Innanríkisráðuneytið neitar að veita frekari upplýsingar um fjölmiðlaráðgjöf

Inn­an­rík­is­ráðu­neytið hefur synjað beiðni Kjarnans um nán­ari upp­lýs­ingar varð­andi fjöl­miðla­ráð­gjöf sem ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækið Argus veitti ráðu­neyt­inu á síð­asta ári vegna Leka­máls­ins.

Eins og Kjarninn greindi fyrstur frá í gær, greiddi ráðu­neytið tæp­lega 2,4 millj­ónir króna fyrir ráð­gjöf­ina, sem sam­svarar ríf­lega 133 útseldum klukku­stundum miðað við með­al­verð fyrir aðkeypta fjöl­miðla­ráð­gjöf, eða ríf­lega þriggja vikna vinnu ráð­gjafa í beit.

Kjarninn sendi Jóhann­esi Tómassyni, upp­lýs­inga­full­trúa inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, tölvu­póst í dag þar sem óskað var upp­lýs­inga um hvenær umrædd fjöl­miðla­ráð­gjöf var veitt. Nánar til­tekið óskaði Kjarninn eftir upp­lýs­ingum um hvaða daga ráð­gjöfin var veitt ráð­herra. Í skrif­legu svari upp­lýs­inga­full­trúa ráðu­neyt­is­ins segir: „Sælir - get ekk­ert annað sagt en að reikn­ingar frá Argus vegna ráð­gjafar dreifast yfir mik­inn hluta árs­ins 2014.“

Þá óskaði Kjarninn eftir upp­lýs­ingum um hversu oft Argus veitti inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu þjón­ustu, hvað hæsti reikn­ing­ur­inn frá Argus hafi hljóðað upp á háa fjár­hæð, og hvenær hann hafi verið dag­settur. Sömu­leiðis óskaði Kjarninn eftir afrit af umræddum reikn­ingi.

Í svari upp­lýs­inga­full­trúa inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, sem sent var Kjarn­anum í tölvu­pósti klukkan 14:50 í dag segir: „Sælir - birtum ekki sund­ur­liðun.“ Tölvu­pósti Kjarnans, þar sem óskað var skýr­inga á afstöðu ráðu­neyt­is­ins, hafði ekki verið svarað við vinnslu þess­arar fréttar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár