Forstjóri Landsvirkjunar: Sæstrengur mjög áhugaverður kostur

„Sæstrengur er mögu­lega mjög áhuga­verður við­skipta­vinur fyrir fyr­ir­tækið. Fyrir liggur að í boði gæti verið umtals­vert hærra orku­verð en nemur með­al­verði Lands­virkj­unar, þannig að um er að tefla mikla fjár­hags­lega hags­muni fyrir fyr­ir­tækið og þjóð­ina alla. Með teng­ingu við aðra mark­aði gæf­ist okkur kostur á að nýta þá umframorku sem óhjá­kvæmi­lega er til staðar í lok­uðu raf­orku­kerfi,“ skrifar Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar, í grein í Morg­un­blað­inu í dag.

Þá skrifar Hörður um hvernig eft­ir­spurn eftir end­ur­nýj­an­legri orku hefur auk­ist jafnt og stöðugt, ekki síst eftir að Banda­ríkja­menn og Evr­ópu­sam­bandið hófu að leggja áherslu á að auka hlut end­ur­nýj­an­legrar orku í orku­fram­leiðsl­unni. Þá hafi eft­ir­spurnin sömu­leiðis auk­ist þar sem orku­ör­yggi sé víða í hættu, til að mynda á Bret­landi, en Bretar hafa lýst yfir ein­dregnum vilja til að kaupa raf­orku af Lands­virkjun í gegnum raf­orku­sæ­streng sem lagður yrði á milli þjóð­anna.

„Bretar hafa mik­inn áhuga á því að gera lang­tíma samn­inga um orku­kaup og breska rík­is­stjórnin hefur þegar gert samn­inga við fjöl­marga aðila sem tryggja ákveðið auka­gjald fyrir afhend­ingar­ör­yggi. Þeir líta svo á að um þjóðar­ör­yggi sé að tefla.“

Ýmsum spurningum ósvarað


Þá segir Hörður að við mat á kostum og göllum sæstrengs sé nær­tæk­ast að líta til reynslu Norð­manna, sem hafi góða reynslu af teng­ingu við Holland í gegnum lengsta sæstreng í heimi, NorNed-streng­inn, en Norðmenn hafa nú þrjá nýja sæstrengi á teikni­borð­inu.

„Vissu­lega er ýmsum spurn­ingum ósvarað þegar litið er til heild­ar­á­hrifa þess­arar fram­kvæmdar. Til að mynda þarf að tryggja leiðir til að raf­orku­verð til heim­ila hækki ekki umtals­vert og um leið þarf að búa svo um hnút­ana að sam­keppn­isum­hverfi iðn­aðar á Íslandi sé tryggt.“

For­stjóri Lands­virkj­unar segir að í lagn­ingu sæstrengs til Bret­lands myndi sömu­leiðis fel­ast aukið orku­ör­yggi fyrir Íslands, því hægt sé að flytja raf­orku í báðar áttir. „Við Íslend­ingar búum að mínu mati ekki við full­nægj­andi orku- öryggi eins og staðan er núna. Eins og okkur er full­ljóst getur fyr­ir­vara­laust brostið á með nátt­úru­ham­förum eða bil­unum, auk þess sem við getum auð­veld­lega lent í þeirri stöðu að eft­ir­spurn eftir orku verði meiri en fram­boðið, sér í lagi ef vatns­árið er í lak­ara lagi.“

Þá und­ir­strikar Hörður í grein sinni mik­il­vægi þess að við­skipta­legar for­sendur ráði för við ákvarð­ana­töku Lands­virkj­unar. „Það er mik­il­vægt að hafa í huga að sæstrengur er eins og hver annar við­skipta­vinur og hvert annað tæki­færi í augum okkar. Við störfum á við­skipta­legum for­sendum og ef góðir samn­ingar nást um orku­verð sjáum við fram á stór­aukna arð­semi af auð­lind­inni, í sam­ræmi við það hlut­verk Lands­virkj­unar að hámarka afrakstur af þeim orku­lindum sem fyr­ir­tæk­inu er trúað fyrir, með sjálf­bæra nýt­ingu, verð­mæta­sköpun og hag­kvæmni að leið­ar­ljósi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár