Eru fatagjafir til þróunarlanda dulin bölvun?

Frasinn „gefðu manni fisk og þú hefur mett hann í einn dag. Kenndu manni að veiða fisk og þú hefur mett hann fyrir lífs­tíð“ er fyrir löngu orð­inn klass­ískur, eða hin versta klisja - það fer eftir því hver er spurður. Eitt er þó á krist­al­tæru og það er að oft­ast sé betra til lengri tíma að kenna fólki að bjarga sér sjálft heldur en að bjarga því beint. Þró­un­ar­að­stoð og góð­gerða­starf­semi er engin und­an­tekn­ing.

Undir lok síð­asta árs var hér á Kjarn­anum fjallað um hvernig það að ger­ast sjálf­boða­liði í þró­un­ar­landi getur verið bein­línis skað­legt. Á und­an­förnum árum hafa fata­gjafir frá Vest­ur­löndum til þró­un­ar­landa, einna helst í Afríku, einnig hlotið mikla gagn­rýni einmitt vegna þess að sagt er að hún hafi skað­leg áhrif.

Tugmilljarða atvinnugrein í miklum vexti


Vest­ur­landa­búar losa sig við millj­ónir tonna af fatn­aði til góð­gerð­ar­mála á hverju ári. Íslend­ingar, sem leggja á sig sér­stakar ferðir yfir hálft Atl­ants­hafið til að versla föt í H&M, leggja þar sitt að mörkum. Á 9. ára­tugnum stórjuk­ust fata­gjafir til Afríku sunnan Sahara og hafa þær vaxið mikið á síð­ast­liðnum árum. Þó að það virð­ist sem góð hug­mynd að nýta það sem er til nú þegar og gefa nauð­synjar eins og föt til fátæk­asta fólks heims­ins er málið e.t.v. aðeins flókn­ara. Í fæstum til­fellum enda fötin í höndum ein­hverra sem virki­lega þurfa á þeim að halda og þeim að kostn­að­ar­lausu. Í stað­inn eru fötin seld til end­ur­vinnslu­stöðva í Evrópu eða Ameríku þar sem þau eru flokkuð eftir gæðum í ca. 50 kg búnt og seld þaðan til dæmis til Afríku þar sem þau enda á mörk­uðum eða í versl­unum.

Þeir sem hafa komið til Austur-Afríku vita a.m.k. að slík föt eru bók­staf­lega út um allt. Það er senni­lega auð­veld­ara að verða sér úti um Levi's galla­buxur eða Hugo Boss skyrtu í Kampala, höf­uð­borg Úganda, heldur en góðan kaffi­bolla. Það er afar kald­hæðn­is­legt í ljósi þess að Úganda er 11. mesti kaffi­fram­leið­andi heims og lands­fram­leiðsla á mann er um 3% af því sem hún er á Íslandi. Þó er á þessu ein­föld skýr­ing - meira en 80% af fatn­aði í Úganda er notuð föt frá Vest­ur­löndum. Heild­ar­verð­mæti við­skipta með notuð föt er á reiki en ljóst er að hann hleypur á tug­millj­örðum króna, ef ekki hund­ruðum millj­arða árlega. Sér­fræð­ingar telja að það gæti numið allt að 6 millj­örðum banda­ríkja­dala

Skaða fatagjafir efnahagslega velferð?


Inn­lendir fram­leið­endur sem þurfa að keppa við hræó­dýran erlendan fatnað lenda eðli­lega í vand­ræðum. Í stað­inn fyrir að geta byggt upp fata- og textíl­iðnað, eiga þeir sé litla von. Þó að hag­fræði­kenn­ingar og flestir hag­fræð­ingar mæli með því að opna fyrir alþjóða­við­skipti og að hlutir séu end­ur­nýttir ef það borgi sig, þá er stað­reyndin sú að vefn­að­ar­iðn­aður hefur oft leikið lyk­il­hlut­verk í iðn­væð­ingu.

Allt frá Bret­landi á tímum iðn­væð­ingar og til tígr­anna í Austur-Asíu á seinni hluta 20. aldar hefur vefn­aður oft verið mik­il­vægur löndum til að brjót­ast út úr fátækt. Í eðli sínu hentar hann slíkum löndum vel vegna þess að hann krefst til­tölu­lega lít­ils fjár­magns, sem fátæk lönd hafa lítið af, en mik­ils og ódýrs vinnu­afls, sem fátæk lönd eiga yfir­leitt nóg af. Einnig hafa mörg lönd brot­ist út úr fátækt með því að verja inn­lenda fram­leiðslu frá erlendri sam­keppni á meðan hann er byggður upp en síðan opnað hag­kerfið þegar á líður. Suður-Kórea sem tutt­ugu­fald­aði lands­fram­leiðslu á mann á 50 árum er gott dæmi.

Fata­inn­flutn­ingur frá Vest­ur­löndum til Afríku hefur leikið fata­iðnað í mörgum löndum grátt. Í Gana féll atvinna í vefn­að­ar­iðn­aði um 80% frá 1975 til 1980 og í Kenýa er svip­aða sögu að segja þar sem fata- og vefn­að­ar­iðn­aður svo gott sem hvarf á 9. ára­tugnum. Rannsókn Gareth Frazer frá 2008 bendir til þess að fata­gjafir til Afríku útskýri 40% af sam­drætti í fata­fram­leiðslu á árunum 1981-2000. Auk þess bendir hann á að fata­gjafir séu einnig sam­bæri­legar mat­ar­gjöfum sem einnig hafa verið harð­lega gagn­rýndar fyrir að skaða hvata bænda og inn­lenda fram­leiðslu. Frazer hefur enn­fremur bent á það nær engin lönd hafi brot­ist út úr fátækt án þess að a.m.k. 1% vinnu­aflsins hafi unnið í vefn­aðar- og fata­iðn­aði.

[caption id="attachment_21465" align="alignnone" width="960"] Mynd eftir Pál Kvaran af manni sem hann hitti fyrir til­viljun og var í ÍSLENSKRI peysu. Tekin í Kabale í Úganda í fyrra.[/caption]

Hvað verður um íslensk föt?


En eru Íslend­ingar að senda föt til Afríku? Rauði kross­inn er mjög umsvifa­mik­ill í fata­söfnun til góða­gerð­ar­mála út um land allt. Að sögn Björns Teits­sonar verk­efna­stjóra hjá Rauða Kross­inum er mikið selt til að fjár­magna inn­an­lands, þá fyrst og fremst inn­an­lands og til efna­iðn­aðar í Evrópu. Einnig eru föt send út í sér­tæk verk­efni, t.d. til dreif­býlis í Hvíta Rúss­landi þar sem fólk býr í illa kyntum húsum, vegna nátt­úru­ham­fara eins og nýlegra flóða í Malaví og nú síð­ast barst beiðni frá Sierra Leone þar sem þurft hefur að brenna föt vegna hættu á ebólu­smitum. Björn árétt­aði að Rauði Krossinn væri vel með­vit­aður um hugs­an­leg skað­leg áhrif þess að gefa föt og eru slíkar gjafir háðar ströngum skil­yrðum.

Einnig var haft sam­band við Hjálp­ræð­is­her­inn og þar feng­ust þær upp­lýs­ingar að stærstur hluti fata­gjafa sem þangað kemur sé seldur inn­an­lands. Afgang­ur­inn er fluttur til Evrópu og er það háð ströngum reglum til að koma í veg fyrir skað­leg áhrif.

Hvað sem öllu líður, vöndum okkur


Þegar öllu er á botn­inn hvolft er málið ekki ein­falt. Í raun er það þannig þegar að kemur að allri þró­un­ar­að­stoð - hún getur verið áhrifa­rík en það ger­ist ekk­ert að sjálfu sér með góðum vilja einum og sér. Það þarf mikla þekk­ingu á aðstæðum í hverju til­felli og raun­veru­legum þörfum fólks. Þetta þýðir ekki að þess vegna eigi að hætta þessu öllu saman, heldur þvert á móti að það þurfi að halda áfram að vanda betur til verka. Í ljósi þess­ara áskor­anna og að hér er um að ræða fátæk­asta og oft óheppn­asta fólkið í heim­inum ættum við að íhuga vand­lega hvernig við leggjum því lið. Og helst gera aðeins meira af því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár