Hringborðsumræðum með Rússum ekki frestað vegna ásakana þeirra

Hösk­uldur Þór­halls­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­seti Norð­ur­landa­ráðs, segir ákvörðun um að fresta fyr­ir­hug­uðum hring­borðsum­ræðum ráðs­ins með rúss­neskum þing­mönnum ekki tengj­ast ásök­unum Rússa í garð Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar, þar sem nefndin var sökuð um póli­tíska starf­semi í Rúss­landi. Kjarninn greindi frá mál­inu í jan­úar, en Norræna ráð­herra­nefndin hætti starf­semi í Rúss­landi í kjöl­farið. Þessi mál voru til umræðu á örþingi Norð­ur­landa­ráðs sem fram fór nýverið í Kaup­manna­höfn.

For­sætis­nefnd Norð­ur­landa­ráðs hefur greint frá því að Norð­ur­landa­ráð vilji fresta áður­nefndum hring­borðsum­ræðum með rúss­neskum þing­mönnum sem og náms­ferð nor­rænna þing­manna til Rúss­lands, sem voru á dag­skrá í vor.

Almennur erill opinbera ástæðan


Kosn­ingar í Finn­landi og almennur erill í nor­rænu þjóð­þing­unum eru meg­in­á­stæður frest­un­ar­innar, sam­kvæmt frétta­til­kynn­ingu frá Norð­ur­landa­ráði. Á síð­asta ári varð ástandið í Úkraínu til þess að ráðið ákvað að fresta hring­borðsum­ræðum með Rússum sem fara áttu fram í Stokk­hólmi síð­asta vor. Víð­tæk­ari fundur með með rúss­neskum þing­mönnum var hins vegar hald­inn á þingi Norð­ur­landa­ráðs í Stokk­hólmi í októ­ber.

„Við erum bara að óska eftir nýjum tíma, en hvenær sá tími verður það, er ekk­ert hægt að segja til um það,“ segir Hösk­uldur Þór­halls­son, for­seti Norð­ur­landa­ráðs, í sam­tali við Kjarnann. Þá segir hann að ein­hugur sé innan ráðs­ins um að óska eftir frest­un­inni.

Aðspurður um hvort sam­skipti Rússa og Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar hafi spilað inn í ákvörðun for­sætis­nefndar Norð­ur­landa­ráðs að fresta hring­borðsum­ræðum við Rússa, kvað Hösk­uldur svo ekki vera. „Við styðjum Norrænu ráð­herra­nefnd­ina heils­hugar, og við höfum ályktað og gagn­rýnt mjög fram­ferði Rúss­lands innan Norð­ur­landa­ráðs, sem var í fyrsta skipti sem Norð­ur­landa­ráð ályktar um utan­rík­is­mál. Núna tökum við þessa ákvörðun og segjum að þessi tími henti ekki og það er afstaðan sem við gefum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár