Stærsti banki Rússlands varar við því að það stefni í bankakreppu

Evgeny Gavri­len­kov, aðal­hag­fræð­ingur fjár­fest­inga­banka­arms rúss­neska bank­ans Sberbank CIB, hefur varað við því að þær aðgerðir sem rúss­nesk stjórn­völd hafa ráð­ist í til að bjarga rúss­neskum bönkum sem eiga í miklum vand­ræðum, gætu leitt til risa­vax­innar banka­kreppu.SberBank CIB er stærsti lán­veit­andi Rúss­lands.

Í frétt á vef Business Insider er haft eftir honum að ef seðla­banki Rúss­lands heldur áfram að end­ur­fjár­magna banka í skiptum fyrir skulda­bréf sem eng­inn mark­aður er fyrir, en bank­arnir geti fram­leitt í nán­ast ótæm­andi magni, þá muni það leiða til banka­kreppu af stærstu gerð.


Munu ekki geta endurgreitt lán


Þetta er staða sem er Íslend­ingum að nokkru kunnug. Í aðrag­anda banka­hruns­ins sem átti sér stað hér­lendis í októ­ber 2008 dældu íslensku bank­arnir skulda­bréfum gefnum út af sjálfum sér inn í Seðla­banka Íslands í skiptum fyrir lausafé. Þegar þeir voru búnir með kvót­ann þá fengu þeir smærri fjár­mála­fyr­ir­tæki til að vera milli­göngu­að­ilar gegn þóknun. Þessi svoköll­uðu ást­ar­bréfa­við­skipti end­uðu með ósköpum og því að íslenska ríkið þurfti að taka yfir miklar skuldir Seðla­bank­ans.

Í kjöl­far þeirrar miklu efna­hagslægðar sem lagst hefur yfir Rússland unda­farið vegna hríð­lækk­andi olíu­verðs og falls rúblunar um yfir 40 pró­sent á þessu ári hefur rúss­neski Seðla­bank­inn ákveðið að styðja við bakið á bönkum lands­ins með þvi að veita þeim umfangs­mikla lausa­fjár­fyr­ir­greiðslu gegn veðum, meðal ann­ars í skulda­bréfum þeirra.

Í síð­ustu viku hækk­aði seðla­bank­inn hins vegar stýri­vexti sína í 17 pró­sent og við það hækk­uðu vit­an­lega lánin sem rúss­nesku bank­arnir hafa tekið hjá honum. Gavri­len­kov telur að bank­arnir muni ekki geta greitt til baka þau lán sem þeir hafa tekið hjá seðla­bank­anum og að veðin sem sett hafi verið fyrir lán­unum séu ekki nægi­lega góð til að geta brúað fyr­ir­sjá­an­legt tap seðla­bank­ans.

Ummæli Gavri­len­kov eru óvenju­leg, enda er um að ræða hvassa gagn­rýni á efna­hags­stefnu rúss­neskra stjórn­valda. Það er ekki mikil hefð fyrir slíkri á und­an­förnum árum í Rúss­landi undir stjórn Vladimír Pútins.

Neytendur hamstra neysluvörur


Staðan í Rúss­landi er að verða verri og verri með hverjum deg­inum sem líður. Vegna þess að rúblan er í frjálsu falli þá hefur almenn­ingur reynt að binda fé sitt í ein­hverju sem tapar ekki virði, meðal ann­ars dýrri neyslu­vöru á borð við hús­gögn, bíla eða far­síma.

[caption id="attachment_15009" align="align­right" width="300"] Rúss­neskur almenn­ingur hefur verið að hamstra varn­ing.[/caption]

Stórir fram­leið­endur neyslu­vara, á borð við Apple og Ikea, hafa brugð­ist við með því að hækka verð á vörum sínum sem eru seldar í Rúss­landi mikið og hætt við allar fyr­ir­hug­aðar útsölur. Bíla­fram­leið­end­urnir General Motores, Jaguar, Land Rover og Audi hafa stöðvað send­ingar með nýjum bílum sem ætl­aðar voru á Rúss­lands­markað og Apple hefur lokað vef­verslun sinni fyrir Rússum eftir að 25 pró­sent hækkun á útsölu­verði á iPhone 6 dró ekk­ert úr eft­ir­spurn eftir honum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár