Lögregla og sýslumaður rannsaka rekstur Austurs

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og emb­ætti sýslu­manns hafa rekstur skemmti- og veit­inga­stað­ar­ins Austurs, við Aust­ur­stræti 7 í Reykja­vík, til rann­sóknar. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans lýtur rann­sókn lög­reglu meðal ann­ars að því hvort ætluð sak­næm hátt­semi hafi átt sér stað í tengslum við rekstur einka­hluta­fé­lags­ins 101 Aust­ur­strætis, sem er skráður leyf­is­hafi fyrir rekstr­inum, og þá skoðar emb­ætti sýslu­manns hvort núver­andi rekstr­ar­fyr­ir­komu­lag brjóti gegn núgild­andi rekstr­ar­leyfi.

Harðvítugar deilur innan eigendahópsins


Forsögu máls­ins má rekja til deilna í hlut­hafa­hópi 101 Aust­ur­strætis ehf. Haustið 2013 keypti fyr­ir­tækið Alfacom General Trading ehf., í eigu Kamran Keivanlou og Gholamhossein M. Shirazi, helm­ings­hlut í 101 Aust­ur­stræti, sem á og rekur skemmti­stað­inn Austur. Selj­endur voru fjöl­miðla­mað­ur­inn Ásgeir Kol­beins­son, þáver­andi fram­kvæmda­stjóri, og félag í eigu Styrmis Þórs Braga­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra MP banka. Alfacom General keypti 25 pró­senta hlut af sitt hvorum aðil­anum.

Fljót­lega eftir kaupin slett­ist upp á við­skipta­sam­bandið og hefur ásök­unum um fjár­mála­mis­ferli verið haldið á lofti. Deil­urnar í félag­inu leiddu til þess að Íslands­banki sagði upp banka­við­skiptum við félagið í lok nóv­em­ber eftir að lög­maður Alfacom hót­aði lög­banns­kröfu og Borgun sagði upp þjón­ustu­samn­ingi við 101 Aust­ur­stræti nokkrum dögum síðar. Með þessu varð félagið óstarf­hæft, en auk þessa hefur Íslands­banki kært umboðs­lausa úttekt eins stjórn­ar­manns af reikn­ingi félags­ins. Ásgeir og Styrmir Þór kröfð­ust þess að Íslands­banki opn­aði reikn­inga félags­ins á ný að við­lagðri hótun um skaða­bóta­mál, en höfðu ekki erindi sem erf­iði.

Nýtt einkahlutafélag stofnað um reksturinn


Eins og áður segir er 101 Aust­ur­stræti ehf. leyf­is­hafi vegna rekst­urs skemmti­stað­ar­ins Austurs, og Ásgeir Kol­beins­son er titl­aður ábyrgð­ar­maður leyf­is­bréfs­ins. Þá er í gildi leigu­samn­ingur milli einka­hluta­fé­lags­ins og Eikar fast­eigna­fé­lags um leigu á fast­eign­inni að Aust­ur­stræti 7 til árs­ins 2029. Heim­ildir Kjarnans herma að sátt hafi náðst um það í eig­enda­hópnum að leggja niður rekstur Austurs tíma­bundið, þar til unnið hefði verið úr ágrein­ingnum.

Samkvæmt vott­orði úr fyr­ir­tækja­skrá Rík­is­skatt­stjóra stofn­aði Ásgeir Kol­beins­son einka­hluta­fé­lagið Aust­ur­stræti 5 í lok jan­úar, ásamt Vilhelm Patrick Bernhöft, sem er titl­aður sem fram­kvæmda­stjóri félags­ins. Það félag hefur nú tekið við rekstri Austurs, og sam­kvæmt kvitt­unum sem Kjarninn hefur undir höndum renna rekstr­ar­tekjur af staðnum nú til áður­nefnds félags.

Lögregluyfirvöldum ítrekað gert viðvart


For­svars­menn Alfacom hafa ítrekað bent lög­reglu­yf­ir­völdum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og emb­ætti sýslu­manns­ins í Reykja­vík á að nú fari með rekstur Austurs í full­komnu heim­ilda­leysi 101 Aust­ur­strætis, félag sem hvorki hafi til­skylin leyfi til rekst­urs­ins, meðal ann­ars vín­veit­inga­leyfi, né gild­andi leigu­samn­ing.

Í lögum um veit­inga­staði, gisti­staði og skemmt­ana­hald segir í 7. grein: „Hver sá sem hyggst stunda starf­semi sem fellur undir lög þessi skal hafa til þess rekstr­ar­leyfi útgefið af leyf­is­veit­anda. Í rekstr­ar­leyfi getur falist leyfi til sölu gist­ingar og/eða veit­ingar og sölu veit­inga, hvort sem er í mat eða drykk, bæði áfengra og óáfengra, og/eða útleigu sam­komu­sala í atvinnu­skyni.“

Tals­maður hjá emb­ætti sýslu­manns stað­festi við Kjarnann að emb­ætt­inu hafi borist áður­nefndar ábend­ingar, og að engin breyt­ing hafi orðið á leyf­is­hafa vegna rekst­urs Austurs. Félagið 101 Aust­ur­stræti sé enn skráður leyf­is­hafi fyrir rekstr­inum.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans sann­reynir nú lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hvort rekstr­ar­tekjur Austurs renna til einka­hluta­fé­lags­ins Aust­ur­stræti 5, og hvort sú ráð­stöfun varði við lög. Þá stað­festir lög­reglan að kæra hafi borist í mál­inu. Þar er um að ræða kæru for­svars­manna Alfacom á hendur Ásgeiri Kol­beins­syni og Styrmi Þór Braga­syni vegna núver­andi rekstr­ar­fyr­ir­komu­lags. Þá skoðar sýslu­mað­ur­inn í Reykja­vík hvort núver­andi rekstr­ar­fyr­ir­komu­lag brjóti í bága við núgild­andi rekstr­ar­leyfi, að því er heim­ildir Kjarnans herma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár