Uppgreiðslur á lánum Íbúðalánsjóðs 100 milljarðar á sex árum

Íbúða­lána­sjóður hefur ein­ungis lánað út tæpa 4,3 millj­arða króna það sem af er þessu ári í almenn útlán. Á sama tíma nema upp­greiðslur á lánum sjóðs­ins 24,2 millj­örðum króna. Samtals nema upp­greiðslur lána Íbúða­lána­sjóðs frá byrjun árs 2009 og út nóv­em­ber 2014 99,4 millj­örðum króna.

Þetta er hægt að sjá með því að skoða mán­að­ar­skýrslur Íbúða­lána­sjóðs á tíma­bil­inu. Í þeim er upp­lýst um hver almenn útlán sjóðs­ins voru í hverjum mán­uði fyrir sig og hversu háar upp­greiðslur á lánum sjóðs­ins voru.

Hefur kostað ríkið 53,5 milljarða króna frá 2009


Vandamál Íbúða­lána­sjóðs hafa verið mikið í sviðs­ljós­inu und­an­farin ár. Frá árinu 2009 hefur ríkið þurft að leggja Íbúða­lána­sjóði til 53,5 millj­arða króna til að halda honum gagn­andi. Í áliti meiri­hluta fjár­laga­nefndar Alþingis um nýsam­þykkt fjár­lög fyrir árið 2015 er vakin athygli á því að gert sé ráð fyrir að árlegt tap sjóðs­ins verði um eða yfir þrír millj­arðar króna næstu fimm árin, eða sam­tals um 15 millj­arðar króna hið minnsta.

Þar segir einnig að allt stefni í að heild­ar­lán­veit­ingar Íbúða­lána­sjóðs nemi ein­ungis sjö millj­örðum króna á árinu á meðan að upp­greiðslur eldri lána hafi verið um 27 millj­arðar króna. „Sjóð­ur­inn veitti ein­ungis 246 almenn íbúða­lán á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2014 en slík lán voru 468 á sama tíma­bili 2013. Þessi þróun bendir til þess að hlut­verk sjóðs­ins á íslenskum hús­næð­is­mark­aði fari hratt minnk­andi,“ segir enn fremur í álit­inu.

[caption id="attachment_9045" align="alignnone" width="640"] Íbúða­lána­sjóður hefur ein­ungis lánað 4,3 millj­arða króna í almenn útlán það sem af er ári. Upp­greiðslur lána nema 24,2 millj­örðum króna.[/caption]

Einn tíundi af lánum ársins 2008


Íbúða­lána­sjóður lánar bæði hús­næð­is­lán, sem eru svokölluð almenn íbúð­ar­lán, og til bygg­inga­fram­kvæmda. Í skýrslum sem sjóð­ur­inn birtir á heima­síðu sinni mán­að­ar­lega er rakið hversu mikið hann lánar út í hverjum mán­uði og hversu háa fjár­hæð skuld­arar hans hafa ákveðið að greiða upp meðal ann­ars vegna þess að þeir eru að taka ný hús­næð­is­lán hjá við­skipta­banka og þar af leið­andi að hætta í við­skiptum við Íbúða­lána­sjóð.

Almenn útlán Íbúða­lána­sjóðs 2008-2014

|

Create infographics

Kjarninn tók saman almenn útlán Íbúða­lána­sjóðs frá árinu 2008 og fram til dags­ins í dag. Þar kemur í ljós að á hru­nár­inu 2008 lán­aði sjóð­ur­inn alls út 48,8 millj­arða króna í almenn íbúða­lán. Það sem af er árinu 2014 hefur hann lánað tæpa 4,3 millj­arða króna, eða tæp­lega einn tíunda af því sem hann lán­aði árið 2008. Frá byrjun árs 2011 og út nóv­em­ber síð­ast­lið­inn lán­aði Íbúða­lána­sjóður 41,8 millj­arð króna í almenn útlán. Það þýðir að á fjög­urra ára tíma­bili lán­aði sjö millj­örðum krónum minna en hann gerði á árinu 2008. Umfang almennra lána hefur líka farið hríð­lækk­andi. Í nóv­em­ber lán­aði sjóð­ur­inn aðeins 339 millj­ónir króna í almenn útlán. Nóvember var samt sjötti besti mán­uður árs­ins ef mælt er eftir umfangi útlána.

Uppgreiðslur mikið vandamál

Minnk­andi eft­ir­spurn eftir lánum Íbúða­lána­sjóð er vanda­mál. En stærra, og kostn­að­ar­sam­ara vanda­mál, eru grið­ar­legar upp­greiðslur lána. Á árinu 2004 var nefni­lega gerð breyt­ing á fjár­mögnun Íbúða­lána­sjóðs. Í henni fólst að sjóð­ur­inn var lát­inn gefa út skulda­bréf til að fjár­magna útlán sín. Um mitt þetta ár var umfang þeirrar útgáfu 820 millj­arðar króna. Kaup­endur þess­arra skulda­bréfa, sem eru að stórum hluta íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, fá síðan greidda verð­tryggða vexti af skulda­bréf­unum. Í stað­inn á Íbúða­lána­sjóður að end­ur­lána pen­ing­anna sem greiddir eru fyrir skulda­bréfin til hús­næð­is­kaup­enda á hærri vöxtum og búa með þeim hætti til hagnað. Þegar breyt­ing­arnar voru gerðar árið 2004 var ákveðið að skulda­bréf Íbúða­lána­sjóðs ættu ekki að vera inn­kall­an­leg. Það þýðir að Íbúða­lána­sjóður má ekki greiða þau upp fyrir loka­gjald­daga þeirra. [quote font="0" align="right"]Með öðrum orðum þá borgar Íbúða­lána­sjóður fyrir fjár­magnið sem hann sýslar með, en græðir ekki neitt á stórum hluta þess. [/quote] Vanda­málið í þess­ari útlána­keðju er að lánin sem Íbúða­lána­sjóður lánar við­skipta­vinum sínum eru upp­greið­an­leg. Þegar við­skipta­vin­irnir ákveða að greiða þau upp í stórum stíl, líkt og gerst hefur á und­an­förnum árum, þá hættir Íbúða­lána­sjóður að hafa vaxta­tekjur af fjár­magn­inu sem hann sótti með skulda­bréfa­út­gáfu en er áfram með vaxta­kostnað vegna hennar. Með öðrum orðum þá borgar Íbúða­lána­sjóður fyrir fjár­magnið sem hann sýslar með, en græðir ekki neitt á stórum hluta þess. Þannig tapar hann háum summum ár frá ári og ríkið, sem er eig­andi sjóðs­ins og ber ábyrgð á honum, þarf að stíga inn og halda honum á floti með skattfé. Að minnsta kosti þar til annað er ákveðið á hinu póli­tíska sviði.

90 milljarðar í uppgreiðslu frá 2010

Upp­greiðslur á almennum lánum hafa verið hraðar á und­an­förnum árum. Frá árinu 2010 hafa alls 90 millj­arðar króna komið inn í Íbúða­lána­sjóð vegna upp­greiðslu lána. Á sama tíma nema útlán sjóðs­ins 66,3 millj­örðum króna. Munurinn er 23,7 millj­arðar króna.


Verst hefur ástandið verið í ár, 2014. Þá hafa við­skipta­vinir Íbúða­lána­sjóðs greitt upp lán fyrir 24,2 millj­arða króna á sama tíma og sjóð­ur­inn hefur ein­ungis lánað út 4,3 millj­arða króna í almenn íbúða­lán. Munurinn er um 20 millj­arðar króna. Fá teikn virð­ast vera á lofti um að árið 2015 verði gjöf­ulla fyrir Íbúða­lána­sjóð þar sem flestir hús­næð­is­kaup­endur virð­ast leita til ann­arra lán­veit­enda, við­skipta­banka og líf­eyr­is­sjóða, til að fjár­magna íbúða­kaup sín.

[caption id="attachment_8962" align="alignnone" width="1024"] Eygló Harð­ar­dóttir,
félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, hefur til­kynnt að frum­varp um fram­tíð­ar­skipan hús­næð­is­mála verði lagt fram í nán­ustu fram­tíð.[/caption]

Verður Íbúðalánasjóður lagður niður?


Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, skip­aði verk­efna­stjórnar um fram­tíð­ar­skipan hús­næð­is­mála sem skil­aði til­lögum fyrr á þessu ári. Í þeim var meðal ann­ars lagt til að Íbúða­lána­sjóður yrði lagður niður í núver­andi og nýtt fyr­ir­komu­lag tekið upp. Til stóð að leggja fram frum­varp um málið á haust­þingi en af því varð ekki, enda sumar til­lögur verk­efna­stjórn­ar­innar mjög umdeildar innan stjórn­ar­flokk­anna.

Búist er við því að frum­varpið verði lagt fram á vor­þingi.

Í vik­unni bætt­ist svo enn ein röddin í gagn­rýn­is­hóp Íbúða­lána­sjóðs þegar Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn lagði til að stjórn­völd myndu huga að því að leysa upp sjóð­inn til að lág­marka kostnað rík­is­ins og þá kerf­is­á­hættu sem hlýst af sjóðnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár