Sýslumaður veitir skemmtistaðnum Austur viðvörun vegna ólöglegs rekstrarfyrirkomulags

Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur veitt einka­hluta­fé­lag­inu 101 Aust­ur­stræti form­lega við­vörun vegna rekst­urs skemmti­stað­ar­ins Austurs, vegna leyf­is­lausrar starf­semi. Þetta kemur fram í bréfi sem sýslu­maður hefur sent for­svars­mönnum einka­hluta­fé­lags­ins, og Kjarninn hefur undir höndum. Frétta­vef­ur­inn Vísir greindi fyrst frá mál­inu, en hægt er að lesa bréf sýslu­manns hér.

Eigandi kærði skemmtistaðinn sinn


Viðvörun sýslu­manns má rekja til til­kynn­ingar Kamran Keivanlou, sem á helm­ings­hlut í 101 Aust­ur­stræti ehf. í gegnum félagið Alfacom Trading, til emb­ætt­is­ins þann 16. febr­úar síð­ast­lið­inn. Þar var full­yrt að sala áfengra veit­inga á skemmti­staðnum væri nú í höndum ann­ars félags, Aust­ur­strætis 5 ehf. Full­yrð­ing­arnar voru meðal ann­ars studdar með posa­kvitt­unum úr greiðslu­kerfi stað­ar­ins þar sem nafn Aust­ur­strætis 5 kemur fram sem færslu­hirðir.

Sýslu­maður segir sölu áfengra veit­inga háða útgefnu rekstr­ar­leyfi stað­ar­ins, sem er skráð á 101 Aust­ur­stræti ehf., og Aust­ur­stræti 5 ehf. hafi ekki fengið útgefið leyfi fyrir umræddri starf­semi. Í bréfi sýslu­manns er skorað á 101 Aust­ur­stræti að bæta úr þessum ann­mörkum á rekstr­inum svo ekki þurfi að koma til aðgerða lög­reglu sam­kvæmt lögum, þar sem stöðva skal leyf­is­skylda starf­semi sem fram fer án til­skil­ins leyfis.

Kærur og ásakanir ganga á milli eigenda Austur


Athafna- og fjöl­miðla­mað­ur­inn Ásgeir Kol­beins­son og félag í eigu Styrmis Þórs Gunn­ars­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra MP banka, sem eiga helm­ings­hlut í 101 Aust­ur­stræti ehf. á móti Alfacom, hafa stefnt félag­inu fyrir van­efndir á kaup­samn­ingi. Samkvæmt kaup­samn­ingnum hugð­ist Alfacom kaupa allt hlutafé í 101 Aust­ur­stræti, og greiddi helm­ing kaup­verðs­ins við und­ir­ritun.

Alfacom hefur lagt fram gagn­stefnu í mál­inu, og krefst rift­unar á kaup­samn­ingnum vegna van­efnda selj­enda, auk þess að lög­regla stöðvi ólög­legan rekstur skemmti­stað­ar­ins. Eins og Kjarninn greindi frá á dög­unum hefur Kamran Keivanlou kært Ásgeir Kol­beins­son og fleiri til lög­reglu og sér­staks sak­sókn­ara vegna meints fjár­dráttar. Þá hefur Ásgeir sömu­leiðis kært Kamran til lög­reglu fyrir hót­anir. Kæra Ásgeirs byggir á hljóð­upp­töku af meintu sam­tali hans og Kamran.

Kjarninn sagði sömu­leiðis frá rann­sókn lög­reglu og sýslu­manns á því hvort núver­andi rekstr­ar­fyr­ir­komu­lag Austur brjóti gegn núgild­andi rekstr­ar­leyfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár