Stefna Tchenguiz: Sakar Grant Thornton UK og Kaupþing um samsæri

Vincent Tchenguiz telur að slita­stjórn Kaup­þings, end­ur­skoð­enda­fyr­ir­tækið Grant Thornton í Bret­landi (Grant Thornton UK) og nokkrir starfs­menn þess­arra aðila hafi lagt á ráðin um, haft frum­kvæði að og tekið þátt í, rann­sókn bresku efna­hags­brota­deild­ar­innar Special Fraud Office (SFO), á honum og fyr­ir­tækjum í hans eigu. Þetta hafi leitt til þess að hann var hand­tek­inn á heim­ili sínu í mars 2011 og leitað var á skrif­stofu hans og í fyr­ir­tækjum í hans eigu.

Til­gang­ur­inn, að sögn Vincent Tchenguiz, var sá að nota rann­sókn SFO á meintum glæpum hans til að knýja hann til að semja um mál­efni sinna félaga gagn­vart Kaup­þingi, afla gagna frá SFO, sem emb­ættið gerði upp­tækt í hús­leit hjá Vincent, sem Kaupþing hefði ella ekki getað aflað og síðan mis­nota þau gögn í sam­skiptum sínum við Vincent Tchenguiz. Hann telur að með þessu hafi Kaupþing viljað kom­ast yfir eignir hans og fyr­ir­tæki sem honum tengd­ust. Þetta átti að skila Kaup­þingi auknum eignum og Grant Thornton í Bret­landi auknum greiðslum, þar sem starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins myndu sjá um skipti á þeim eignum sem teknar yrðu yfir.

[quote font="0" align="right"]Þetta kemur fram í 95 blað­síðna stefnu Vincent Tchenguiz gegn slita­stjórn Kaup­þings, Grant Thornton UK, Jóhann­esi Rúnari Jóhanns­syni sem situr í slita­stjórn Kaup­þings og tveimur starfs­mönnum Grant Thornton, þeim Hossein Hamedani og Stephen John Akers. Í stefn­unni fer Tchenguiz fram á um 430 millj­arða króna í bætur. Kjarninn hefur stefn­una undir höndum.[/quote]

Þetta kemur fram í 95 blað­síðna stefnu Vincent Tchenguiz gegn slita­stjórn Kaup­þings, Grant Thornton UK, Jóhann­esi Rúnari Jóhanns­syni, sem situr í slita­stjórn Kaup­þings, og tveimur starfs­mönnum Grant Thornton UK, þeim Hossein Hamedani og Stephen John Akers. Í stefn­unni fer Tchenguiz fram á um 430 millj­arða króna í bætur. Kjarninn hefur stefn­una undir höndum.

Rannsókn SFO á Tchenguiz var hætt sum­arið 2012, hann beð­inn afsök­unnar á henni og honum greiddar hund­ruð millj­óna króna í bætur frá emb­ætt­inu.

Kaupþing segir ekkert hæft í ásökununum


Tchenguiz telur að hinir stefndu hafi með athæfi sínu framið fjár­svik, sýnt af sér sak­næmt athæfi og komið í veg fyrir fram­gang rétt­vís­innar. Í sam­tali við Kjarnann segir Vincent Tchenguiz að búið sé að birta öllum hlut­að­eig­andi stefnu í mál­inu og að það hafi gerst 29. nóv­em­ber. Hinir stefndu fengu frest til 19. des­em­ber til að bregð­ast við. Það hafa þeir gert og slita­stjórn Kaup­þings og Jóhannes Rúnar Jóhanns­son hafa farið fram á að málið, sem var höfðað fyrir breskum dóm­stólum, verði rekið fyrir íslenskum dóm­stólum. Skila á grein­ar­gerðum vegna deil­unnar um lög­sögu máls­ins fyrir 16. jan­úar næst­kom­andi og búist er við því að sá angi þess verði tekin fyrir síð­sum­ars 2015. Mála­rekst­ur­inn allur mun vænt­an­lega taka mörg ár.

Tchenguiz fer fram á 2,2 millj­arða punda, um 430 millj­arða króna, í skaða­bætur vegna þess tjóns sem hann telur sig hafa orðið fyrir. Í til­kynn­ingu á heima­síðu slita­stjórnar Kaup­þings, sem birt var 28. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, höfn­uðu bæði slita­stjórnin og Jóhannes Rúnar þeim ásök­unum sem Tchenguiz hefur borið á þau og sögðu þær með öllu hald­lausar.

[caption id="attachment_13100" align="alignnone" width="624"] Jóhannes Rúnar Jóhanns­son, sem situr í slita­stjórn Kaup­þings, segir ásak­an­irnar sem settar eru fram í stefn­unni hald­lausar.[/caption]

Kjarninn leit­aði eftir frek­ari við­brögðum við mál­inu. Í svari Kaup­þings segir: „Lögmenn Kaup­þings hf. í Englandi hafa yfir­farið vand­lega þær ásak­anir sem lýst er í stefnu sem gefin hefur verið út af Vincent Tchenguiz og tengdum aðilum á hendur Kaup­þingi hf. og Jóhann­esi Rúnar Jóhanns­syni hæsta­rétt­ar­lög­manni. Jóhannes Rúnar á sæti í slita­stjórn Kaup­þings. Að lok­inni þeirri skoðun er það ótví­ræð nið­ur­staða lög­manna Kaup­þings hf. og slita­stjórnar að ekk­ert sé hæft í ásök­unum um að Kaupþing eða Jóhannes Rúnar hafi átt þátt í meintu sam­særi eða hafi hagað sér með óeðli­legum hætti að öðru leyti. Þessar ásak­anir Vincent Tchenguiz og tengdra aðila eiga sér enga stoð og munu Kaupþing hf. og Jóhannes Rúnar halda uppi ítr­ustu vörnum vegna máls­ins. Þar sem málið er fyrir rétti í Englandi hyggst Kaupþing ekki tjá sig frekar að svo stöddu.”

Langur aðdragandi


Máls­höfð­unin á sér langan aðdrag­anda. Þegar Kaupþing féll í októ­ber 2008 var Robert Tchenguiz, bróðir Vincent, stærsti ein­staki lán­tak­andi bank­ans. Vincent hafði auk þess sjálfur fengið umtals­verða fyr­ir­greiðslu hjá bank­anum.

Í stefn­unni segir að í skila­nefnd Kaup­þings, sem tók við valdi hlut­hafa, hafi verið skip­aður Theodór Sig­ur­bergs­son, sem er á meðal eig­enda Grant Thornton á Íslandi. Skömmu síðar hafi Kaupþing ráðið Grant Thornton í Bret­landi til að veita sér ráð­gjöf varð­andi ýmsa lán­taka hins fallna banka, meðal ann­ars Tchenguiz-bræður og tengd fyr­ir­tæki.

[quote font="0" align="right"]Tchenguiz vill meina að Grant Thornton UKhafi leikið lyk­il­hlut­verk í því að SFO hóf að rann­saka hann. Fyr­ir­tækið hafi verið fengið til að leggja mat á hvort sak­næmar aðgerðir hafi átt sér stað innan Kaup­þings og til að benda á þá sem frömdu þá ef svo væri. [/quote]

Tchenguiz vill meina að Grant Thornton UK hafi leikið lyk­il­hlut­verk í því að SFO hóf að rann­saka hann. Fyr­ir­tækið hafi verið fengið til að leggja mat á hvort sak­næmar aðgerðir hafi átt sér stað innan Kaup­þings og til að benda á þá sem frömdu þær ef svo væri. Þau gögn sem voru grund­völlur rann­sóknar SFO hafi því komið frá Grant Thornton UK. Í stefn­unni segir að Grant Thorton UK starfs­menn­irnir tveir, sem stefnt er, hafi gert sam­komu­lag við Jóhannes Rúnar Jóhanns­son, hjá slita­stjórn Kaup­þings, um að „þeir myndu hrinda ráða­gerð sinni um að leggja fram falskar ásak­anir um glæp­sam­legt athæfi og önnur rang­indi í fram­kvæmd gagn­vart Robert og Vincent“.

Tchenguiz segir einnig að Grant Thornton UK og Kaupþing hafi sett sig í sam­band við aðra stóra lán­veit­endur og félög undir hans stjórn til að láta vita af þeim ásök­unum um sak­næmt athæfi sem SFO væri að rann­saka. Samhliða hafi þeir verið hvattir til að stíga skref til að ganga að veðum sínum. Í stefn­unni segir að fundir hafi átt sér stað með HBOS, Bank of America Merril Lynch og Bayerische Land­es­bank.

Tilgangur samsærisins að valda álitshnekki


Í des­em­ber 2009, þegar rann­sókn SFO stóð sem hæst, lýstu félög Tchenguiz bræðra 1,6 millj­arða punda, um 315 millj­arða króna, kröfum í bú Kaup­þings. Þeirri kröfu var hafnað og málið rataði fyrir dóm­stóla. Um mitt ár 2010 fóru félög í eigu bræðr­anna í einka­mál gegn Kaup­þingi fyrir breskum dóm­stólum.

Tchenguiz telur að þessar aðgerðir séu rót þess sam­særi sem hann segir Kaupþing og Grant Thornton UK hafi ráð­ist í gagn­vart sér, og náð hafi hámarki með rann­sókn SFO.

Í stefn­unni segir: „Til­gangur sam­sær­is­ins á þessum tíma var að valda Vincent, CBG og TFT fyr­ir­tækj­unum [í eigu Tchenguiz fjöl­skyld­unnar], eins miklum álits­hnekki og mögu­legt var og að setja mikla fjár­hags­lega pressu á hann og aðra. Þetta átti að neyða hann til að falla frá einka­mál­inu í Bret­landi og kröfu­deil­unni fyrir íslenskum dóm­stólum til að skapa stöðu fyrir Kaupþing til að gera gott sam­komu­lag fyrir sig.“

[caption id="attachment_9812" align="alignnone" width="640"] Tchenguiz-bræð­urnir voru á meðal stórra lán­tak­enda hjá Kaup­þingi áður en bank­inn fór á hlið­ina haustið 2008.[/caption]

Þetta und­ir­byggir Tchenguiz með því að segja að Jóhannes Rúnar hafi sagt við íslenska lög­menn að Kaupþing hefði „aðrar leiðir“ til að ljúka einka­mála­rekstr­inum en að klára hann fyrir dóm­stólum.

Tchenguiz telur líka að Grant Thornton UK starfs­menn­irnir tveir, sem stefnt er, hafi viljað koma í veg fyrir að fyr­ir­tæki Tchenguiz-bræðra til að end­ur­skipu­leggja fjár­mál sín til að Kaupþing gæti gengið að þeim. Í kjöl­farið vill Tchenguiz meina að starfs­menn Grant Thornton UK hafi ætlað sér að fá að sjá um skipti eða end­ur­skipu­lagn­ingu umræddra eigna og þiggja him­in­háar greiðslur fyrir þau skipta­störf.

Handtekinn fyrir framan sjónvarpsvélarnar


Vincent Tchenguiz var hand­tek­inn í mars 2011. Samhliða voru fram­kvæmdar hús­leitir á skrif­stofu hans og heim­ili. Hand­takan varð helsta frétta­mál þess dags í Bret­landi, enda Tchenguiz-bræður á meðal umsvifa­mestu fast­eigna­eig­enda í Bret­landi á þessum tíma. Á meðal þeirra sak­ar­efna sem á hann voru borin voru að virði eigna sem hafi verið and­lag veða sem hann setti fyrir lánum frá Kaup­þingi hefði verið upp­blásið, að veð hefðu verið tví­veð­sett án þess að Kaup­þingi hefði verið greint frá því, að Tchenguiz hafi tekið út per­sónu­legan hagnað af umræddum lán­veit­ingum og nýtt hann til eigin nota.

https://www.youtube.com/watch?v=9S_EEbdrPhU

Í sept­em­ber 2011 gerðu Tchenguiz-bræður og félög í þeirra eigu sam­komu­lag við slita­stjórn Kaup­þings sem í fólst að þeir féllu frá kröfum í bú bank­ans og öllum einka­málum. Innihald sam­komu­lags­ins hefur aldrei verið opin­berað en Kjarninn hefur það undir höndum. Frétta­skýr­ing um sam­komu­lagið mun birt­ast á morgun.

Beðnir afsökunar og fengu bætur


Rannsókn SFO á Tchenguiz var hætt í júní 2012. Tchenguiz-bræð­urnir höfð­uðu í kjöl­farið mál á hendur SFO og kröfð­ust um 200 millj­óna punda, tæp­lega 1,4 millj­arða króna, í skaða­bætur vegna rann­sókn­ar­innar. Þeir komust síðar að sam­komu­lagi um bætur.

Í þeim fólst að SFO baðst opin­ber­lega afsök­unar á rann­sókn­inni og greiddi Vincent Tchenguiz þrjár millj­ónir punda í miska­bætur og sömu upp­hæð í lög­manns­kostnað. Umreiknað í íslenskar krónur er sú upp­hæðum 1,2 millj­arðar króna. Robert bróðir hans fékk auk þess 1,5 millj­ónir punda, um 295 millj­ónir króna, í miska­bætur og auk þess sem lög­manns­kostn­aður hans vegna SFO-rann­sókn­ar­innar var greiddur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár