Norræna ráðherranefndin hættir starfsemi í Norðvestur-Rússlandi

Norrænu sam­starfs­ráð­herr­arnir ákváðu á fundi sínum í Græn­landi í dag að loka upp­lýs­inga­skrif­stofum Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar í Norð­vestur-Rúss­landi um "óákveð­inn tíma". Ákvörð­unin kemur í kjöl­far þess að Rússland ákvað að skil­greina skrif­stofu nefnd­ar­innar í Pét­urs­borg sem útlenskur erind­reki í Rúss­landi, en sú ákvörðun var tekin 12. jan­úar síð­ast­lið­inn. Í skrif­legu svari starfs­manns ráð­herra­nefnd­ar­innar við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið á sínum tíma sagði að í bréfi sak­sókn­ara í Pét­urs­borg vegna þessa hefðu komið fram ásak­anir um að nefndin stund­aði póli­tíska starf­semi í Rúss­landi.

Samkvæmt rúss­neskum lögum ber félaga­sam­tökum sem stunda póli­tíska starf­semi, og eru fjár­mögnuð erlendis frá, að skrá sig sem útlenskan erind­rekar. Skrif­stofur ráð­herra­nefnd­ar­innar í Rúss­landi hafa hins vegar haft stöðu frjálsra félaga­sam­taka frá því að hún var opnuð árið 1995.

Ekki forsendur til að reka skrifstofuna áfram


Í frétt á vef Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar vegna þessa er haft eftir Carsten Hansen, danskur for­maður nor­rænu sam­starfs­ráð­herr­anna, að ákvörðun Rúss­lands um að skil­greina skrif­stof­una í Pét­urs­borg sem útlenskan erind­reka, eða "erlendan aðila", hafi valdið því að ákvörð­unin um að hætta starf­semi hefur nú verið tekin. „Rík­is­stjórnir nor­rænu land­anna telja það óásætt­an­legt að halda starf­sem­inni áfram sem erlendur aðili. Í augna­blik­inu eru ekki for­sendur til þess að skrif­stofan starfi áfram. Starf­semi Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar í Norð­vestur-Rúss­landi hefur það mark­mið að bæta tengsl og sam­skipti milli Norð­ur­landa og Norð­vestur-Rúss­lands, og það getum við ekki gert sem erlendur aðili.“

Dagfinn Høy­bråten, fram­kvæmda­stjóri Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar, segir að nefndin hafi haft umfangs­mikla starf­semi í Rúss­landi. „Hún verður ekki lögð niður á einni nóttu heldur mun það útheimta mikla vinnu og end­ur­skipu­lagn­ingu yfir­valda, sam­starfs­að­ila og starfs­fólks.“

Ákvörð­unin mun hafa áhrif á sam­tals tutt­ugu starfs­menn sem starfa á skrif­stof­unum í Norð­vestur-Rúss­landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár