Ásgeir Kolbeins kærir meðeiganda að Austur til lögreglu vegna hótana

Fjöl­miðla- og athafna­mað­ur­inn Ásgeir Kol­beins­son hefur kært Kamran Keivanlou, einn með­eig­anda sinn að félag­inu 101 Aust­ur­stræti ehf., sem er leyf­is­hafi og rekstr­ar­að­ili skemmti­stað­ar­ins Austur, til lög­reglu fyrir hót­anir í sinn garð. Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu stað­festir í sam­tali við Kjarnann að kæra hafi borist emb­ætt­inu og málið sé í rann­sókn, en Ásgeir hefur veitt lög­reglu munn­lega skýrslu vegna máls­ins. Þá hefur Kamran sömu­leiðis verið kall­aður til skýrslu­töku hjá lög­reglu vegna kærunnar.

Upptaka af meintum hótunum send lögreglu


Á meðal gagna sem Ásgeir hefur afhent lög­reglu kæru sinni til stuðn­ings, er hljóð­upp­taka af sam­tali hans og Kamran sem átti sér stað á Austur á dög­unum. Kjarninn hefur umrædda upp­töku undir höndum en þar má heyra hvernig Kamran virð­ist hóta Ásgeiri og fjöl­skyldu hans, verði honum ekki hleypt að rekstri skemmti­stað­ar­ins.

Í sam­tali við Kjarnann neitar Kamran Keivanlou að hann hafi haft uppi hót­anir við Ásgeir Kol­beins­son, og segir að upp­taka af sam­tali þeirra sé fölsuð. Ásgeir hljóti að hafa fengið ein­hvern til að leika sig í sam­tal­inu.

Ætluðu að selja sig út úr Austur


Ásgeir Kol­beins­son, fram­kvæmda­stjóri 101 Aust­ur­strætis, og félag í eigu Styrmis Þórs Braga­sonar sam­þykktu kauptil­boð frá félag­inu Alfacom General Trading, sem er í eigu Kamran Keivanlou, í allt hlutafé í 101 Aust­ur­stræti árið 2013. Samkvæmt kaup­samn­ingnum greiddi Alfacom þeim Ásgeiri og Styrmi Þór helm­ing umsam­ins kaup­verðs fyrir öll hluta­bréf í félag­inu við und­ir­ritun. Kjarninn hefur kaup­samn­ing­inn undir höndum, en mun ekki upp­lýsa um sölu­verð rekstr­ar­fé­lags Austurs að beiðni selj­enda, en það hleypur á tugum millj­óna króna. Við und­ir­skrift samn­ings­ins varð Kamran stjórn­ar­for­maður 101 Aust­ur­strætis ehf.

Þess má geta að Kamran hefur sótt um tíma­bundið atvinnu­leyfi á Íslandi sem sér­fræð­ingur í pers­neskum teppum á mála hjá Alfacom General Trading. Vinnu­mála­stofnun synj­aði beiðni hans, sem var kærð til vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins sem stað­festi úrskurð Vinnu­mála­stofn­unar. Hér­aðs­dómur felldi úr gildi úrskurð ráðu­neyt­is­ins og ákvörðun Vinnu­mála­stofn­unar þann 22. sept­em­ber síð­ast­lið­inn, þar sem ráðu­neytið hafði ekki sann­reynt hvort þörf væri á umræddri sér­fræði­kunn­áttu hér á landi.

Vanefndir á leið fyrir dómstóla


Ásgeir og Styrmir Þór hafa stefnt Alfacom til greiðslu á eft­ir­stöðvum kaup­samn­ings­ins, og verður málið tekið fyrir í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í vik­unni. Kjarninn hefur stefnu máls­ins undir höndum. Þar kemur fram að Kamran hafi farið að venja komur sínar á Austur skömmu eftir að kaup­samn­ing­ur­inn var und­ir­rit­aður þar sem hann gaf fyr­ir­skip­anir sem voru ýmist á borði stjórnar eða fram­kvæmda­stjóra. Samkvæmt hlut­hafa­sam­komu­lagi sem und­ir­ritað var sam­hliða kaup­samn­ingi, er kveðið á um að engar breyt­ingar verði gerðar á stjórn félags­ins og rekstri fyrr en kaup­verðið verði að fullu greitt. Þá segir í stefn­unni að Kamran hafi haft í hót­unum við starfs­fólk og við­skipta­vini sem leiddi til þess að honum var bannað að koma á skemmti­stað­inn þegar hann var opinn.

Alfacom hefur lagt fram gagn­stefnu í mál­inu þar sem þess er kraf­ist að kaupum félags­ins á 101 Aust­ur­stræti ehf. verði rift vegna van­efnda á kaup­samn­ingnum.

Þá hefur Alfacom kært Ásgeir Kol­beins­son og fjár­mála­stjóra Austurs til lög­reglu sem og emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara í júní­mán­uði síð­ast­liðnum fyrir fjár­drátt og fyrir að mis­nota greiðslu­kort 101 Aust­ur­strætis í sína eigin þágu. Þau hafa bæði verið kölluð til skýrslu­töku hjá lög­reglu vegna máls­ins. Þá er í bréfi lög­manns Kamran til sér­staks sak­sókn­ara Ásgeir sak­aður um að nota félag í hans eigu til að hafa fé af 101 Aust­ur­stræti ehf. og fyrir að draga sér hátt í tíu millj­ónir króna.

Í sam­tali við Kjarnann segir Ásgeir að um til­hæfu­lausar ásak­anir sé að ræða og hann eigi von á því að lög­regla muni láta málið niður falla á næstu dögum. Ásak­an­irnar hafi ein­ungis verið lagðar fram til að reyna að sverta mann­orð hans.

Íslandsbanki kærir stjórnarformann Austurs til lögreglu


Þá hefur Íslands­banki kært Kamran Keivanlou, stjórn­ar­for­mann 101 Aust­ur­strætis, til lög­reglu fyrir að blekkja starfs­mann bank­ans til að gefa honum upp leyni­númer á reikn­ingum félags­ins, svo hann gæti greitt til­hæfu­lausa kröfu frá sjálfum sér upp á tæpar 4,4 millj­ónir króna út af reikn­ingi 101 Aust­ur­strætis í umboðs­leysi. Þá hefur 101 Aust­ur­stræti sömu­leiðis kært Kamran til lög­reglu fyrir fjár­svik vegna til­viks­ins.

Eftir að Íslands­banki sagði upp við­skiptum við 101 Aust­ur­stræti og Borgun sagði upp þjón­ustu­samn­ingi við félagið í lok nóv­em­ber að beiðni for­svars­manns Alfacom, stofn­aði Ásgeir nýtt félag til að tryggja áfram­hald­andi rekstur Austurs. Það félag heitir Aust­ur­stræti 5, þar sem Vilhelm Patrick Bernhöft er í for­svari auk Ásgeirs. Með til­komu félags­ins var hægt að gera nýjan þjón­ustu­samn­ing við Borgun og opna nýja banka­reikn­inga og þannig koma í veg fyrir að rekstri Austurs yrði sjálf­hætt.

Kamran Keivanlou hefur ítrekað kvartað til lög­reglu um að skemmti­stað­ur­inn Austur sé nú í rekstri hjá félagi sem hvorki hafi til­skylin leyfi til rekst­urs­ins né gild­andi húsa­leigu­sam­ing vegna hús­næð­is­ins við Aust­ur­stræti 7. Bæði lög­regla og sýsl­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafa málið til rann­sóknar, og hvort núver­andi rekstr­ar­fyr­ir­komu­lag brjóti í bága við útgefið rekstr­ar­leyfi Austurs.

Í sam­tali við Kjarnann segir Ásgeir að hið nýja félag hafi ekki tekið við rekstri Austurs, það sé ein­göngu til­komið til að tryggja áfram­hald­andi rekstur skemmti­stað­ar­ins. Allar greiðslur sem Aust­ur­stræti 5 taki við renni óskiptar til rekstr­ar­fé­lags Austurs, það er 101 Aust­ur­strætis ehf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár