Ólafur Ólafsson var dæmdur í fangelsi á grundvelli misskilnings, segir eiginkona hans

Ingi­björg Krist­jáns­dóttir, eig­in­kona Ólafs Ólafs­sonar, segir að eig­in­maður sinn hafi verið dæmdur í fjög­urra og hálfs árs fang­elsi í Hæsta­rétti í Al Thani-mál­inu svo­kall­aða á grund­velli mis­skiln­ings. Þetta kemur fram í grein sem hún ritar í Frétta­blaðið í dag sem ber heitið „Al Thani dóm­ur­inn og nið­ur­staða Hæsta­réttar“.

Í grein­inni segir að í upp­hafs­for­sendur dóms­ins vísi Hæstiréttir til sím­tals í gögnum máls­ins þar sem ítrekað komi fram að rætt hafi verið við „Óla“ um nákvæma útfærslu við­skipt­anna. „Hæsti­réttur fer manna­villt í rök­stuðn­ingi sínum og ályktar að hér sé átt við eig­in­mann minn, Ólaf Ólafsson, en hið rétta er að um er að ræða lög­fræð­ing með sama for­nafni sem er sér­fræð­ingur í lögum um kaup­hall­ar­við­skipti,“ segir Ingi­björg í grein sinni. Hún full­yrðir að bæði ákæru­valdið og hér­aðs­dómur hafi áttað sig á því að umrætt sím­tal var ekki við Ólaf, eig­in­mann hennar.

Ingi­björg telur þennan mis­skiln­ing vera grafal­var­legan þar sem Hæsti­réttur dragi, að hennar mati, mjög víð­tækar álykt­anir af sam­tal­inu strax í upp­hafi dóms síns.

Hún veltir einnig fyrir sér af hverju Al Thani-frænd­urnir tveir, sem málið er kennt við, voru ekki ákærðir. „Ef við gefum okkur að ákæran sé sann­leik­anum sam­kvæm, þá hljóta þessir menn að vera jafn sekir og aðrir er tengj­ast mál­inu.“ Kjarninn skrif­aði frétta­skýr­ingu um ástæður þess skömmu eftir að dóm­ur­inn féll.

Opinber umræða hafði úrslitaáhrif


Ingi­björg segir að Al Thani-málið hafi snemma lent í brennid­epli umræðu sem hafi mót­ast af miklum til­finn­inga­hita og reiði sem hafi komið í kjöl­far banka­hruns­ins. Hún hafi hins vegar alltaf staðið í þeirri trú að „opin­ber umræða myndi ekki hafa úrslita­á­hrif á fag­lega vinnu dóm­ara Hæsta­réttar. Ég trúði því og treysti að þeir stæðu fast á gildum rétt­ar­rík­is­ins að við­lögðu dreng­skap­ar­heiti sínu. Nið­ur­staða Hæsta­réttar kom því sem reið­ar­slag og gengur gegn gögnum máls­ins.“

Ingi­björg segir dóm­ara Hæsta­réttar allt í senn hafa klæðst fötum rann­sak­enda, sak­sókn­ara og dóm­ara í mál­inu. Það sé hins vegar nauð­syn­legt að tjá sig, gagn­rýna og segja skoðun sína, enda sé það einn af horn­steinum rétt­ar­rík­is­ins. „Að mínu mati er þöggun um jafn­mik­il­vægt mál­efni hættu­leg sam­fé­lag­inu, hættu­leg leið til að kom­ast upp með ofbeldi af verstu teg­und.“

Frétta­blaðið ræðir einnig í for­síðu­frétt um grein­ina við lög­mann Ólafs, Þórólf Jónsson. Hann seg­ist ekki geta séð annað en að miðað við orða­lag Hæsta­réttar þá sé mis­skiln­ingur að ræða varð­andi hvaða „Óla“ sé verið að ræða við og að „úrslit máls­ins hefðu getað orðið önnur ef réttur skiln­ingur hefði verið á.“ Um sé að ræða grund­vall­ar­at­riði sem margt í mál­inu hvíli á. Næstu skref séu til skoð­unar. Hægt sé að óska eftir end­ur­upp­töku á grund­velli mis­skiln­ings.

[caption id="attachment_20041" align="alignnone" width="624"] Ingi­björg segir að ákæru­valdið hafi vitað að um rangan Óla hafi verið að ræða. Ólafur Þór Hauksson er sér­stakur sak­sókn­ari.[/caption]

Aðstandendur fóru saman yfir dóminn


Ingi­björg skipu­lagði fund með aðstand­endum sak­born­inga í mál­inu sem fram fór á Hilton hót­el­inu snemma í mars. Um 250 manns mættu á fund­inn. Við­skipta­blaðið greindi frá því á sínum tíma. Í umfjöllun blaðs­ins sagði að verj­andi Hreiðars Más Sig­urðs­sonar, Hörður Felix Harð­ar­son, og verj­andi Sigurðar Ein­ars­sonar, Ólafur Eiríks­son, hafi tekið til máls á fund­inum og farið yfir dóm­inn. Auk þess mætti Jón Steinar Gunn­laugs­son, fyrrum hæsta­rétt­ar­dóm­ari, á fund­inn og lýsti skoðun sinni á dómnum.

Ólafur sagði sjálfur í sam­tali við Reuters frétta­stof­una skömmu eftir að dóm­ur­inn féll að íslenskir stjórn­mála­menn hafi gert banka­geir­ann að blóra­böggli fyrir þeirra eigin mis­tökum. „Ég held að dóm­ar­arnir hafi fyrst ákveðið hver útkoman ætti að vera og svo skrifað dóm­inn“.

„Ísland er mjög lítil land…Veggirnir á milli stjórn­mála­manna og emb­ætt­is­manna eru þunnir. Stjórn­mála­menn­irnir ákváðu að setja allan fókus á banka­geir­ann, en að rann­saka ekki það sem aflaga fór í efna­hags­kerf­inu, sem er á þeirra ábyrgð“.

[caption id="attachment_20620" align="alignnone" width="959"] Ingi­björg veltir fyrir sér í grein sinni af hverju Al Thani-frænd­urnir voru ekki ákærðir.[/caption]

Alvarlegustu efnahagsbrot Íslandssögunnar


Dómur féll í Al Thani-mál­inu þann 12. febr­úar síð­ast­lið­inn. Þar voru þeir Sigurður Ein­ars­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, og Ólafur Ólafsson, sem átti tæp­lega tíu pró­sent hlut í Kaup­þingi fyrir fall hans, voru allir dæmdir sekir. Hreiðar Már fékk fimm og hálfs árs fang­elsi, Sigurður fjögur ár, Ólafur og Magnús fjögur og hálft ár.

Al-Thani málið, sem er eitt umfangs­mesta efna­hags­brota­mál sem komið hefur á borð dóm­stóla hér á landi, á rætur að rekja til hluta­bréfa­kaupa sheikh Mohammad Bin Khalifa Al-Thani frá Katar hinn 22. sept­em­ber 2008 en félag hans keypti 5,01 pró­senta hlut í Kaup­þingi banka fyrir 25,7 millj­arða króna með láni frá bank­anum.

Í dómi Hæsta­réttar um ákvörðun refs­ingar segir m.a.: „Háttsemi ákærðu sam­kvæmt þessum köflum ákæru fól í sér alvar­legt trún­að­ar­brot gagn­vart stóru almenn­ings­hluta­fé­lagi og leiddi til stór­fellds fjár­tjóns. Brotin sam­kvæmt III. og IV. kafla ákæru beindust í senn að öllum almenn­ingi og fjár­mála­mark­að­inum hér á landi í heild og verður tjónið, sem leiddi af þeim beint og óbeint, ekki metið til fjár. Þessi brot voru stórum alvar­legri en nokkur dæmi verða fundin um í íslenskri dóma­fram­kvæmd varð­andi efna­hags­brot.“

Allir hinir dæmdu utan við Magnús Guð­munds­son hafa hafið afplánun á dómum sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár