Of lág grunnlaun, of fáir læknar og of margir þeirra á leið á eftirlaun

Það hefur vart farið fram­hjá neinum að læknar eru í verk­falli. Ýmislegt hefur verið full­yrt um kröfur þeirra og þær ástæður sem liggja fyrir þvi að þeir séu í verk­falli. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði til dæmis á Alþingi nýverið að læknar væru að krefj­ast 50 pró­sent launa­hækk­anna og að almennur læknir á Lands­spít­al­anum sé með um 1,1 milljón króna á mán­uði í heild­ar­laun og yfir­læknar með um 1.350 þús­und krónur í heild­ar­laun.

Ef þetta er rétt, yfir hverju eru læknar þá að kvarta? Fyrr í vik­unni var sent út skjal til fjöl­miðla frá félags­skap sem kallar sig „Raddir íslenskra lækna“. Skjalið, sem er nokk­urs konar spurt og svarað um stöðu lækna á Íslandi og ástæður þess að þeir eru í verk­falli. Hér að neðan er rakið það helsta sem fram kemur í skjal­inu og varpar skýr­ara ljósi á það sem læknar eru að fara fram á.

[caption id="attachment_14846" align="alignnone" width="640"] Vaxandi fjöldi lækna yfir 55 ára aldri og sífellt verri end­ur­nýjun ungra sér­fræð­inga er að skapa svart­hol sem er ekki fyr­ir­sjá­an­legt að verði leyst.[/caption]

Laun, álag og aðbúnaður


Samkvæmt launa­töflu lækna eru grunn­laun þeirra, frá kandidötum til sér­fræð­inga, frá 340.734 krónum (kandi­dat í 1. launa­þrepi) til 750.788 þús­und krónur (sér­fræð­ingur í 5. launa­þrepi).

Til við­bótar taka allir læknar undir 55 ára aldri á sig tölu­vert magn af vöktum sem unnin er til við­bótar við venju­lega dag­vinnu, sem er líkt og hjá öðrum 40 klukku­tímar á viku. Yfir­vinnu­taxti þeirra er frá 3.279 krónum á tím­ann (kandi­datar) til 5.062 krónur á tím­ann (sér­fræð­ingar).

Engin opin­ber sama­tekt hefur verið gerð á því hversu margar vaktir læknar vinna utan vinnu­tíma á mán­uði en í skjal­inu er vísað í dæmisögur ein­stakra lækna.Þar kemur fram að tauga­læknir nýkom­inn úr sér­námi vinni um 175 klukku­stundir, hjarta­læknir nýkom­inn úr sér­námi um 100 klukku­stundir, heila- og tauga­skurð­læknir yfir 200 klukku­stundir (enda eru ein­ungis þrír starf­andi sér­fræð­ingar sem skipta með sér öllum vöktum árs­ins), almennir læknar um 50-80 klukku­stundir og heilsu­gæslu­læknar taka bak­vaktir utan þétt­býlis utan hefð­bund­ins dag­vinnu­tíma.

Læknar vilja meina að þetta vakta­á­lag sé í and­stöðu við Evr­óputil­skipun um hvíld­ar­tíma og frí­töku­rétt.

Í skjal­inu segir að „með síversn­andi mönnun dreifast vaktir á færri hópa lækna og margir læknar bera því meiri vakta­byrði en þeir kæra sig um. Vaxanda fjöldi lækna >55 ára og sífellt verri end­ur­nýjun ungra sér­fræð­inga er a skapa svart­hol sem ekki er fyr­ir­sjá­an­legt hvernig verður leyst. Aug­ljós­lega getur þessi þróun ekki haldið áfram öðru­vísi en að færri læknar hlaupi hraðar og vinni meira. Í því liggur meg­in­á­stæða verk­falls lækna­stétt­ar­innar“.

[caption id="attachment_14847" align="alignnone" width="640"] að 303 læknar eru að fara á eft­ir­laun næsta ára­tug­inn. Alls verða 27 pró­sent allra starf­andi lækna 65 ára eða eldri á næstu fimm árum og 41 pró­sent þeirra verður eldri en 55 ára.[/caption]

Fjöldi núna


Á Íslandi eru 1.101 læknar starf­andi. Alls hafa 330 læknar með lækn­inga­leyfi flutt af landi brott á síð­ustu fimm árum en 140 flutt aftur heim á sama tíma­bili. Um 230 læknar bætt­ust við lækna flór­una á þessu tíma­bili en 90 þeirra hafa þegar flutt af landi brott.

Því eru 110 færri starf­andi læknar á Íslandi árið 2014 en voru árið 2009. Á sama tíma hefur Íslend­ingum fjölgað úr 319 þús­und í tæp­lega 326 þús­und.

Auk full­gildra lækna starfa 49 kandi­datar og 292 lækna­nemar á lands­spít­al­anum.

[quote font="0" align="right"]Auk þess sýndi óform­leg könnun sem gerð var í októ­ber 2014 að 52 pró­sent séfræði­lækna hér­lendis vilji flytja, eða íhugi að flytja, af landi brott.[/quote]

Fjórir af hverjum tíu íslenskum læknum eru sem stendur erlendis,eða 731 læknir. Auk þess sýndi óform­leg könnun sem gerð var í októ­ber 2014 að 52 pró­sent séfræði­lækna hér­lendis vilji flytja, eða íhugi að flytja, af landi brott. Sama könnun sýndi að það virð­ist lít­ill vilji hjá þeim Íslend­ingum sem eru í sér­fræði­námi erlendis að snúa heim. Einungis 25 pró­sent þeirra hefur ákveðið að snúa heim, en fæstir þeirra ætla að gera það á næstu árum.

Fjöldi í framtíðinni


Í skjal­inu er birt spá sem sýnir að miðað við áfram­hald­andi þróun muni verða 390 Íslend­ingar per lækni árið 2023. Í dag eru 295 Íslend­ingar per lækni. Á hinum Norð­ur­lönd­unum eru 240 íbúar á hvern lækni.

Hluti af þess­ari þróun er sú stað­reynd að 303 læknar eru að fara á eft­ir­laun næsta ára­tug­inn. Alls verða 27 pró­sent allra starf­andi lækna 65 ára eða eldri á næstu fimm árum og 41 pró­sent þeirra verður eldri en 55 ára. Þá þurfa þeir ekki lengur að taka vaktir.

Í skjal­inu er einnig bent á að lækna­nám er oft 12-15 ár og að læknar taki náms­lán að minnsta kosti hluta þess. Mjög lít­ill hluti kostn­aðar við menntun lækna lendir á Íslenska rík­inu.

Oft er gripið til þeirra raka að Íslend­ingar eigi að ráða erlenda lækna frá minna þró­uðum löndum til að ganga í störf þeirra sem yfir­gefi landið. Íslensk tungu­mála­kunn­átta er hins vegar algjört skil­yrði fyrir var­an­legu lækn­inga­leyfi hér­lendis. Auk þess eru nú þegar nokkrir erlendir sér­fræð­ingar að störfum hér­lendis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár