Kaupum föt sem fátækt fólk saumar

Það virð­ist vera ansi víð­tekin skoðun að í fata­fram­leiðslu stór­fyr­ir­tækja í þró­un­ar­löndum felist stór­felld mann­rétt­inda­brot og að okkur beri sið­ferð­is­leg skylda til að sjá til þess að slíkt við­gang­ist ekki. Þetta er vissu­lega rétt, eng­inn með rænu og vott af sið­ferð­is­kennd vill sjá troðið á mann­rétt­indum og það er ekki nokkur vafi á því að margt má, og hrein­lega verður, að bæta. Hinn frá­bæri stjórn­andi Last Week Tonight, John Oliver, tók málið fyrir á dög­unum og gagn­rýndi illa með­ferð starfs­fólks, lág laun og að fötin væru alltof ódýr.

https://www.youtube.com/watch?v=VdLf4fihP78

Málið er langt í frá svona einfalt


Þetta, við­horf og aðgerðir sem beint eða óbeint miða að því að draga úr mögu­leikum fólks til þess að vinna í textíl­iðn­aði í þró­un­ar­löndum, getur verið skað­legt, þótt það sé vissu­lega skilj­an­legt.

Fyrir skömmu birt­ist á Kjarn­anum frétta­skýr­ing um hvernig fata­gjafir til þró­un­ar­landa geta verið skað­legar, sér­stak­lega þar sem þær skemma fyrir inn­lendri fata­fram­leiðslu, sem síðan á dögum iðn­bylt­ing­ar­innar í Bret­landi hefur verið lyk­il­þáttur í að hjálpa löndum út úr fátækt. Til er fjöldi rann­sókna sem rök­styðja vel þetta fram­lag textíl­iðn­aðar til hag­sældar, t.d. hér, hér og hér. Ástæðan er fyrst og fremst sú að slík fram­leiðsla krefst lít­illar tækni og fjár­magns, sem skortur er á í þró­un­ar­löndum, en mik­ils mann­afla, sem er eng­inn skortur er á í þró­un­ar­löndum. Samkvæmt kenn­ingu Ricardo um hlut­falls­lega yfir­burði, sem er ein víð­tekn­asta og lífseig­asta kenn­ing hag­fræð­innar, ættu lönd í slíkri stöðu að nýta sér það, bæði sjálfum sér og við­skipta­löndum sínum til hags­bóta. Ísland hefur t.d. nýtt sína hlut­falls­legu yfir­burði í fisk­veiðum og orku­vinnslu, sem er grund­völlur þess að lífs­skil­yrði hér eru með þeim bestu í heim­inum.

Textíliðnaður mikilvægur í Bangladesh


[quote font="0" align="right"] Í þró­un­ar­löndum, sér­stak­lega þar sem Íslams­trú er ráð­andi eins og í Bangla­desh, hallar tölu­vert á rétt­indi og lífs­skil­yrði kvenna. Tækifæri fyrir konur sem gera þeim kleift að lifa með sæmd eru oft nán­ast engin. Þrátt fyrir lág laun hefur textíl­iðn­aður haft jákvæð og vald­efl­andi áhrif á konur í Bangla­desh. Tölurnar bera merki um það þar sem tíðni mæðra- og ung­barna­dauða hefur fallið um helm­ing á síð­ast­liðnum 20 árum.[/quote]

Bangla­desh er gjarnan nefnt sem dæmi um land þar sem aðstæður verka­manna eru hræði­legar og þegar verk­smiðja þar í landi hrundi árið 2013 heyrð­ust raddir um að snið­ganga ætti föt sem eru fram­leidd í land­inu. Textíl­iðn­aður stendur undir bróð­ur­parti útflutn­ings Bangla­desh (83,5 pró­sent árið 2008) og þar af er 60 pró­sent vest­ræn merkja­vara. Iðn­að­ur­inn veitir um 4 millj­ónum manna atvinnu og af þeim eru u.þ.b. 90 pró­sent konur. Í þró­un­ar­löndum, sér­stak­lega þar sem Íslams­trú er ráð­andi eins og í Bangla­desh, hallar tölu­vert á rétt­indi og lífs­skil­yrði kvenna. Tækifæri fyrir konur sem gera þeim kleift að lifa með sæmd eru oft nán­ast engin. Þrátt fyrir lág laun hefur textíl­iðn­aður haft jákvæð og vald­efl­andi áhrif á konur í Bangla­desh. Tölurnar bera merki um það þar sem tíðni mæðra- og ung­barna­dauða hefur fallið um helm­ing á síð­ast­liðnum 20 árum og auk þess hefur frjó­semi líka minnkað um nær helm­ing (2,21 árið 2012), en sterk nei­kvæð fylgni er milli efn­hags­legra fram­fara og frjó­semi.

Efna­hags­legar fram­farir hafa svo sann­ar­lega verið miklar í Bangla­desh síðan textíl­iðn­að­ur­inn tók við sér á 8. og 9. ára­tugnum; lands­fram­leiðsla á mann hefur nærri því fimm­fald­ast á 30 árum og hlut­fall mann­fjöld­ans undir fátækra mörkum hefur farið úr 72% árið 1989 niður í 43% árið 2009. Vissu­lega er Bangla­desh sam­kvæmt flestum mæli­kvörðum ennþá efna­hags­lega van­þróað land, eitt af þeim fátæk­ustu í Suður-Asíu, og ein­kenn­ist af mik­illri mis­skipt­ingu. Þó bendir allt til þess að þjóðin, sér­stak­lega fátæk­ustu þegnar hennar, væru í verri stöðu ef ekki hefði komið til erlendrar fjár­fest­ingar í textíl­iðn­aði.

[caption id="attachment_28283" align="alignnone" width="660"] Rúmlega 83 pró­sent af útflutn­ingi Bangla­desh er tengt textíl­iðn­aði. Þótt pottur sé víða brotin í aðbún­aði verka­manna þar þá er ljóst að iðn­að­ur­inn er mik­il­væg­asti hlekk­ur­inn í að bæta lífs­kjör í land­inu.[/caption]

Afríkulönd horfa til textíliðnaðar


Það er ekki til­viljun að þau lönd sem eru allra fátæk­ust í dag, sér­stak­lega í Afríku sunnan Sahara horfa mikið til upp­bygg­ingar textíl­iðn­aðar sem leið til að brjót­ast út úr fátækt. Til að nefna dæmi þá birt­ist vilji til slíkrar upp­bygg­ingar í Tansaníu skýrt í fimm ára þró­un­ar­á­ætl­unum land­ins. Stjórn­völd þar í landi hafa þegar ráðið erlenda ráð­gjafa til að vinna að stefnu­mótun í þeim málum. Enda lifir nær helm­ingur þjóð­ar­innar undir fátækra­mörkum Alþjóða­bank­ans ($1,25 á dag), atvinnu­leysi er mikið, sér­stak­lega á meðal ungs fólks, og fólks­fjölg­unin er svo hröð að ástandið mun ein­ungis versna að öllu óbreyttu.

Kröfur um bætt kjör geta haft óæskilegar afleiðingar


Oft er því haldið fram að það verði að krefj­ast þess að laun hækki í textíl­iðn­aði í þró­un­ar­löndum og starfs­skil­yrði séu bætt. Það á að sjálf­sögðu að vera mark­miðið til lengri tíma og mun von­andi ger­ast hægt og bít­andi á næstu árum. Slíkar kröfur geta þó verið vara­samar af tveimur ástæðum.

Í fyrsta lagi er hætta á að hærri laun verka­manna minnki bilið milli þeirra og sér­fræði­mennt­aðra, sem dregur úr hvötum til mennt­unar og leiðir til þess að menntað fólk sæki frekar í verk­smiðjur. Hvort tveggja er slæmt fyrir hag­kerfið. Laun sér­fræði­mennt­aðra í þró­un­ar­löndum eru mjög lág á íslenskan mæli­kvarða, ein­fald­lega vegna þess að það er minna til skipt­anna, svo það sem hljómar sem lítil hækkun getur haft mjög rask­andi áhrif.

Í öðru lagi myndu hærri laun og auknar kröfur um aðbúnað hækka kostnað fyr­ir­tækja, sem gæti dregið úr umsvifum vest­rænna fata­fram­leið­anda og hrein­lega fælt þá í burtu. Fyr­ir­tækin hafa alltaf þann mögu­leika að starfa í löndum nær helstu mörk­uðum þar sem er betra rekstr­ar­um­hverfi og meiri tækni­þekk­ing. Í slíkum löndum eru fáir, ef ein­hverjir, sem lifa undir fátækra­mörkum Alþjóða­bank­ans og því myndi fjár­fest­ing fyr­ir­tækj­anna ekki fara þangað sem þörfin er mest.

Verslum við þróunarlönd


Svo vægt sé til orða tekið eru van­kant­arnir margir, eins og áður hefur verið nefnt. Það er sjálf­sögð krafa að aðstæður verka­manna í þró­un­ar­löndum séu bættar. Eitt stærsta vanda­málið sem þessum iðn­aði fylgir, og þarfn­ast veru­legrar aðgerða og eft­ir­fylgni, er barna­vinna. Í fátækum löndum leiðir örvænt­ing barna og ung­menna oft til þess að alþjóð­legum mann­rétt­inda­lögum er ekki fylgt eftir og eru oft alger­lega hunsuð. Einnig er víða pottur brot­inn í umhverf­is­málum, sem taka þarf til­lit til í þessu sam­hengi.

[quote font="0" align="right"]Það er sjálf­sögð krafa að aðstæður verka­manna í þró­un­ar­löndum séu bættar. Eitt stærsta vanda­málið sem þessum iðn­aði fylgir, og þarfn­ast veru­legrar aðgerða og eft­ir­fylgni, er barna­vinna.[/quote]

En af ofan­greindum ástæðum er nauð­syn­legt að allt sem miðar að lausnum þess­ara vanda­mála sé afar vel ígrundað og hvað sem það kostar, ræni ekki fátækt fólk lífs­við­ur­væri sínu eða fæli fyr­ir­tæki frá því að fjár­festa í löndum sem þurfa hvað mest á fjár­fest­ingu að halda. Vest­ur­landa­búar gera nú þegar nógu mikið með aðgerðum og aðgerð­ar­leysi, með­vitað og ómeð­vitað, sem aftrar fátæka meiri­hluta heims­ins frá því að lifa með reisn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár