Samkomulagið birt: Tchenguiz hefur bara greitt eina milljón punda

Vincent Tchenguiz hefur ein­ungis greitt eina milljón punda, um 200 millj­ónir króna, af þeirri upp­hæð sem honum var gert að greiða þrota­búi Kaup­þings vegna sam­komu­lags frá sept­em­ber 2011. Samkvæmt sam­komu­lag­inu átti Tchenguiz að greiða háar fjár­hæðir til bús­ins, gang­ast í háar per­sónu­legar ábyrgðir vegna lána sem hann og félög tengd honum áttu að greiða, falla frá öllum kröfum á hendur Kaup­þingi og tjá sig aldrei um inni­hald sam­komu­lags­ins.

Nú hefur Vincent Tchenguiz brotið sam­komu­lagið og segir það vera vegna þess að sam­komu­lagið hafi verið gert á ólög­mætum for­sendum. Kaupþing og tengdir aðilar hafi borið ábyrgð á umfangs­mik­illi rann­sókn bresku efna­hags­brota­deild­ar­innar, Special Fraud Office (SFO), á Tchenguiz sem náði hámarki með hand­töku hans í mars 2011. Tchenguiz vill meina að Kaupþing og tengdir aðilar hafi notað rann­sókn á meintum glæpum hans til að knýja hann til að semja um mál­efni sín. Þess vegna þurfi hann ekki að virða skil­mála sam­komu­lags­ins sem var gert í sept­em­ber 2011.

Þetta kemur fram í 95 blað­síðna stefnu Vincent Tchenguiz gegn slita­stjórn Kaup­þings, Grant Thornton UK, Jóhann­esi Rúnari Jóhanns­syni, sem situr í slita­stjórn Kaup­þings, og tveimur starfs­mönnum Grant Thornton UK, þeim Hossein Hamedani og Stephen John Akers. Í stefn­unni fer Tchenguiz fram á um 440 millj­arða króna í bætur. Kjarninn hefur stefn­una undir höndum og birti ítar­lega frétta­skýr­ingu um hana 29. des­em­ber síð­ast­lið­inn.

Rannsókn SFO á Tchenguiz var hætt sum­arið 2012, hann beð­inn afsök­unnar á henni og honum greiddar hund­ruð millj­óna króna í bætur frá emb­ætt­inu.

Handtekinn, rannsókn hætt og bætur greiddar


Í byrjun des­em­ber 2009 til­kynnti Vincent Tchenguiz og sjóð­ur­inn The Tchenguiz Family Trust (TFT) að þeir myndu lýsa kröfum í bú Kaup­þings upp á 1,6 millj­arða punda, um 320 millj­arða króna. Kaupþing hafn­aði kröf­unni og henni var vísað til íslenskra dóm­stóla. Um mitt ár 2010 hófst síðan einka­rekstur nokk­urra félaga sem tengd­ust Tchenguiz bræðrum gegn Kaup­þingi fyrir breskum dóm­stólum. Stefna þess efn­ist var birt 20. júlí 2010.

Í stefnu Vincent Tchenguiz á hendur Kaup­þingi kemur fram að hann telji að á sama tíma og þessi mál voru að fara af stað hafi Kaupþing komið fölskum ásök­unum um meint lög­brot hans til Special Fraud Office (SFO) í Bret­landi. Á meðal þess sem komið hefði fram í þeim ásök­unum var að Tchenguiz hefði veð­sett eignir fyrir lánum sem hann fékk hjá Kaup­þingi sem hefðu þegar verið veð­settar öðrum. Þá hafi virði veða sem sett hafi verið fyrir lán­unum verið upp­blásið og að hann hafi nýtt hluta þeirra lána sem félög hans fengu hjá Kaup­þingi til per­sónu­legra nota.

[caption id="attachment_13099" align="alignnone" width="649"] Vincent Tchenguiz hefur stefnt Kaup­þingi, Grant Thornton UK í Bret­landi og þremur starfs­mönnum þeirra. Hann vill fá 440 millj­arða króna í bætur.[/caption]

Á grund­velli þeirra upp­lýs­inga sem Kaupþing og ráð­gjafa­fyr­ir­tækið Grant Thornton UK í Bret­landi, sem starf­aði fyrir Kaupþing, veittu SFO var Vincent Thenguiz hand­tek­inn í mars 2011. Samhliða voru fram­kvæmdar hús­leitir á skrif­stofu hans og heim­ili. Hand­takan varð helsta frétta­mál þess dags í Bret­landi, enda Vincent, og bróðir hans Robert sem var lika hand­tek­inn, á meðal umsvifa­mestu eig­enda fast­eigna í Bret­landi á þessum tíma.

Rannsókn SFO á Tchenguiz var hætt í júní 2012. Tchenguiz-bræð­urnir höfð­uðu í kjöl­farið mál á hendur SFO og kröfð­ust um 200 millj­óna króna, tæp­lega 1,4 millj­arða króna, í skaða­bætur vegna rann­sókn­ar­innar. Þeir komust síðar að sam­komu­lagi um bætur. Í þeim fólst að SFO baðst opin­ber­lega afsök­unnar á rann­sókn­inni og greiddi Vincent Tchenguiz þrjár millj­ónir punda í miska­bætur og sömu upp­hæð í lög­manns­kostnað. Umreiknað í íslenskar krónur er sú upp­hæð um 1,2 millj­arðar króna. Robert bróðir hans fékk auk þess 1,5 millj­ónir punda, um 300 millj­ónir króna, í miska­bætur og auk þess sem lög­manns­kostn­aður hans vegna SFO-rann­sókn­ar­innar var greiddur.

Í stefnu Tchenguiz segir: „Til­gangur sam­sær­is­ins á þessum tíma var að valda Vincent, CBG og TFT fyr­ir­tækj­unum [í eigu Tchenguiz fjöl­skyld­unnar], eins miklum álits­hnekki og mögu­legt var og að setja mikla fjár­hags­lega pressu á hann og aðra. Þetta átti að neyða hann til að falla frá einka­mál­inu í Bret­landi og kröfu­deil­unni fyrir íslenskum dóm­stólum til að skapa stöðu fyrir Kaupþing til að gera gott sam­komu­lag fyrir sig.“

Leynisamkomulag opinberað í fyrsta sinn


Þann 17. sept­em­ber 2011 var til­kynnt um að sam­komu­lag hefði náðst milli Tchenguiz Family Trust og þrota­bús Kaup­þings. Sam­komu­lagið hefur aldrei verið gert opin­bert.

Í því fólst að Tchenguiz Family Trust, sjóður undir stjórn Vincent Tchenguiz, myndi falla frá öllum kröfum sínum á þrota­búið. Við það féllu einka­málin sem hann rak gegn búinu í Bret­landi og Íslandi niður, auk allra krafna sem gerðar höfðu verið í þrotabú Kaup­þings, sem metnar voru á um 1,6 millj­arða punda, um 320 millj­arða króna. Hluti af sam­komu­lag­inu fólst líka í að hvor­ugur aðil­inn, Vincent Tchenguiz og for­svars­menn þrota­bús Kaup­þings, mættu ræða um inni­hald sam­komu­lags­ins. Auk þess kom fram í því að Tchenguiz og tengd félög myndu falla frá öllum frek­ari máls­höfð­unum á hendur Kaup­þingi eða tengdum aðilum.

[quote font="0" align="right"]Nú hefur Vincent Tchenguiz brotið það sam­komu­lag. Í stefnu sinni á hendur þrota­búi Kaup­þings, sem Kjarninn hefur undir höndum, upp­lýsir hann um inni­hald sam­komu­lags­ins.[/quote]

Nú hefur Vincent Tchenguiz brotið það sam­komu­lag. Í stefnu sinni á hendur þrota­búi Kaup­þings, sem Kjarninn hefur undir höndum, upp­lýsir hann um inni­hald þess. Þar kemur fram að Vincent Tchenguiz hafi sam­þykkt að greiða Kaup­þingi þrjár millj­ónir punda, um 600 millj­ónir króna. Ein milljón punda, um 200 millj­ónir króna, átti að greið­ast strax og tvær millj­ónir punda, um 400 millj­ónir króna, til við­bótar áttu að greið­ast innan árs frá því að sam­komu­lagið var gert.

Auk þess gekkst hann í tíu milljón punda, um tveggja millj­arða króna, per­sónu­lega ábyrgð vegna útistand­andi skuld­bind­inga og hið svo­kall­aða Pennyrock-lán, eina lánið sem Vincent Tchenguiz tók hjá Kaup­þingi á Íslandi, var end­ur­skipu­lagt og átti að vera til greiðslu fyrir sept­em­ber­lok 2013. Lánið var upp­haf­lega upp á 100 milljón pund, um 20 millj­arða króna á gengi dags­ins í dag.

Hefur einungis greitt 200 milljónir


Af þeim greiðslum sem Vincent Tchenguiz átti að greiða þrota­búi Kaup­þings vegna sam­komu­lags­ins hefur ein­ungis ein milljón pund, um 200 millj­ónir króna, verið greidd. Seinni greiðslan, upp á tvær millj­ónir punda, um 400 millj­ónir króna, hefur aldrei verið greidd. Þá hefur ekki verið gengið á tíu milljón punda, um tveggja millj­arða krona, per­sónu­lega ábyrgð Tchenguiz á Pennyrock-lán­inu sem átti að vera til greiðslu í sept­em­ber 2013, en hefur ekki verið greitt í sam­ræmi við sam­komu­lagið. Kaupþing hefur ekki reynt að ná þessum fjár­munum sem búið á rétt á sam­kvæmt sam­komu­lag­inu.

Í stefn­unni segir að það sé lík­lega vegna þess að Kaupþing og tengdir aðilar geri sér grein fyrir því að sam­komu­lagið hafi verið gert á ólög­mætum for­sendum, enda hafi þá verið í gangi rann­sókn SFO, sem Tchenguiz segir að hafi verið að und­ir­lagi Kaup­þings, og sú rann­sókn hafi í raun knúið fram sam­komu­lagið.

Telja að málið geti haft áhrif á slit Kaupþings


Hinir stefndu í mál­inu fengu frest til 19. des­em­ber til að bregð­ast við. Það hafa þeir gert og slita­stjórn Kaup­þings og Jóhannes Rúnar Jóhanns­son hafa farið fram á að málið, sem var höfðað fyrir breskum dóm­stólum, verði rekið fyrir íslenskum dóm­stólum. Þeir áttu að skila grein­ar­gerðum vegna deil­unnar um lög­sögu máls­ins síð­ast­lið­inn föstu­dag, þann 16. jan­úar. Búist er við því að sá angi þess verði tekin fyrir síð­sum­ars 2015. Mála­rekst­ur­inn allur mun vænt­an­lega taka mörg ár.

[caption id="attachment_13100" align="alignnone" width="624"] Jóhannes Rúnar Jóhanns­son, sem situr í slita­stjórn Kaup­þings, segir ásak­an­irnar sem settar eru fram í stefn­unni hald­lausar. Honum er stefnt per­sónu­lega í mál­inu.[/caption]

Tchenguiz fer fram á 2,2 millj­arða punda, um 440 millj­arða króna, í skaða­bætur vegna þess tjóns sem hann telur sig hafa orðið fyrir. Lögmenn hans telja að, í ljósi þess að upp­hæðin er svona há (heild­ar­eignir þrota­bús Kaup­þings eru um 800 millj­arðar króna) gæti málið haft mikil áhrif á slita­með­ferð bank­ans. Vinni Tchenguiz málið gæti bótakrafa hans orðið svokölluð búskrafa sem myndi þá njóta for­gangs. Ef greitt yrði út úr búi Kaup­þings nú telja lög­menn­irnir að þá þyrfti að gera það með fyr­ir­vara um að kröfu­hafar myndu mögu­lega þurfa að end­ur­greiða miklar fjár­hæðir ef Tchenguiz myndi vinna bóta­málið í fyll­ingu tím­ans. Talið er að mála­rekst­ur­inn muni taka mörg ár.

Kjarninn leit­aði til Kaup­þings og bað um við­brögð við því að inni­hald sam­komu­lags­ins frá því í sept­em­ber 2011 yrði birt. Þrota­búið kaus að bæta engu við fyrri yfir­lýs­ingar. Áður hafði slita­stjórn Kaup­þings svarað fyr­ir­spurn Kjarnans um stefnu Tchenguiz með eft­ir­far­andi hætti: „Lögmenn Kaup­þings hf. í Englandi hafa yfir­farið vand­lega þær ásak­anir sem lýst er í stefnu sem gefin hefur verið út af Vincent Tchenguiz og tengdum aðilum á hendur Kaup­þingi hf. og Jóhann­esi Rúnar Jóhanns­syni hæsta­rétt­ar­lög­manni. Jóhannes Rúnar á sæti í slita­stjórn Kaup­þings. Að lok­inni þeirri skoðun er það ótví­ræð nið­ur­staða lög­manna Kaup­þings hf. og slita­stjórnar að ekk­ert sé hæft í ásök­unum um að Kaupþing eða Jóhannes Rúnar hafi átt þátt í meintu sam­særi eða hafi hagað sér með óeðli­legum hætti að öðru leyti. Þessar ásak­anir Vincent Tchenguiz og tengdra aðila eiga sér enga stoð og munu Kaupþing hf. og Jóhannes Rúnar halda uppi ítr­ustu vörnum vegna máls­ins. Þar sem málið er fyrir rétti í Englandi hyggst Kaupþing ekki tjá sig frekar að svo stöddu.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár