Fyrir 2,4 milljónir er hægt að kaupa fjölmiðlaráðgjöf í 133 klukkustundir

Eins og Kjarninn greindi fyrstur fjöl­miðla frá í gær, greiddi inn­an­rík­is­ráðu­neytið tæpar 2,4 millj­ónir króna til ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Argus fyrir sér­tæka fjöl­miðla­ráð­gjöf vegna Leka­máls­ins á síð­asta ári. Samkvæmt eft­ir­grennslan Kjarnans kostar útseldur klukku­tími fyrir fjöl­miðla­ráð­gjöf um átján þús­und krónur að jafn­aði.

Það þýðir að inn­an­rík­is­ráðu­neytið hefur keypt 133 klukku­stunda vinnu af sér­stökum fjöl­miðla­ráð­gjafa vegna Leka­máls­ins, sé miðað við áður­nefnt með­al­verð. Það gerir tæp­lega sautján heila vinnu­daga, sé miðað við átta klukku­stunda vinnu­dag og ríf­lega þriggja vikna vinnu í beit.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er ekki óal­gengt að fjöl­miðla­ráð­gjafar veiti afslátt þegar um svo mikla vinnu er að ræða, þannig að mögu­lega hafa klukku­tím­arnir verið fleiri.

Kjarninn sendi inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu fyr­ir­spurn til að for­vitn­ast um á hvaða tíma­bilum umrædd fjöl­miðla­ráð­gjöf var veitt Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, á síð­asta ári. Nánar til­tekið óskaði Kjarninn eftir upp­lýs­ingum um hvaða daga ráð­gjöfin var veitt ráð­herra. Í skrif­legu svari Jóhann­esar Tóm­as­sonar, upp­lýs­inga­full­trúa ráðu­neyt­is­ins, kemur fram að ekki sé hægt að svara fyr­ir­spurn Kjarnans að öllu leyti, en „reikn­ingar frá Argus vegna ráð­gjafar dreifast yfir mik­inn hluta árs­ins 2014.“

Stein­grímur Sævarr Ólafsson, fyrr­ver­andi frétta­stjóri Stöðvar 2 og Pressunnar, var á meðal þeirra sem veitti inn­an­rík­is­ráð­herra fjöl­miðla­ráð­gjöf fyrir hönd Argus. Á sama tíma hafði Hanna Birna tvo aðstoð­ar­menn og aðgang að yfir 20 lög­mönnum inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár