Rússar saka Norrænu ráðherranefndina um pólitíska starfsemi

Skrif­stofu Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar í Pét­urs­borg barst á mánu­dag­inn bréf frá sak­sókn­ara í borg­inni þar sem hann krefst þess að skrif­stofan verði taf­ar­laust skráð sem útlenskur erind­reki í Rúss­landi. Þetta kemur fram í frétt á heima­síðu Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar. Samkvæmt skrif­legu svari frá starfs­manni ráð­herra­nefnd­ar­innar við fyr­ir­spurn Kjarnans koma fram ásak­anir í bréfi sak­sókn­ar­ans á hendur nefnd­inni um að hún stundi póli­tíska starf­semi í Rúss­landi.

Samkvæmt rúss­neskum lögum ber félaga­sam­tökum sem stunda póli­tíska starf­semi, og eru fjár­mögnuð erlendir frá, að skrá sig sem útlenskan erind­rekar. Skrif­stofur ráð­herra­nefnd­ar­innar í Rúss­landi hafa hins vegar haft stöðu frjálsra félaga­sam­taka frá því að hún var opnuð árið 1995.

Skoða að áfrýja ákvörðun rússneskra yfirvalda

Dagfinn Høy­bråten, fram­kvæmda­stjóri ráð­herra­nefnd­ar­innar, segir ákvörðun Rússa hafa komið á óvart, að því er fram kemur í áður­nefndri frétt á heima­síðu nefnd­ar­innar. „Und­an­farna tvo ára­tugi hefur Norræna ráð­herra­nefndin átt mikið og traust sam­starf við Norð­vestur-Rússland. Því kemur það flatt upp á okkur að eiga nú að skrá okkur sem útlenskan erind­reka. Við skoðun nú þann mögu­leika að áfrýja ákvörð­un­inni.“


Høy­bråten ítrekar að skrif­stofa Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar í Pét­urs­borg stundi enga póli­tíska starf­semi í Rúss­landi. Hann segir að skrif­stofan hafi starfað á grund­velli samn­ings við rúss­nesk yfir­völd sem gerður var árið 1995 þegar skrif­stofa nefnd­ar­innar opn­aði í Pét­urs­borg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár