Með rýtinginn í erminni

Hörð átök hafa und­an­farið geisað innan danska Venstre flokks­ins. Eitt dönsku blað­anna sagði nýverið að for­ystu­menn flokks­ins gangi með rýt­ing­inn í erminni, til­búnir að stinga hver annan þegar tæki­færi gefst. Allt er þó slétt og fellt á yfir­borð­inu.

Venstre (sem þrátt fyrir nafnið er hægri miðju­flokkur) er stærsti flokk­ur­inn á danska þing­inu, Fol­ket­inget, með 47 þing­menn. Í kosn­ing­unum 15. sept­em­ber 2011 bætti flokk­ur­inn við sig einum þing­manni en vegna slakrar útkomu sam­starfs­flokk­anna tveggja missti stjórnin þing­meiri­hlut­ann og við tók rík­is­stjórn Helle Thorning-Schmidt. Lars Lökke Rasmus­sen for­maður Venstre var, þrátt fyrir að vera nú kom­inn í stjórn­ar­and­stöðu, lang vin­sæl­asti stjórn­mála­maður Dan­merkur. Lykke Lökke köll­uðu sumir fjöl­miðlar hann. Hann var þó lítt áber­andi í stjórn­mála­um­ræð­unni og tók lít­inn þátt í störfum þings­ins, steig til dæmis ekki í pontu í þingsalnum í 692 daga sam­fellt.

„Allt tekur enda um síðir“ segir mál­tækið og það á sann­ar­lega við um hveiti­brauðs­daga Lökkes í stjórn­ar­and­stöð­unni og „hver hefur sinn djöful að draga“ passar kannski ekki síður.

Í fyrra­haust, tveimur árum eftir kosn­ingar var Lars Lökke dögum saman helsta umfjöll­un­ar­efni danskra fjöl­miðla. Ástæðan var for­mennska hans í sam­tökum sem styðja við efna­hags­upp­bygg­ingu í fátæk­ari löndum heims. Upp komst að sam­tökin, sem eru meðal ann­ars fjár­mögnuð af danska rík­inu, höfðu borgað flug­miða og hót­elgist­ingu fyrir dóttur Lars Lökke. Fjöl­miðlar rifj­uðu upp eldri mál sem tengd­ust leigu­bíla­reikn­ingum, gist­ingu mat og víni, nefndar voru upp­hæðir sem jafn­gilda tæpum 20 millj­ónum íslenskra króna. Lars Lökke hélt lengsta frétta­manna­fund í sögu Dan­merkur (stóð í þrjár og hálfa klukku­stund og sendur út í beinni sjón­varps­út­send­ingu) til að útskýra málið en frétta­menn og sjón­varps­á­horf­endur voru litlu nær.

[caption id="attachment_14419" align="aligncenter" width="3751"] Lars Lökke Rasmus­sen á fundi með blaða- og frétta­mönnum.[/caption]

Flokkurinn borgaði föt og bíl


Vart var öld­urnar farið að lægja vegna þess­arar umræðu þegar upp komst að Venstre flokk­ur­inn hafði borgað jakka­föt, skyrtur, skó og jafn­vel nær­föt fyrir flokks­for­mann­inn. Allt keypt í einni dýr­ustu verslun lands­ins og upp­hæð­irnar ( jafn­gildi rúm­lega þriggja millj­óna íslenskra króna) slíkar að mörgum blöskr­aði. Ýmsir framá­menn í flokknum báru blak af Lars Lökke og sögðu mik­il­vægt að for­mað­ur­inn kæmi vel fyrir, bæði á myndum og eins þegar hann væri út á meðal fólks. Sum dag­blað­anna gerðu grín að þessu fata­máli og sögðu að þrátt fyrir fata­reikn­ing­ana liti Lars Lökke alltaf út eins og hann hefði fengið lánuð eld­gömul jakka­föt af afa sínum. Ekki skán­aði það þegar upp komst að flokk­ur­inn stóð straum af kostn­aði bíls og bíl­stjóra fyrir for­mann­inn og loks kom svo í ljós að hann bjó í láns­í­búð í mið­borg Kaup­manna­hafnar sem óljóst var hver bæri kostn­að­inn af.

Flokksmönnum leist ekki á blikuna


Lengi vel hugg­aði for­ysta Venstre sig við skoð­ana­kann­an­irnar sem sýndu stöðugt fylgi flokks­ins og for­manns­ins. En þar varð skyndi­lega breyt­ing á síð­ast­liðið vor. Flokk­ur­inn hélt sínu fylgi en vin­sældir for­manns­ins hrundu og nán­ast eins og hendi væri veifað var Lars Lökke orð­inn óvin­sæl­asti stjórn­mála­maður lands­ins. Flokks­for­ystan klór­aði sér í koll­inum, aðeins rúm­lega ár til kosn­inga. Fram til þessa hafði eng­inn látið sér til hugar koma að hrófla við for­mann­inum en nú fóru ýmsir að hugsa sitt. Þar á meðal vara­for­maður flokks­ins, Kristian Jensen.

Örlagadagurinn 3. júní 2014


Flokks­for­ystu Venstre var ljóst, þegar þarna var komið við sögu að ekki væri víst að Lars Lökke nyti stuðn­ings innan mið­stjórnar flokks­ins til áfram­hald­andi for­mennsku. Ýmsir áhrifa­menn í flokknum höfðu lýst því yfir að for­mað­ur­inn nyti ekki lengur stuðn­ings þeirra og ekki var heldur hægt að líta fram­hjá könn­unum sem sýndu tak­mark­aðar vin­sældir for­manns­ins. Þann 3. júní var boðað til mið­stjórn­ar­fundar í Ráð­stefnu­höll­inni í Óðins­véum. Þar hugð­ust and­stæð­ingar Lars Lökke velta honum úr sessi og gera Kristian Jensen að for­manni. Í nýút­kominni bók um Lars Lökke, sem heitir ein­fald­lega LLR, segir flokks­for­mað­ur­inn að þegar hann lagði af stað til Óðinsvéa hafi hann verið hand­viss um að for­mann­s­tíð sinni lyki á þessum fundi. Hann ætl­aði hins vegar að reyna að sjá til þess að Kristian Jensen sett­ist ekki í for­manns­stól­inn. Til að taka við for­mennsk­unni í flokknum ætl­aði Lars Lökke að tefla fram Sören Gade, gömlum flokks­hesti og fyrr­ver­andi varn­ar­mála­ráð­herra en hann hætti á þingi 2010.

[caption id="attachment_14420" align="aligncenter" width="4256"] Kristian Jensen, vara­for­maður Venstre, fer með gam­an­mál við vörð drottn­ingar.[/caption]

Óvæntur stuðningur á bílastæði breytti öllu


Á leið­inni til Óðinsvéa stopp­aði Lars Lökke (segir frá þessu í LLR) á bíla­stæði við Ringsted vestan við Köge. Þarna á bíla­stæð­inu viku sér að honum fjórir Danir. Þeir sögðu Lars Lökke að illa væri komið fram við hann og hann ætti stuðn­ing þeirra. „Þessi trausts­yf­ir­lýs­ing og 100 pró­sent stuðn­ingur fjór­menn­ing­anna á bíla­stæð­inu varð til þess,“ segir Lars Lökke orð­rétt í bók­inni, „að ég hugs­aði; ég skulda þessu fólki það að berj­ast áfram.“ Frá­sögnin af þessum stutta fundi á bíla­stæð­inu vakti mikla athygli og fjöl­miðl­arnir hér eru ekki sér­lega trú­aðir á sann­leiks­gildi hennar. Í vin­sælum umræðu­þætti í danska sjón­varp­inu, DR, lýsti þátta­stjórn­and­inn eftir fjór­menn­ing­unum og það hafa tvö dag­blöð einnig gert. Fólkið hefur ekki gefið sig fram.

Þriggja manna fundur í kjallaranum


Fundinn í Óðins­véum sátu 128 manns, allir sem rétt höfðu til fund­ar­setu. Mjög tví­sýnt var talið að Lars Lökke ætti stuðn­ing meiri­hluta funda­manna vísan. Áður en kosn­ingu kom var gert hlé og skotið á þriggja manna fundi í kjall­ara­her­bergi í ráð­stefnu­höll­inni. Auk Lars Lökke og Krist­i­ans Jensen var þar Lars Krarup, áhrifa­maður í flokknum og borg­ar­stjóri í Herning. Enginn, utan þre­menn­ing­anna, veit með vissu hvað þar fór fram en þegar þeir komu upp úr kjall­ar­anum lýsti Kristian Jensen yfir stuðn­ingi við Lars Lökke Rasmus­sen til áfram­hald­andi for­mennsku í flokknum. Ekstra Blaðið sagði að Kristian Jensen hefði örugg­lega verið með lyga­merki á putt­unum þegar hann lýsti yfir stuðn­ingnum.

Fara ekki saman á barinn


Þing­kosn­ingar fara fram hér í Danmörku á næsta ári, í síð­asta lagi í sept­em­ber. Skoð­ana­kann­anir benda til stjórn­ar­skipta og gangi það eftir verður for­maður Venstre að öllum lík­indum for­sæt­is­ráð­herra. Þrátt fyrir að friður hafi verið sam­inn, á yfir­borð­inu, er mikil ólga innan for­ystu­sveitar Venstre. Haft hefur verið eftir vara­for­mann­inum Kristian Jensen, ekki þó opin­ber­lega, að hann geti ekki hugsað sér að starfa með Lars Lökke eftir næstu kosn­ingar. Hann hefur líka sagt að hann ætli sér að vera áfram í stjórn­málum og nýtur enn mik­ils trausts í flokknum. Stjórn­mála­skýrendur hér telja að Lars Lökke muni gera allt sem hann geti til þess að „tengja fram­hjá“ Kristian Jensen og fylg­is­mönnum hans ef Venstre kemst í stjórn að loknum kosn­ingum.

And­rúms­loftið innan for­ystu­sveitar flokks­ins er þannig lævi blandið og allt getur gerst. „Þeir ganga allir um með rýt­ing­inn fal­inn í erminni,“ sagði einn stjórn­mála­skýr­andi í blaða­grein fyrir skömmu. Orð sem Kristian Jensen lét nýlega falla í við­tali lýsa kannski best sam­bandi for­manns og vara­for­manns „ef ég ætl­aði að bregða mér á bar­inn myndi ég ekki hnippa í Lars Lökke og bjóða honum með. Hann myndi ekki heldur bjóða mér með.“ Þetta segir allt um ástandið í flokks­for­yst­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár