Sjálfboðatúristar – meiri skaði en gagn?

Á und­an­förnum árum hefur atvinnu­grein, sem gæti útlagst á íslensku sem sjálf­boða­liða ferða­mennska eða sjálf­boða­túrismi (á ensku: „volunteer tourism” eða „voluntourism”) vaxið gríð­ar­lega. Hundruð þús­unda ósér­hæfðra ung­menna frá Vest­ur­löndum auk ann­arra fara á hverju ári út um allan heim til að leggja sitt að mörkum í þró­un­ar­löndum, oftar en ekki með því að kenna, byggja skóla eða aðstoða á mun­að­ar­leys­ingja­heim­ilum. Árið 2007 velti iðn­að­ur­inn um og yfir tveimur millj­örðum doll­ara á heims­vísu. Óhætt er að full­yrða að flestir séu sam­mála um að iðn­að­ur­inn hafi vaxið enn frekar síðan þá.

Í fljótu bragði virð­ist þetta vera göfug og óeig­in­gjörn leið til að hjálpa fátæk­asta fólki heims­ins. Stað­reyndin er því miður sú að í fæstum til­fellum er málið svo ein­falt og í mörgum land­anna er sjálf­boða­túrismi bein­línis skað­legur, án þess að nokkur ætli sér að valda skaða. Það þarf ekki nema að gúgla„voluntourism” til að sjá að sjálf­boða­túrismi hefur sætt gríð­ar­mik­illi gagn­rýni und­an­farin ár, t.d. hér, hér og hér.

Gagn­rýnin virð­ist helst bein­ast að þeim sem hjálpa mun­að­ar­leys­ingjum og Richter og Norman (2010) segja að skamm­tíma -sjálf­boða­liðar á mun­að­ar­leys­ingja­heim­ilum geti magnað upp nei­kvæð áhrif upp­eldis á slíkum stofn­unum.

Borga fyrir að hjálpa


Sá sem vill ger­ast sjálf­boða­túristi getur valið að fara nán­ast hvert sem er, hvort sem það er til að kenna ensku í skóla í Mósambík eða vinna á mun­að­ar­leys­ingja­heim­ili í Gana. Oftast fer fólk á vegum sam­taka eða fyr­ir­tækja eins og AUS, Kilroy og Nínukots, sem veita slíka þjón­ustu á Íslandi. Algengt er að fólk ger­ist sjálf­boða­liðar og borgi frá um 1.000 og jafn­vel yfir 10.000 krónur á dag og hafa þá yfir­leitt ákveðið örygg­is­net, hús­næði og fæði á meðan á dvöl stendur. Flug, bólu­setn­ingar, vega­bréfs­á­rit­anir trygg­ingar og ýmis­legt annað er ekki inni­falið. Þetta eru tals­verðar upp­hæðir þegar þær eru settar í sam­hengi við að fátækt­ar­mörk Alþjóða­bank­ans er rúmar 150 krónur. Talið er að um millj­arður manna lifi á innan við 150 krónum á dag. Þar sem sjálf­boða­túristar vinna yfir­leitt í mjög fátækum sam­fé­lögum er því ljóst að það er eftir miklu að slægj­ast. Í þessu felst gríð­ar­lega stór hvata­vandi.

[caption id="attachment_12982" align="alignnone" width="1024"] Sá sem vill ger­ast sjálf­boða­túristi getur valið að fara nán­ast hvert sem er, hvort sem það er til að kenna ensku í skóla í Mósambík eða vinna á mun­að­ar­leys­ingja­heim­ili í Gana. Oftast fer fólk á vegum sam­taka eða fyr­ir­tækja eins og AUS, Kilroy og Nínukots, sem veita slíka þjón­ustu á Íslandi. Algengt er að fólk ger­ist sjálf­boða­liðar og borgi frá um 1.000 og jafn­vel yfir 10.000 krónur á dag.[/caption]

Það getur slitið tengslin milli raun­veru­legrar þarfar þiggj­enda aðstoðar og sjálf­boða­túrista að þeir síð­ar­nefndu borgi fyrir að ger­ast sjálf­boða­túristar og fái að velja hvar. Það skapar hvata til að horft sé á ferða­menn í leit að því að gera góð­verk ein­ungis sem við­skipta­tæki­færi. Því verða til verk­efni á for­sendum ferða­manna, en ekki þeirra sem þurfa aðstoð eða þiggja hana. Ef eitt­hvað selur, þá mun ein­hver reyna að selja það. Og það að vinna á mun­að­ar­leys­ingja­heim­ili með krútt­legum og fátækum börnum á para­dísareyj­unni Zanzibar, alveg óháð því hvort það sé í raun ein­hverjum öðrum en sjálfum þér til góðs, selur svo sann­ar­lega.

Vantar þekkingu ekki vinnuafl


Það sem er þó ef til vill mik­il­væg­ara er að í fátæk­ustu löndum heims vantar alls ekki vinnu­afl, heldur er skortur á þekk­ingu, hæfni og fjár­magni það sem stendur þróun fyrir þrifum. Oft eru þeir sem ger­ast sjálf­boða­túristar nýkomnir úr mennta­skóla, með litla sem enga þekk­ingu eða reynslu af t.d. kennslu og enn síður þekk­ingu á sam­fé­lag­inu þar sem þeir vinna. Í ofaná­lag er algeng­ast að sjálf­boða­túristar starfi í fáeinar vikur. Því blasir við spurn­ingin: Hvernig getur slíkur ein­stak­lingur unnið að upp­bygg­ingu sam­fé­lags á sjálf­bæran hátt frekar en heima­maður? Samtök og fyr­ir­tæki í þess­ari atvinnu­grein virð­ast í það minnsta almennt ekki hafa miklar áhyggjur, því sér­fræði­þekk­ing og þekk­ing á menn­ingu er sjaldan skil­yrði fyrir því að ger­ast sjálf­boða­túristi.

[quote font="0" align="right"]Hvaða skila­boð sendir slíkt til sam­fé­lags­ins? Ef hvíti sjálf­boða­lið­inn frá Íslandi í Masaka hér­aði í Úganda á að vera betri kenn­ari en mennt­aði heima­mað­ur­inn, þrátt fyrir að hafa aldrei kennt, þekkja lítið til menn­ingar Baganda ætt­bálks­ins og tala ekki Luganda, sendir það frekar nið­ur­lægj­andi skila­boð til heima­manns­ins.[/quote]

Hvaða skila­boð sendir slíkt til sam­fé­lags­ins? Ef hvíti sjálf­boða­lið­inn frá Íslandi í Masaka hér­aði í Úganda á að vera betri kenn­ari en mennt­aði heima­mað­ur­inn, þrátt fyrir að hafa aldrei kennt, þekkja lítið til menn­ingar Baganda ætt­bálks­ins og tala ekki Luganda, sendir það frekar nið­ur­lægj­andi skila­boð til heima­manns­ins. Ein helsta gagn­rýnin sem þró­un­ar­að­stoð hefur fengið er sú að hún dragi úr hvötum fólks til að hjálpa sér sjálft og það er auð­velt að sjá hvernig er hægt að heim­færa það á túrista sem koma með pen­inga og vinna störf sem heima­menn geta í flestum til­vikum vel unnið sjálfir.

Nýlega tal­aði grein­ar­höf­undur við ungan sjálf­boða­liða sem starfar sem kenn­ari í Tansaníu, án mennt­unar, mik­illar reynslu og talar ekki sva­hílí-tungu­málið. Hún sagði frá því að kenn­arar í skól­anum hennar rifust um það hver fengi að láta „mzungu” (þýðir yfir­leitt Evr­ópu­búi og er víða notað í Austan og Sunn­an­verðri Afríku) kenna sínum bekk. Ástæðan er sú að kenn­ar­arnir gera ráð fyrir því að þessi sjálf­boða­túristi sé betri kenn­ari en þær sjálfar, ein­ungis vegna þess að hún er sjálf­boða­liði frá Vest­ur­löndum. Einfalt er að sjá hvernig slík við­horf geta dregið úr hvatn­ingu og því sjálfs­trausti sem þarf til að vinna sig upp úr fátækt.

[caption id="attachment_12981" align="alignnone" width="1024"] Margir þeirra sem fara í sjálf­boða­störf kenna börnum í fjar­lægum löndum án þess að búa yfir neinni sér­stakri þekk­ingu til þess að gera það.[/caption]

Virðingavert en gæti valdið skaða


Sjálf­boða­liða­starf getur almennt séð verið frá­bær leið til að láta gott af sér leiða og all­flestum þykir virð­ing­ar­vert þegar fólk leggur eitt­hvað á sig til að hjálpa þeim sem minna mega sín. Því miður gerir þó góð­mennskan lítið ein og sér til að hjálpa þeim fátæk­ustu í heim­inum. Með hana eina að vopni er hætta á að valda skaða. Klass­ískt dæmi er um for­eldra í Kambódíu sem fá borgað fyrir að senda börnin sín mun­að­ar­leys­ingja­heim­ili þar sem hjarta­hlýir ferða­menn og sjálf­boða­liðar dreifa gjöfum, faðma börnin og borga aðgang, rétt eins og um dýra­garð væri að ræða. Þessi vandi sjálf­boða­túrisma á líka við um þró­un­ar­að­stoð að vissu leyti. T.d. þegar íbúar í „slömm-um” á Indlandi eyði­leggja vatns­leiðslur í þeim til­gangi að telj­ast nógu fátækir til að eiga rétt á þró­un­arfé, eða árveitur í Tansaníu sem hafa meðal ann­ars þurrkað upp vot­lendi, eyði­lagt fiski­stofna og minnkað raf­magns­fram­leiðslu.

[quote font="0" align="right"]Í þró­un­ar­að­stoð er lyk­il­at­riði að vandað sé til verka og það sé á hreinu að allt sé gert í sam­ráði við þau sam­fé­lög sem unnið er í. [/quote]

Í þró­un­ar­að­stoð er lyk­il­at­riði að vandað sé til verka og það sé á hreinu að allt sé gert í sam­ráði við þau sam­fé­lög sem unnið er í. Dæmi um sóun og skaða þar eru ótal­mörg, en til eru einnig ógrynni af dæmum um hvernig þró­un­ar­að­stoð hefur bætt líf f miður virð­ist sem góð­mennska oga jhvernig veð m phæðirá­tækra til hins betra. Bókin Poor Economics eftir Abhijit Banerjee og Esther Duflo ber vitni um það, rétt eins og þró­una­sam­vinna okkar Íslend­inga.

Það sama á lík­lega við um sjálf­boða­túrisma og þró­un­ar­að­stoð - þeir sem vilja bæta heim­inn, þurfa að íhuga vel hvaða áhrif þeir hafa og vinna heima­vinn­una sína. Hér og hér eru nokkur ráð fyrir þá sem hafa áhuga á að fara í sjálf­boða­vinnu og í raun bæta líf fólks. Ef til vill er þó mun meiri hjálp fólgin í því við að ferð­ast til fátækra landa og/eða versla vörur og þjón­ustu af þeim fátæku. Það ýtir undir vöxt atvinnu­vega sem skapa raun­veru­leg verð­mæti - ekk­ert hjálpar löndum meira við að brjót­ast út úr fátækt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár