Allt í lagi að eiga heimili sem lítur ekki út eins heimili annarra

Caroline Chéron vill per­sónu­legri og litaglað­ari heim­ili á Íslandi.

Allt í lagi að eiga heimili sem lítur ekki út eins heimili annarra

Franski inn­an­húss­stílist­inn Caroline Chéron flutti til Íslands fyrir tveimur árum ásamt eig­in­manni sínum og tveimur börnum. Fjöl­skyldan heill­að­ist af Íslandi þegar þau voru stödd hér á landi í sum­ar­fríi og ákváðu að hér vildu þau setj­ast að. Caroline og Benoit, eig­in­maður hennar, keyptu sér hús á Álfta­nesi og hún opn­aði hönn­un­ar­fyr­ir­tækið sitt, Bonjour Studio, á á Óðins­götu í miðbæ Reykja­víkur. Stúdíóið er ein­stak­lega nota­legt og fal­legt rými þar sem gefur að líta úrval af þeim vörum sem Caroline flytur inn til lands­ins frá Frakk­landi. „Þetta er sýn­ing­ar­rými og  verslun, fólk getur komið hingað og keypt sér sófa eða ljós, teppi, vegg­fóður eða aðra muni,“ útskýrir Caroline. „Svo getur fólk líka komið til mín til þess að fá ráð­gjöf um hönnun. Sem inn­an­húss­stílisti tek ég að mér alls konar verk­efni, bæði fyrir fyr­ir­tæki og heim­ili, og ég leit­ast við að búa til nýtt and­rúms­loft í rými með við­skipta­vinum mínum. Fólk er yfir­leitt upp­fullt af hug­myndum en skortir sjálfs­traust til að fram­kvæma þær og er hrætt við að gera mis­tök,“ segir hún. 

Veggfóður sem segir vá

Caroline býður upp á úrval af hágæða frönskum hönn­un­ar­vörum, þar á meðal Ligne Roset, sem eru frægir fyrir mjög sér­staka og lit­ríka sófa og gull­fal­leg vegg­fóður frá Elitis. „Ég veit að Íslend­ingar eru ekki mikið að nota vegg­fóður en ég  hef mikla ástríðu fyrir fal­legu vegg­fóðri. Mér finnst það alltaf bæta við þessum vá-áhrifum inn á heim­ili og geta jafn­vel verið eins og lista­verk. Ég er líka með óvenju­leg ljós, fal­leg teppi, borð, rúm og skápa.“

Spurð að því hvað henni finn­ist ein­kenna franskan stíl segir hún að franskur stíll sé sam­bland af alls konar mis­mun­andi stílum og áhrifum, bæði gam­al­dags og nútíma­legum. „Franskur stíll í hnot­skurn er að fagna öllu nýju án þess að gleyma for­tíð­inni. Frönsk hús á Bretagne-skag­anum eru til að mynda  allt öðru­vísi en hús í Suður-Frakk­landi. Við Frakkar lítum á inn­an­húss­stíl sem eitt­hvað per­sónu­bundið og sér­stakt sem passar við per­sónu­leika okkar og umhverfið. Franskur stíll er alltaf ein­hver blanda af litum, af því við hræð­umst ekki liti, og við teflum saman ólíkum efnum, við og marm­ara til dæmis eða flaueli, hör og silki. Við leggjum áherslu á hlý­legt and­rúms­loft.

Mér finnst stundum íslenski stíll­inn ekki nógu skap­andi, maður verður að hafa gaman af því að skreyta heim­ili sín.“

Heimili eru bómullarhjúpur

Hún segir að það hafi komið á óvart hvað Íslend­ingum er tamt að velja sömu hluti og aðrir gera inn á heim­ilin sín. 

„Ég veit að Ísland er lítil eyja og fámenn og að allir þekkja alla og fólk hefur áhyggjur af því hvað öðrum finnst. En mig langar svo að sann­færa fólk hér um að það sé mjög eðli­legt að eiga ekki heim­ili sem lítur nákvæm­lega eins út og heim­ili ann­arra. Við erum eins mis­jöfn og við erum mörg. Við elskum suma liti og hötum aðra. Heimili okkar eiga að vera ein­stök og per­sónu­leg. Mér finnst alveg ótrú­legt hvað það eru mörg grá og svart­hvít heim­ili á Íslandi. Mér finnst að fólk eigi að þora að velja það sem það elskar að sjá í kringum sig. Heimili okkar er athvarf, bómull­ar­hjúpur sem við eigum að vilja kasta okkur inn í og líða vel!“ 

Grænn er hinn nýi svarti 

Caroline segir hins vegar að hún hafi ekk­ert á móti svörtu og hvítu. „Auðvitað nota ég alltaf svart og hvítt, þessir litir eru mjög fág­aðir, ég elska svört hús­gögn og svört ljós, og hvít geta verið mjög glæsi­leg. En ég er sér­fræð­ingur í litum, þó að ég noti alltaf svart og hvítt með öðrum litum. Það er líka alltaf litur í hvítum og gráum tónum, til dæmis er tvö pró­sent gulur í hvítum eða gráum til að skapa hlýju, en tvö pró­sent rautt til að skapa nútíma­legt og líf­legt rými. Ég elska líka dökka liti, mjög dökk­bláan og mjög  dökk­grænan til dæmis, liti sem eru næstum því svartir.“

Spurð um hvaða litir séu í tísku úti í hinum stóra heimi í vetur seg­ist hún ekki vilja fylgja tísku­straumum í lita­vali. „Ef þú elskar app­el­sínugulan og hann er ekki í tísku, þá skiptir það mig engu máli. Ég vil bara að þú sért ánægð heima hjá þér. En ég gæti samt sagt þér að grænn er mjög mikið í tísku. Grænn er hinn nýi svarti virð­ist vera. Það sem er líka að koma mikið aftur eru drapp­aðir litir, brúnn, allir þessir nátt­úru­legu litir.“

Barna­her­bergiCaroline mælir með því að nota liti inni í barna­her­bergjum, því lita­gleði end­ur­speglar orku barna.
Hlýir tónarÍ þessu rými eru mildir og hlýir litir, sem henta líka vel fyrir barna­her­bergi.
Fyrir ung­ling­innCaroline segir mik­il­vægt að fólk sé óhrætt við að leyfa rým­inu að end­ur­spegla karakter eig­and­ans.
Per­sónu­legur stíllGræni lit­ur­inn er mikið í tísku núna, en Caroline leggur áherslu á að rýmið sé per­sónu­legt í stað þess að tísku­straumum sé fylgt í blindni.
EldhúsiðÁberandi vegg­fóður gleðja augað og gera hvert rými ein­stakt.
Óhefð­bund­inn stíllCaroline leggur áherslu á að velja hús­gögn og muni sem eru ekki alls staðar, heldur falla að smekk eig­and­ans og henta honum.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár