Bankarnir keyptu allir nýtt hlutafé í Reitum

Arion banki, Lands­banki og Íslands­banki keyptu allir nýtt hlutafé í Reitum á mánu­dag. Þá var hlutafé í þessu stærsta fast­eigna­fé­lagi lands­ins aukið um 17 millj­arða króna og eldri eig­endur félags­ins keyptu nýtt hlutafé fyrir fimm millj­arða króna. Þeir eru að langstærstu leyti ofan­greindir bankar.

Reitir er stærsta fyr­ir­tæki á Íslandi í útleigu á atvinnu­hús­næði. Það á 130 fast­eignir sem eru alls um 410 þús­und fer­metr­ara að stærð. Virði fast­eigna­safns­ins er um 100 millj­arðar króna. Á meðal þekktra fast­eigna í eigu Reita eru Kringlan, Hilton Reykja­vík Nordica, Icelandair hótel Reykja­vík Natura og Kaup­hall­ar­húsið. Stærstu leigu­takar félags­ins eru smá­söluris­inn Hagar, Flug­leiða­hót­elin, ríkið og sveit­ar­fé­lög.

[caption id="attachment_14333" align="alignnone" width="640"] Kringlan er ein þeirra bygg­inga sem Reitir á.[/caption]

Félagið endurfjármagnað


Tilkynnt var um það í vik­unni að Reitir hefðu lokið alls 68 millj­arða króna end­ur­fjár­mögnun. Í henni fólst að félagið gaf út 25 millj­arða króna skulda­bréfa­flokk, fékk 26 millj­arða króna banka­lán og jók hlutafé sitt um 17 millj­arða króna.

Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR), Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, Gildi-líf­eyr­is­sjóður og líf­eyr­is­sjóðir í eigna­stýr­ingu hjá Arion banka keyptu nýtt hlutafé fyrir tólf millj­arða króna og eign­uð­ust við það 31 pró­sent í Reitum. Afgang­inn af hluta­fjár­aukn­ing­unni, sem kost­aði fimm millj­arða króna, keyptu eldri hlut­hafar. Þeir eru að langstærstu leyti íslenskir við­skipta­bank­arnir þrír auk þrota­bús Glitnis.

Þrotabú Glitnis keypti og seldi aftur


Krist­jana Ósk Jóndóttir, mark­aðs­stjóri Reita, segir í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um hluta­fjár­aukn­ing­una að allir eldri hlut­hafar Reita hafi nýtt sér for­kaups­rétt sinn og tekið þátt. Hver og einn keypti því í sam­hengi við fyrri eign sína. Það þýðir að Eigna­bjarg, dótt­ur­fé­lag Arion banka, hafi keypt nýtt hlutafé fyrir 2,1 millj­arð króna, Lands­bank­inn, sem er í eigu íslenska rík­is­ins, keypti hlutafé fyrir 1,6 millj­arð króna og Íslands­banki keypti fyrir 345 millj­ónir króna.

Þrotabú Glitnis, sem átti 11,2 pró­sent hlut í sínu eigin nafni og í nafni Haf Funding Ltd., keypti nýtt hlutafé fyrir um 560 millj­ónir króna. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Glitni var sú þátt­taka þó skil­yrt því að þrota­búið var búið að selja nýja hluta­féð áfram áður en það keypti það. Því staldr­aði það stutt við í eigu þess. Ekki fékkst upp­lýst hver kaup­and­inn sé.

[caption id="attachment_13426" align="alignnone" width="640"] Lands­bank­inn á stóran hlut í Reitum. Hann, eins og hinir við­skipta­bank­arnir, tók þátt í hluta­fjár­aukn­ing­unni.[/caption]

Yfirlýst markmið að selja félög í óskyldum rekstri


Kaup við­skipta­bank­anna á nýju hlutafé í Reitum eru athygl­is­verð í ljósi þess að það er yfir­lýst stefna þeirra allra að selja eignir í óskyldum rekstri sem fyrst. Í starfs­reglum Eigna­bjargs segir að félagið skuli „eftir fremsta megni haga því svo að eigna­halds­tími þess á fyr­ir­tækjum í eigu félags­ins vari í eins skamman tíma og hægt er“.

Íslands­banki hefur gefið það út opin­ber­lega að hann leit­ist við að selja eignir í óskyldum rekstri enda sé „ekki stefna bank­ans að eiga slíkar eignir til lengri tíma“. Í útgef­inni stefnu Lands­bank­ans um sölu fulln­ustu­eigna segir að stefnt sé að því að selja þær „eins fljótt og unnt er að teknu til­liti til mark­aðs­að­stæðna“.

Samkeppniseftirlitið gerir ekki athugasemdir


Reitir er félag sem varð til utan um íslenska hluta starf­semi Landic Property, sem var risa­vaxið og ofur­skuld­sett fast­eigna­fé­lag með umfang­mikla starf­semi á Íslandi og erlendis. Félagið rataði í mikil vand­ræði eftir banka­hrun og í nóv­em­ber 2009 tóku íslenskir kröfu­hafar þess yfir inn­lendu starf­semi þess og breyttu nafni félags­ins í Reiti. Þeir voru ofan­greindir bankar.

Til að þetta væri hægt þá þurfti Sam­keppn­is­eft­ir­litið að veita und­an­þágu frá sam­keppn­is­lögum. Sú und­an­þága var veitt með ýmsum skil­yrðum. Það eru því fimm ár síðan að Reitir lentu í höndum bank­anna. Allar götur síðan hefur staðið yfir end­ur­skipu­lagn­ing og síðar end­ur­fjár­mögn­un­ar­ferli sem miðar að því að setja félagið á markað.

Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, segir að stofn­unin hafi vitað af þátt­töku bank­anna í hluta­fjár­aukn­ing­unni hjá Reitum og að hún hafi ekki séð ástæðu til þess að gera athuga­semd við hana.

Eftir hluta­fjár­aukn­ing­una eiga við­skipta­bank­arnir þrír enn sam­an­lagt 56,2 pró­sent hlut í Reitum. Eigna­bjarg á 29,5 pró­sent, Lands­bank­inn á 21,9 pró­sent og Íslands­banki 4,8 pró­sent.

Skráning í apríl


Sömu líf­eyr­is­sjóðir og tóku þátt í hluta­fjár­aukn­ingu Reita keyptu 25 millj­arða króna skulda­bréfa­flokk­inn sem félagið gaf sam­hliða út. Íslands­banki lán­aði síðan félag­inu 26 millj­arða króna verð­tryggt til 30 ára.

Í kjöl­far þess að búið er að ljúka end­ur­fjár­mögn­un­inni stefnir stjórn Reita að því að skrá hluta­bréf og skulda­bréfa­flokk Reita í Kauphöll Íslands í apríl 2015. Fyr­ir­tækja­ráð­gjöf Arion banka, stærsta ein­staka eig­anda Reita, mun hafa umsjón með skrán­ing­unni. Þegar af henni verður má ætla að bank­arnir selji hluta af eign­ar­hlutum sínum í Reitum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár