Ólafur Ólafsson: Al Thani dómurinn var fyrirfram ákveðinn

Ólafur Ólafsson, sem var í síð­ustu viku dæmdur í fjög­urra og hálfs árs fang­elsi fyrir sinn hlut í Al Thani mál­inu, ásakar íslenska stjórn­mála­menn um að gera banka­geir­ann að blóra­böggli fyrir þeirra eigin mis­tökum. „Ég held að dóm­ar­arnir hafi fyrst ákveðið hver útkoman ætti að vera og svo skrifað dóm­inn,“ segir Ólafur í sam­tali við Reuters frétta­stof­una.

„Ísland er mjög lítil land...Veggirnir á milli stjórn­mála­manna og emb­ætt­is­manna eru þunnir. Stjórn­mála­menn­irnir ákváðu að setja allan fókus á banka­geir­ann, en að rann­saka ekki það sem aflaga fór í efna­hags­kerf­inu, sem er á þeirra ábyrgð“.

Ætlar að mæta í afplánun


Ólafur, sem býr í Sviss, segir að hann muni snúa aftur til Íslands þegar hann verði boð­aður til afplán­una. Það gæti gerst á næstu vikum.

Að sögn Ólafs er ekki gott að stinga hausnum í sand­inn eins og strútur heldur þurfi menn að mæta þeim áskor­unum sem lífið kasti að þeim.

[quote font="0" align="right"]Ólafur hefur til­kynnt að hann ætli að vísa máli sínu til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu en við­ur­kennir í sam­tal­inu við Reuters að hann sé ekki von­góður um að málið verði tekið þar fyrir.[/quote]

Ólafur hefur til­kynnt að hann ætli að vísa máli máli sínu til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu en við­ur­kennir í sam­tal­inu við Reuters að hann sé ekki von­góður um að málið verði tekið þar fyrir.

Alvarlegasta efnahagsbrot Íslandssögunnar


Dómur Hæsta­réttar í Al Thani mál­inu féll í síð­ustu viku. Þar voru allir sak­born­ingar dæmdir sækir. Þeir eru Sigurður Ein­ars­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, og Ólafur Ólafsson, sem átti tæp­lega tíu pró­sent hlut í Kaup­þingi fyrir fall hans. Hreiðar Már fékk fimm og hálfs árs fang­elsi, Sigurður fjögur ár, Ólafur og Magnús fjögur og hálft ár.

Í dómi Hæsta­réttar um ákvörðun refs­ingar segir m.a.: „Háttsemi ákærðu sam­kvæmt þessum köflum ákæru fól í sér alvar­legt trún­að­ar­brot gagn­vart stóru almenn­ings­hluta­fé­lagi og leiddi til stór­fellds fjár­tjóns. Brotin sam­kvæmt III. og IV. kafla ákæru beindust í senn að öllum almenn­ingi og fjár­mála­mark­að­inum hér á landi í heild og verður tjónið, sem leiddi af þeim beint og óbeint, ekki metið til fjár. Þessi brot voru stórum alvar­legri en nokkur dæmi verða fundin um í íslenskri dóma­fram­kvæmd varð­andi efna­hags­brot.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár