Gagnamagn sem Íslendingar nota í gegnum farsímakerfið fimmfaldast frá 2012

Íslenskt neyslu­sam­fé­lag hefur gjör­breyst und­an­farin ár sam­hliða auk­inni tækni­þróun. Ekkert hefur breytt því jafn­mikið og til­koma snjall­sím­ans. Íslend­ingar eru mjög fram­ar­lega í eign á snjall­símum, enda vana­lega afar fljótir að til­einka sér tækninýj­ungar. Í könnun sem MMR fram­kvæmdi snemma haustið 2013 kom í ljós að 66,4 pró­sent lands­manna ættu snjall­síma. Tveimur árum áður var hlut­fall þeirra 38 pró­sent. Til sam­an­burðar sögð­ust 68 pró­sent Breta eiga snjall­síma, 52 pró­sent Banda­ríkj­anna og 64 pró­sent Rússa í lok árs 2013. Óhætt er að álykta að snjall­síma­eign hafi vaxið enn meira á því einu og hálfa ári sem liðið er síðan að könnun MMR var gert.

Sú ályktun fær stuðn­ing í þeim upp­lýs­ingum sem koma fram í nýrri töl­fræði­skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar um íslenska fjar­skipta­mark­að­inn á árinu 2014, sem var birt á mánu­dag. Það er nefni­lega ekki til nein betri mæli­stika á þá breyt­ingu sem orðið hefur á neyslu­hegðun Íslend­inga með almennri eign á snjall­símum en sú aukn­ing á not­uðu gagna­magni sem orðið hefur. Í skýrsl­unni kemur fram að frá árinu 2012 hefur notk­unin fimm­fald­ast. Bara á síð­asta ári einu saman rúm­lega tvö­fald­að­ist hún.

Það þýðir að neyt­endur eru að vafra um inter­netið, ná sér í fréttir, horfa á afþr­ey­ingu, panta sér mat, mæla svefn eða hreyf­ingu, spila leiki, eiga sam­skipti og gera allt hitt sem nútím­inn býður upp á í gegnum tölv­una í vas­anum sínum, snjall­sím­ann, í sífellt auknum mæli.

Notað gagna­magn á far­síma­neti

|

Create infographics

Færsla inn í tíu sinnum hraðari heim 4G

Ástæðan fyrir þess­ari miklu breyt­ingu er sú að far­síma­tíma­bil fjar­skipta­geirans er að líða undir lok og gagna­flutn­inga­tíma­bilið að taka við. Tíðni­heim­ildir fyrir 3G, fyrsta háhraða­kyn­slóð far­síma­nets­kerfið, voru boðnar út á Íslandi í lok árs 2006. Kerfið er í raun mun frekar net­kerfi en far­síma­kerfi og gerði gagna­flutn­ing mögu­legan. Allt í einu var mögu­legt að hlaða niður tón­list, horfa á kvik­myndir eða þætti í sím­anum sínum.

Nú stendur næsti fasi yfir. 4G-væð­ingin er í fullum gangi. Skrefið sem verður tekið upp á við með henni er stærra en margir átta sig á. Hraðinn á 4G-teng­ingu er tíu sinnum hrað­ari en í 3G og um þrisvar sinnum hrað­ari en hröð­ustu ADSL-teng­ingar.

Færsla Íslend­inga inn í hinn hraða heim 4G átti sér stað í fyrra. Fjöldi þeirra sem eru með 4G-kort í sím­anum sínum fimm­fald­að­ist á síð­asta ári. Nú eru 29,6 pró­sent allra virkra síma­korta 4G-kort og 62,6 pró­sent eru 3G-kort. Fjöldi þeirra sem er með 2G-kort dróst að sama skapi saman um tæp­lega eitt hund­rað þús­und á síð­asta ári og um síð­ustu ára­mót voru ein­ungis um 32 þús­und slík kort í umferð. Ugglaust hefur inn­leið­ing raf­rænna skil­ríkja, sem tengj­ast 4G-net­inu og þurfti meðal ann­ars til að sam­þykkja skulda­leið­rétt­ingu rík­is­stjórn­ar­innar, haft umtals­vert um það að segja hversu hratt 4G-síma­korta­eign hefur vaxið á síð­asta ári.

Fjöldi þeirra sem eru í 4G-heimi mun aukast hratt á næstu árum. Síminn, Nova, Vodafone og 365-miðlar hafa öll fengið úthlutað tíðnum til að byggja upp 4G þjón­ustu og enn er ýmis­legt ógert í þeim efnum. Aðgengið mun því aukast enn á næstu árum. Fjar­skipta­fyr­ir­tækin eru ekki öll að njóta hinnar miklu aukn­ingar á notkun gagna­magns til jafns.

Nova er í algjörum sér­flokki þegar kemur að þeirri notkun. Við­skipta­vinir fyr­ir­tæk­is­ins not­uðu tæp­lega 75 pró­sent alls gagna­magns sem notað var á Íslandi í fyrra. Það má því segja að Nova hafi veðjað á réttan hest þegar fyr­ir­tækið ákvað að höfða til yngstu not­end­anna á árdögum starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins með því að gefa frí sím­töl og SMS skila­boð innan kerfis. Sú kyn­slóð sem þá gekk til liðs við fyr­ir­tækið er síðan orðin fyrsta kyn­slóð stórnot­enda snjall­síma.



Nova sækir á Símann á farsímamarkaði


Fólk hringir hins vegar líka úr snjall­sím­anum sínum. Og á far­síma­mark­aði er Síminn enn með sterkasta stöðu, þótt Nova nálgist fyr­ir­tækið mjög hratt. Alls eru við­skipta­vinir Símans í far­síma­þjón­ustu rúm­lega 148 þús­und tals­ins á meðan að við­skipta­vinir Nova eru um 137 þús­und tals­ins.

Við­skipta­vinum Nova hefur fjölgað mjög hratt síð­ustu ár, eða um 24 þús­und síðan í lok árs 2012. Á sama tíma hefur Síminn haldið nán­ast sama fjölda við­skipta­vina sem hann hafði þá.

Mark­aðs­hlut­deild á far­síma­mark­aði 2014

|

Create infographics

Athygli vekur hins vegar hversu stór hluti við­skipta­vina Nova eru með fyr­ir­fram­greidd síma­kort, eða alls 90 þús­und. Það þýðir að tveir af hverjum þremur sem eru í við­skiptum hjá félag­inu eru í frels­is­þjón­ustu. Hlutfall við­skipta­vina Símans sem eru í frelsi er 25 pró­sent og hjá Vodafone er það 28 pró­sent. Restin er í fastri áskrift­ar­þjón­ustu sem skilar stöðugri og meiri tekjum.

Vodafone hefur upp­lifað nokkrar sveiflur síð­ustu ár. Í lok árs 2012 voru við­skipta­vinir fyr­ir­tæk­is­ins í far­síma­þjón­ustu um 115 þús­und tals­ins en fækk­aði um sjö þús­und á árinu 2013. Vodafone hefur náð vopnum sínum að ein­hverju leyti að nýju og um síð­ustu ára­mót voru við­skipta­vinir fyr­ir­tæk­is­ins orðnir tæp­lega 114 þús­und.

365 sam­ein­að­ist Tali í des­em­ber 2014 og tók þar með yfir far­síma­við­skipti síð­ar­nefnda fyr­ir­tæk­is­ins. Þeir voru alls rúm­lega þrettán þús­und um síð­ustu ára­mót og hefur fækkað tölu­vert und­an­farin ár. Tal var til að mynda með um 20 þús­und við­skipta­vini í lok árs 2012.

SMS að detta úr tísku

Sú var tíðin að SMS skila­boða­send­ingar voru einn helsti sam­skipta­máti Íslend­inga. Sú tíð er liðin og í skýrsl­unni kemur fram að send­ingu slíkra skila­boða heldur áfram að fækka. Slík fækkun átti sér fyrsta stað á árinu 2013 þegar send voru um 214 millj­ónir SMS skila­boða, um tveimur millj­ónum færri en árið áður. Í fyrra fækk­aði þeim enn frekar, þegar 204 millj­ónir slíka skila­boða voru send.

Við­skipta­vinir Nova eru lang­dug­leg­astir að senda SMS, en þeir sendu alls 67,4 pró­sent allra SMS-a send voru á síð­asta ári.


Þessi hnignun SMS-ins á fyrst og síð­ast rætur sinar að rekja til upp­gangs sam­skipta­for­rita á vegum Facebook, Apple og fleiri slíkra aðila. Slík for­rit eru í sífelldri sókn sam­hliða auk­inni notkun far­síma.

Stöðnun á internetmarkaði


Það virð­ist nán­ast ekk­ert hafa hreyfst að neinu viti á íslenskum inter­net­mark­aði á síð­asta ári. Síminn tapar að vísu tæp­lega 800 við­skipta­vinum en er samt sem áður með helm­ing mark­að­ar­ins með um 60 þús­und við­skipta­vini. Vodafone stendur nán­ast í stað líka, tapar 900 við­skipta­vinum, og er með tæp­lega 30 pró­sent hlut­deild.

365 miðlar hófu að bjóða upp á fjar­skipta­þjón­ustu með síma og inter­neti í haustið 2013. Tal var síðan rennt inn í 365 í des­em­ber 2014 og því er nýja töl­fræði­skýrsla Póst- og fjar­skipta­stofn­unar sú fyrsta sem sýnir sam­eig­in­legan árangur hins sam­ein­aða fyr­ir­tækis. Þótt bæst hafi við kúnna hóp þess þá er mark­aðs­hlut­deild 365 enn sem komið er ein­ungis um 13 pró­sent. Við­skipta­vin­irnir voru sam­tals 15.500 um síð­ustu ára­mót, sem er um tvö þús­und fleiri en 365 og Tal voru sam­an­lagt með í lok árs 2013.

Til ein­föld­unar má segja að 365 hafi tek­ist að ná til sín mestum hluta af þeirri aukn­ingu sem varð á teng­ingum milli ára, þeim fjölg­aði um 2.200, en ekki tek­ist að höggva skarð í mark­aðs­hlut­deild stóru fyr­ir­tækj­anna á mark­aði, Símans og Vodafone. Aðrir á mark­aði voru sam­tals með 7,6 pró­sent mark­aðs­hlut­deild og þar af var Hringdu með um helm­ing.

Mikil velta og aukin fjárfesting


Í skýrsl­unni eru lika teknar saman heild­ar­tekjur af fjar­skipta­starf­semi á árinu. Samtals velti geir­inn um 52,3 millj­örðum króna í fyrra sem er aukn­ing um tæpa tvo millj­arða króna frá árinu á undan og um fjóra millj­arða króna frá árinu 2012.

Heild­ar­tekjur af fjar­skipta­starf­semi

|

Create infographics

Samhliða hefur fjár­fest­ing í fjar­skipta­starf­semi auk­ist umtals­vert. Árið 2012 eyddu fyr­ir­tækin á mark­aðnum 5,9 millj­örðum króna í fjár­fest­ingar en í fyrra var sú upp­hæð 7,9 millj­arða króna. Það er þriðj­ungs­aukn­ing á ein­ungis tveimur árum. Athygli vekur að mest var fjár­fest í fasta­net­inu í fyrra, eða fyrir um 2,8 millj­arða króna. Það er um 1,1 millj­arði krónum meira en á árinu 2013. Fjár­fest­ing í far­síma­rekstri var um tveir millj­arðar króna.


Það er hins vegar lýsandi fyrir stöðu hins hefð­bundna tal­síma að fjar­skipta­fyr­ir­tækin eyddu ein­ungis 78 millj­ónum króna í að upp­færa hans kerfi á síð­asta ári, eða tæp­lega einu pró­senti af heild­ar­fjár­fest­ingu sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár