Í Seðlabanka með aðgang að trúnaðarupplýsingum í miklum fjárfestingum

Félag í eigu starfs­manns Seðla­banka Íslands, sem hafði aðgang að trún­að­ar­upp­lýs­ingum, stóð í umsvifa­miklum fjár­fest­ingum með hluta­bréf, fram­virka samn­inga og gjald­miðla á árunum 2007 og 2008. Upp komst um umsvif við­skipta félags manns­ins sum­arið 2013 og var honum sagt upp störfum nokkrum mán­uðum síðar.

Hann höfð­aði mál á hendur Seðla­bank­anum vegna upp­sagn­ar­innar sem hann tap­aði í hér­aðs­dómi á fimmtu­dag. Starfs­menn Seðla­bank­ans sem báru vitni í mál­inu sögði mann­inn hafa brotið gróf­lega trúnað, brotið gegn lögum um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins og brotið gegn reglum Seðla­bank­ans um heim­ild starfs­manna hans til setu í stjórnum stofn­ana og atvinnu­fyr­ir­tækja.

Seðla­bank­inn hefur ekki gripið til neinna ann­arra aðgerða gagn­vart mann­inum en að segja honum upp störfum. Mál hans er því ekki til rann­sóknar.

Vann á gjaldeyrisborði en átti viðskipti með gjaldeyri


Seðla­banki Íslands var á fimmtu­dag sýkn­aður af kröfu fyrrum starfs­manns sem höfð­aði skaða­bóta­mál á hendur bank­anum vegna þess hann taldi ólög­mæta upp­sögn. Maðurinn, Hall­grímur Ólafsson, vildi fá 19,7 millj­ónir króna frá bank­anum vegna þess að honum var sagt upp starfi sínu í fyrra. Upp­sögnin átti sér stað eftir að upp komst að félag sem mað­ur­inn átti 30 pró­sent hlut í hefði farið út í fjár­fest­ingar á árinu 2007, meðal ann­ars á verð­bréfa­mark­aði, með gjald­eyri og fram­virka samn­inga um kaup á hluta­bréfum. Samkvæmt árs­reikn­ingi átti félagið, Skólabrú hf., eignir upp á 120,5 millj­ónir króna í lok árs 2007.

Félagið hafði áður átt fast­eign sem var seld haustið 2007 og sölu­á­góð­inn not­aður í ofan­greindar fjár­fest­ingar.

[quote font="0" align="right"] Starfs­menn Seðla­bank­ans, sem unnu með honum og gáfu vitna­skýrslur við aðal­með­ferð, báru allir að hann hefði haft aðgang að trún­að­ar­upp­lýs­ingum sem engan veg­inn hafi getað sam­rýmst því að hann væri jafn­framt fram­kvæmda­stjóri félags sem hafi verið í umsvifa­miklum fjár­fest­ingum. [/quote]

Hall­grímur hélt því fram fyrir dómi að hann, sem starfs­maður Seðla­bank­ans, ekki haft neinn aðgang að mark­aðs­upp­lýs­ingum umfram almenn­ing og hvað þá að hann hafi búið yfir inn­herj­a­upp­lýs­ingum. Starfs­menn Seðla­bank­ans, sem unnu með honum og gáfu vitna­skýrslur við aðal­með­ferð, báru allir að hann hefði haft aðgang að trún­að­ar­upp­lýs­ingum sem engan veg­inn hafi getað sam­rýmst því að hann væri jafn­framt fram­kvæmda­stjóri félags sem hafi verið í umsvifa­miklum fjár­fest­ingum. Enginn þeirra virð­ist hafa hafa haft hug­mynd um fjár­fest­inga­um­svif Hall­gríms fyrr en í fyrra­sumar. Næsti yfir­maður hans sagði til dæmis fyrir dómi að „Meðal ann­ars hafi Skólabrú ehf., í við­skiptum við Lands­bank­ann í ágúst 2008, gert fram­virkan hluta­fjár­samn­ing um kaup í fyr­ir­tæk­inu Atlantic petr­olium, samn­ing­ur­inn hafi verið í dönskum krónum og sett hafi verið að hand­veði inni­stæða á evru­gjald­eyr­is­reikn­ingi. Á sama tíma hafi stefn­andi verið að vinna á gjald­eyr­is­borði stefnda sem sé ótrú­legt. Því hafi stefn­andi brotið gróf­lega trúnað gagn­vart sér sem næsta yfir­manni sínum".

Umfang upplýst sumarið 2013


Aðal­lög­fræð­ingur Seðla­bank­ans komst að aðkomu manns­ins að félag­inu Skólabrú ehf. þegar hún var að vinna að frum­inn­herj­a­lista Seðla­bank­ans á árinu 2012. Hann var í kjöl­farið beð­inn um að gera Má Guð­munds­syni seðla­banka­stjóra og reglu­verði bank­ans grein fyrir félag­inu og starf­semi þess. Kom þá í ljós að Skólabrú hf. hefði farið út í fjár­fest­ingar í hluta­bréfum, með gjald­eyri og fram­virka samn­inga, eftir að hafa selt fast­eign sem það átti á árinu 2007. Þar kom einnig fram að félagið ætti í deilum við slita­stjórn Lands­bank­ans og Virðingu vegna fjár­fest­inga sinna og að lík­legt væri að málið myndi enda fyrir dóm­stólum. Hall­grímur sagði sig í kjöl­farið úr stjórn félags­ins eftir að seðla­banka­stjóri hafði hafnað bón hans um að sitja áfram í henni.

Í júní 2013 féll dómur í máli Skóla­brúar hf. gegn Virðingu og var sá dómur birtur á vef dóm­stóla lands­ins. Málið snérist um að Skólabrú taldi Virðingu hafa farið út fyrir fjár­fest­inga­heim­ildir sínar með fé félags­ins og krafð­ist skaða­bóta. Virðing var sýknuð af kröfu félags­ins.

[quote font="0" align="right"]Í dómnum kemur hins vegar ýmis­legt athygl­is­vert fram sem olli áhyggjum innan Seðla­bank­ans. Þar segir meðal ann­ars að Skólabrú hafi fjár­fest í hluta­bréfum og fram­virkum samn­ingum í félögum á borð við Atorku, Kaup­þingi, Straumi-Burðarás og Existu[/quote]

Í dómnum kemur hins vegar ýmis­legt athygl­is­vert fram sem olli áhyggjum innan Seðla­bank­ans. Þar segir meðal ann­ars að Skólabrú hafi fjár­fest í hluta­bréfum og fram­virkum samn­ingum í félögum á borð við Atorku, Kaup­þingi, Straumi-Burðarás og Existu. Í grein­ar­gerð Skóla­brúar í mál­inu segir að Hall­grímur hafi sent tölvu­póst í jan­úar 2008 þar sem hann vildi að öll sam­skipti Virð­ingar við Skólabrú ættu að fara fram við stjórn­ar­for­mann Skóla­brúar, ekki fram­kvæmda­stjóra, sem var Hall­grímur sjálfur. Í dómnum segir að sú skýr­ing hafi verið gefin á fyr­ir­komu­lag­inu „að vegna starfa Hall­gríms í Seðla­banka Íslands gæti hann ekki af „aug­ljósum ástæðum“ staðið í sím­tölum eða kaupum á verð­bréfum í vinnu­tíma[..] Hall­grímur hafi þó oft haft sam­band við [...] í far­síma hans“.

[quote font="0" align="right"] Í dómnum segir að sú skýr­ing hafi verið gefin á fyr­ir­komu­lag­inu „að vegna starfa Hall­gríms í Seðla­banka Íslands gæti hann ekki af „aug­ljósum ástæðum“ staðið í sím­tölum eða kaupum á verð­bréfum í vinnu­tíma[..] Hall­grímur hafi þó oft haft sam­band við [...] í far­síma hans“.[/quote]

Í grein­ar­gerð­inni kemur líka fram að Hall­grímur hafi sjálfur hringt í þann starfs­mann Virð­ingar sem sá um fjár­fest­ingar fyrir Skólabrú til þess að óska „fyrir hönd stefn­anda eftir kaupum á hluta­bréfum í Kaup­þingi banka hf. og að jafn­framt yrðu gerðir fram­virkir samn­ingar um kaup á hluta­bréfum í Exista hf. og Straumi-Burða­r­ási hf.“. Á árinu 2008 hafi Hall­grímur síðan verið í beinum sam­skiptum fyrir hönd Skóla­brúar við þáver­andi starfs­mann Virð­ingar um fjár­fest­ingar Skóla­brúar.

[caption id="attachment_12491" align="alignnone" width="640"] Kröfu manns­ins um miska­bætur vegna upp­sagnar var hafnað í hér­aðs­dómi á fimmtu­dag, 18. des­em­ber.[/caption]

Sagt upp í október 2013


Dómar í málum Skóla­brúar gegn þrota­búi Lands­bank­ans og Virðingu gengu báðir á fyrri hluta árs­ins 2013 og voru báðir birtir opin­ber­lega. Í sýknu­dómnum yfir Seðla­bank­anum, sem féll á mið­viku­dag, segir: „Urðu dómar þessir til­efni þess að stefn­andi var kall­aður á fund seðla­banka­stjóra þann 28. júní 2013 og honum afhent bréf und­ir­ritað af seðla­banka­stjóra og reglu­verði bank­ans. Í bréf­inu kemur fram að þann 10. júní 2013 hafi gengið dómur í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í mál­inu E-198/2012: Skólabrú ehf. gegn Virðingu hf. og dóm­ur­inn birtur á vef­síðu hér­aðs­dóms­ins þann 26. júní sl. Í dóm­inum komi fram upp­lýs­ingar um aðkomu stefn­anda að verð­bréfa-, gjald­eyris- og afleiðu­við­skiptum Skóla­brúar á árunum 2007 og 2008, sem fram­kvæmda­stjóri Skóla­brúar ehf. og jafn­framt starfs­maður Seðla­banka Íslands á sama tíma.

Vísað var síðan til 5. gr. reglna stefnda nr. 831/2002 um með­ferð trún­að­ar­upp­lýs­inga og verð­bréfa- og gjald­eyr­is­við­skipti starfs­manna. Þess var óskað af hálfu stefnda að stefn­andi tæki sér tíma­bundið leyfi frá störfum á launum frá 28. júní 2013 á meðan athugað væri hvort stefn­andi hefði gerst brot­legur í starfi við lög og starfs­reglur stefnda. Síðan fór í gang rann­sókn af hálfu stefnda á mál­inu og var m.a. aflað gagna frá utan­að­kom­andi aðilum sem stefn­andi hafði veitt heim­ild til að afla gagna frá.“

Í októ­ber 2013 komst Seðla­bank­inn að þeirri nið­ur­stöðu að Hall­grímur hefði brotið gróf­lega gegn lögum um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins sem og gegn reglum Seðla­bank­ans um heim­ild starfs­manna hans til setu í stjórnum stofn­ana og atvinnu­fyr­ir­tækja. Eftir að honum hafði verið gefið tæki­færi til að and­mæla var Hall­grími sagt upp störfum þann 23. októ­ber 2013 það sem það væri mat Seðla­bank­ans að hann hefði „brotið gróf­lega gegn trún­að­ar­skyldum í starfi sínu“.

Hall­grímur sætti sig ekki við þessa nið­ur­stöðu og höfð­aði skaða­bóta­mál. Upp­haf­lega fór hann fram á 47,6 milj­ónir króna í miska­bætur. Við upp­haf aðal­með­ferðar var sú krafa síðan lækkuð niður í 19,7 milj­ónir króna. Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hafn­aði þeirri kröfu á fimmtu­dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár