Hagkvæmnisathugun á sæstreng til Evrópu þokast áfram

Atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið vinnur nú að gerð útboðs­lýs­inga til að bjóða út ákveðna þætti varð­andi hag­kvæmn­is­at­hugun á lagn­ingu sæstrengs milli Íslands og Bret­landseyja. Þetta kom fram í svari Ragn­heiðar Elínar Árna­dóttur, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, á fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í síð­ustu viku.

Þverpóli­tískur ráð­gjafa­hópur um raf­orku­streng til til Evrópu, sem skip­aður var í júní 2012 af Katrínu Júl­í­us­dóttur þáver­andi iðn­að­ar­ráð­herra, var falið að kanna hag­kvæmni þess að leggja sæstreng milli Íslands og Evrópu. Í nið­ur­stöðum og til­ögum hóps­ins, sem kynntar voru í lok júní í fyrra, var hóp­ur­inn sam­dóma um að frek­ari upp­lýs­ingar þurfi að liggja fyrir áður en unnt sé að full­yrða um þjóð­hags­lega hag­kvæmni verk­efn­is­ins. Hópurinn tók því ekki afstöðu til fram­kvæmd­ar­innar, en lagði til að ráð­ist yrði í frek­ari rann­sóknir á arð­semi strengs, sem og umhverf­is­á­hrifum og hafnar yrðu við­ræður við Breta um málið.

Ráðgjafahópur lagði til frekari athugun í sjö liðum


Í skýrslu hóps­ins gerir hann sjö til­lögur til ráð­herra. Að áfram verði unnið að grein­ingu á þjóð­hags­legri hag­kvæmni verk­efn­is­ins, að greindar verði sviðs­myndir orku­öfl­unar og virkj­anar­aðar, að Lands­neti í sam­starfi við Lands­virkjun, og ef til vill fleiri, verði veitt heim­ild til að hefja við­ræður við rekstr­ar­að­ila flutn­ings­kerfis í Bret­landi og eftir atvikum bresku orku­stofn­un­ina, að ráðu­neytið leiti leiða til að afla upp­lýs­inga með það að mark­miði að kanna með hvaða hætti sala á íslenskri orku gæti fallið undir breska lög­gjöf um íviln­anir fyrir end­ur­nýj­an­lega orku, að skil­greind verði skila­leið auð­lind­arentu sem mynd­ast kunni af raf­orku­sölu um sæstreng, að metin verði áhrif eign­ar­halds á sæstrengnum með til­liti til afhend­inga­ör­yggis raf­orku innan lands, og að ráðu­neytið kanni hvaða lögum og reglu­gerðum þurfi að breyta komi til þess að ráð­ist verði í lagn­ingu sæstrengs til Evrópu.

Álit ráð­gjafa­hóps­ins fór til með­ferðar í atvinnu­vega­nefnd, efna­hags- og við­skipta­nefnd og umhverfis- og sam­göngu­nefnd Alþingis. Nefndir Alþingis voru sam­mála nið­ur­stöðum ráð­gjafa­hóps­ins og fólu iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra að fylgja mál­inu eftir.

Engar formlegar samningaviðræður átt sér stað við Breta


Iðnaðar- og við­skipta­ráð­herra fund­aði með Michael Fallon, orku­mála­ráð­herra Bret­lands, í mars­mán­uði síð­ast­liðnum. Sæstrengur á milli Íslands og Bret­landseyja var sér­stak­lega ræddur á fund­inum, en bresk stjórn­völd hafa lýst yfir áhuga sínum á verk­efn­inu til að gera hlut end­ur­nýj­an­legra orku­gjafa þar í landi.

Í svari iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra í fyr­ir­spurna­tíma Alþingis í síð­ustu viku kom fram að engar form­lega samn­inga­við­ræður hafi átt sér stað við Breta. "Enda hef ég lýst því yfir að það sé ekki rétt að fara í samn­inga­við­ræður fyrr en við vitum um hvað við erum að fara að semja," sagði Ragn­heiður Elín í ræðu­stól Alþingis.

Þá kom fram í svari ráð­herra að ráðu­neytið og und­ir­stofn­anir þess, svo sem Orku­mála­stofnun og Orku­spár­nefnd, vinni nú að fjórum verk­efnum sem lögð voru til grund­vallar afstöðu til sæstrengs í skýrslu ráð­gjafa­hóps­ins og skil­greind eru á verk­sviði ráðu­neyt­is­ins. Þá sé þessa dag­anna verið að leggja loka­hönd á útboðs­lýs­ingar í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu svo hægt verði að bjóða út aðra þætti sem nefndir voru í skýrsl­unni.

Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar, hefur lýst því yfir að lagn­ing sæstrengs gæti verið eitt stærsta við­skipta­tæki­færi sem Íslend­ingar stæðu frammi fyrir. Fram hefur komið að rann­sóknir á lagn­ingu sæstrengs frá Íslandi til Evrópu taki tvö til þrjú ár, og lagn­ing hans geti tekið fjögur ári til við­bótar. Þá hefur kostn­aður við lagn­ingu sæstrengs verið met­inn á um 300 millj­arða króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár