Margoft lagt til að auðlindasjóður verði stofnaður á Íslandi - en aldrei verið gert

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra sagði á árs­fundi Lands­virkj­unar í dag að hann vilji setja á stofn sér­stakan orku­auð­linda­sjóð hér á landi. Hluti af tekjum af orku­auð­lindum þjóð­ar­innar myndi renna í sjóð­inn þegar vel árar en hægt væri að nýta fjár­mun­ina í sjóðnum þegar illa áraði. Sjóð­ur­inn yrði þannig nokk­urs konar vara­sjóður.

Bjarni sagði rétta tím­ann til að stofna slíkan sjóð núna, og ætlar að leita stuðn­ings hjá þing­inu fyrir stofnun sjóðs af þessu tagi. Þetta er þó langt frá því að vera í fyrsta skipti sem hug­myndin um auð­linda­sjóð kemur fram á Íslandi. Ýmsar hug­myndir þess efnis hafa komið upp und­an­farin ár, þótt aldrei hafi þeim verið hrint í fram­kvæmd.

Þverpólitísk auðlindanefnd lagði til „þjóðarsjóð“ árið 2000


Alþingi ákvað árið 1998 að setja á fót auð­linda­nefnd sem svo skil­aði af sér nið­ur­stöðum í sept­em­ber árið 2000, en sú nefnd fjall­aði ítar­lega um gjald­töku af nýt­ingu nátt­úru­auð­linda. Sú nefnd lagði til að stofn­aður yrði þjóð­ar­sjóður, þangað sem tekjur af gjöldum af auð­lindum í þjóð­ar­eign yrðu settar. „Margt mælir með því að hluti þeirra [tekna, innsk. blaða­manns] gangi til að mynda sjóð sem almenn­ingur eigi aðild að og varið yrði til að efla þjóð­hags­legan sparnað og upp­bygg­ingu,“ stóð í nið­ur­stöðum nefnd­ar­innar. Gjald­töku af auð­lindum væri meðal ann­ars ætlað að tryggja þjóð­inni sýni­lega hlut­deild í þeim umfram­arði sem nýt­ing auð­linda í þjóð­ar­eign skap­aði.

Nefndin var þverpólítísk og kosin af Alþingi en í henni sátu Jóhannes Nordal, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri, sem var for­maður, Ari Edwald, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, Eiríkur Tómasson, pró­fessor, Guðjón Hjör­leifs­son, bæj­ar­stjóri í Vest­manna­eyjum, Lúðvík Berg­vins­son, alþing­is­maður, Margrét Frí­manns­dóttir, alþing­is­maður, Ragnar Árnason, pró­fessor, Styrmir Gunn­ars­son, rit­stjóri og Svan­fríður Jón­as­dóttir, alþing­is­maður.

Þegar Jón Sig­urðs­son var iðn­að­ar­ráð­herra, árið 2007, lagði hann fram frum­varp á Alþingi um breyt­ingar á lögum um rann­sóknir og nýt­ingu á auð­lindum í jörðu, en frum­varpið byggð­ist meðal ann­ars á störfum auð­linda­nefnd­ar­innar. Í því frum­varpi var miðað við að meg­in­reglan yrði sú að tekið væri upp gjald fyrir afnot á auð­lindum í eigu almenn­ings, bæði í jörðu og í vatns­afli. Frum­varpið náði hins vegar aldrei fram að ganga.

Jón Sig­urðs­son ræddi líka um mögu­lega stofnun auð­linda­sjóðs á Sprota­þingi sem haldið var árið 2007, þar sem hann sagð­ist telja að slíkur sjóður gæti tekið virkan þátt í efl­ingu nýsköp­unar- og sprota­kerfis, sem íslenska þjóðin þyrfti á að halda. Þannig yrði arði af auð­lindum varið til að byggja upp til fram­tíðar auk þess að greiða beint til almenn­ings.

Víglundur, Björgólfur og Sigurjón lögðu líka til stofnun sjóðs


Í milli­tíð­inni, árið 2006, hafði Víglundur Þor­steins­son, sem þá var stjórn­ar­for­maður BM Vallár, lagt til stofnun Íslenska auð­linda­sjóðs­ins ohf., sem allir íslenskir rík­is­borg­arar yrðu hlut­hafar í og fengju greiddan arð úr. Inni í sjóðnum yrðu allar sam­eig­in­legar auð­lindir þjóð­ar­innar og Lands­virkjun.

Á aðal­fundi Lands­bank­ans í apríl 2008 sagði Björgólfur Guð­munds­son, þáver­andi for­maður banka­ráðs bank­ans, að Íslend­ingar ættu að koma sér upp ein­hvers konar þjóð­ar­sjóði til að tryggja sig betur, mæta sveiflum og skapa stöð­ug­leika í efna­hags- og fjár­málaum­hverfi lands­ins. Sjóð­ur­inn ætti að hafa tekjur af auð­lindum lands og hug­viti. Nokkrum dögum síðar fjall­aði Frétta­blaðið um tæki­færin í orku­málum. Þar tók Sigurjón Árnason, þáver­andi banka­stjóri Lands­bank­ans, í sama streng og Björgólfur og sagði að ein hug­mynd væri stofnun auð­linda­sjóðs, sem yrði svip­aður olíu­sjóði Norð­manna. Þannig ætti að vera hægt að skapa meiri stöð­ug­leika í efna­hags­málum en hefði verið.

Geir Haarde og Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir, sem þá voru for­sætis- og utan­rík­is­ráð­herrar Íslands, tóku vel í hug­mynd Lands­banka­manna. Geir taldi hug­mynd­ina allrar athygli verða og Ingi­björg sagð­ist telja að slíkur sjóður gæti skipt miklu máli þegar takast þyrfti á við áföll í efna­hags­málum. Inn­heimta ætti almennt auð­linda­gjald fyrir nýt­ingu.

Líka lagt til um og eftir hrun


Í greinum í Morg­un­blað­inu í lok sept­em­ber 2008 lagði Helgi Hjörvar, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, til að stofn­aður yrði sér­stakur auð­linda­sjóður, sem næði yfir olíu­rétt, vatns- og hita­rétt­indi og rétt­inn til að nýta fisk­veiði­stofna lands­ins. Þetta var hluti af hug­myndum hans um það sem gera mætti til að styrkja efna­hags­lífið. „Þannig yrði tryggt að arð­ur­inn af nýt­ingu þeirra rynni í sam­eig­in­legan sjóð en einka­að­ilar gætu séð um nýt­ing­una, hvort sem er fisk­veiðar, vatns­út­flutn­ing eða orku­vinnslu.“

Í sam­starfs­yf­ir­lýs­ingu Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna árið 2009 var lagt til að stofna auð­linda­sjóð sem „fer með ráð­stöfun fisk­veiði­rétt­inda í eigu þjóð­ar­innar. Arður af rekstri sjóðs­ins renni til atvinnu­upp­bygg­ingar.“

Þá var einnig stofn­aður stýri­hópur um mótun heild­stæðrar orku­stefnu sem skil­aði til­lögum árið 2011 sem voru lagðar fyrir þingið. Oddný Harð­ar­dóttir, sitj­andi iðn­að­ar­ráð­herra, mælti svo fyrir skýrsl­unni í febr­úar 2012. Í til­lög­unum kom fram að setja ætti á fót sér­stakan sjóð þar sem haldið yrði utan um allar orku­auð­lindir rík­is­ins. „Sjóð­ur­inn muni bjóða út nýt­ing­ar­samn­inga til til­tek­ins hóf­legs tíma í senn og í skýrsl­unni er lagt til að sá tími verði til dæmis til 25–30 ára eða eftir eðli hvers virkj­un­ar­kosts að teknu til­liti til upp­hafs­fjár­fest­ingar og afskrifta­tíma,“ sagði Oddný.

Síðasta rík­is­stjórn setti einnig á fót nefnd um stefnu­mörkun í auð­linda­málum rík­is­ins, auð­linda­stefnu­nefnd, árið 2011, en hún skil­aði til­lögum haustið 2012. Sú nefnd lagði til stofnun auð­linda­sjóðs, til þess „að tryggja að auð­lindaarður og með­ferð hans verði sýni­leg.“

Og forsetinn, auðvitað


Ólafur Ragnar Grímsson for­seti Íslands hefur líka talað um sér­stakan auð­linda­sjóð, í tengslum við mögu­legan olíufund. Í við­tali við Bloomberg árið 2012 sagði hann að í bígerð væri að setja á stofn sér­stakan auð­linda­sjóð sem í myndu renna tekjur tengdar olíu, þar sem Íslend­ingar líti á þá auð­lind sem þjóð­ar­auð­lind. Það væri almenn stefna.

Stofnun auð­linda­sjóðs hefur einnig komið til tals á þessu þingi. Ólína Þor­varð­ar­dóttir, vara­þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, spurði Sigrúnu Magn­ús­dóttur umhverfis- og auð­linda­ráð­herra um málið og hvort hún teldi til bóta að slíkur sjóður yrði stofn­aður. Sigrún sagð­ist ekki telja það lyk­il­at­riði að búa til sér­stakan sjóð.

Ólína ræddi líka stofnun auð­linda­sjóðs við Ragn­heiði Elínu Árna­dóttur iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra í umræðum um nátt­úrupassa. Hún sagði þá að ef „menn hefðu haft þá fram­sýni fyrir þó nokkru að stofna auð­linda­sjóð og sam­ræma nýt­ingu allra auð­linda í land­inu“ væri ekki nauð­syn­legt að standa í umræðu um að taka gjöld af ein­stak­lingum í gegnum nátt­úrupassa. Ragn­heiður Elín sagði þetta vera „nákvæm­lega málið. Ég man reyndar ekki eftir umræðum um að stofna ein­hvern auð­linda­sjóð“ sagði ráð­herr­ann, og sagð­ist ekki muna eftir því að Ólína hafi lagt til á síð­asta kjör­tíma­bili stofnun slíks sjóðs. Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir þing­kona VG, og Birgitta Jóns­dóttir, þing­kona Pírata, tóku undir að ráð­ast ætti í stofnun auð­linda­sjóðs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár