf­orku­kerfi,“ skrif­aði Hörður í Morg­un­blaðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár