Innanríkisráðuneytið greiddi 2,4 milljónir fyrir fjölmiðlaráðgjöf vegna lekamálsins

Inn­an­rík­is­ráðu­neytið greiddi Mark­aðs­stof­unni Argus ehf. 2.394.300 krónur fyrir sér­tæka fjöl­miðla­ráð­gjöf vegna leka­máls­ins á síð­asta ári. Þetta kemur fram í yfir­liti yfir aðkeypta ráð­gjöf inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins á árunum 2013 og 2014 sem tekið var saman að beiðni Kjarnans.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans var Stein­grímur Sævarr Ólafsson, fyrr­ver­andi frétta­stjóri Stöðvar 2 og rit­stjóri Pressunnar, á meðal þeirra sem veittu Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra fjöl­miðla­ráð­gjöf fyrir hönd Argus.

Argus sér­hæfir sig í fjöl­breyttri þekk­ingar-, þjón­ustu- og ráð­gjafa­vinnu fyrir ein­stak­linga, stofn­anir og opin­bera aðila að því er fram kemur á vef­síðu fyr­ir­tæk­is­ins, og að það hafi margra ára­tuga reynslu meðal ann­ars af mark­aðs­málum, fjöl­miðlum og sam­skiptum.

Þá kemur fram í yfir­liti inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins að ráðu­neytið greiddi lög­manns­stof­unni LEX 1.070.450 krónur vegna lög­fræði­ráð­gjafar í tengslum við leka­málið á síð­asta ári. Beinn kostn­aður ráðu­neyt­is­ins vegna aðkeyptrar ráð­gjafar á árinu 2014 vegna leka­máls­ins nam því tæpum 3,5 millj­ónum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár