Íslendingar horfa 38 prósent minna á sjónvarp en árið 2008

Áhorf lands­manna á íslenskar sjón­varps­stöðvar hefur dreg­ist saman um 38 pró­sent frá árinu 2008. Þegar horft er á áhorf þeirra sem eru á aldr­inum 12 til 49 ára er sam­drátt­ur­inn enn meiri, eða 46 pró­sent. Þetta er hægt að sjá út úr fjöl­miðla­mæl­ingum Capacent sem aðgengi­legar eru á vefnum. Um er að ræða með­al­fjölda mín­útna sem hver ein­stak­lingur sem mæl­ing­arnar ná til horfir á sjón­varp.

Með­al­fjöldi mín­útna sem hver ein­stak­lingur horfir á sjón­varp

|

Create infographics

Áhorf á RÚV dregst mikið saman

Kjarninn tók saman áhorf á sjón­varp í nóv­em­ber árin 2008, 2010, 2013 og 2014. Í sam­an­tekt­inni kemur í ljós að í nóv­em­ber 2008 horfði hver ein­stak­lingur á aldr­inum 12-80 ára á RÚV að með­al­tali í 537,5 mín­útur á viku, eða tæpa níu klukku­tíma. Hlut­deild RÚV í heild­ar­á­horfi á íslensku sjón­varps­stöðv­arnar var á þeim tíma um 46 pró­sent. Tveimur árum síðar, í nóv­em­ber 2010, horfði hver Íslend­ingur í þessum ald­urs­hópi á RÚV í 495,4 mín­útur, og með­al­á­horfið því dalað um átta pró­sent.


Í nóv­em­ber í fyrra var með­al­á­horfið komið niður í 442 mín­útur, sem er um ell­efu pró­sentum minna en það var í sama mán­uði árið 2010. Í ár náði það síðan nýjum lægðum þegar með­al­á­horfið var 382,5 mín­útur, um sex klukku­tíma og 23 mín­útur, á viku. Það er 13,5 pró­sentum minna en áhorfið var í nóv­em­ber í fyrra og 29 pró­sent minna en það var í nóv­em­ber 2008.
Sam­drátt­ur­inn er enn meiri þegar horft er ein­vörð­ungu á yngri áhorf­endur, á aldr­inum 12 til 49 ára. Þá hefur áhorf á RÚV dreg­ist saman um 35 pró­sent á síð­ustu sex árum. Á síð­ast­liðnu ári hefur áhorfið dreg­ist saman um 13,2 pró­sent í þessum ald­urs­hópi.

Stöð 2 og SkjárEinn bæta við sig á milli ára


Stærsta sjón­varps­stöðin sem er í áskrift, Stöð 2, hefur líka upp­lifað tölu­verðan sam­drátt í áhorfi, eða um 35 pró­sent í ald­urs­hópnum 12 til 80 ára á síð­ustu sex árum. Árið 2008 var staða Stöð 2 þannig að meira með­al­á­horf hvers ein­stak­lings undir 50 ára var hærra en það var á meðal allra ald­urs­hópa. Það hefur breyst tölu­vert enda hefur áhorf í ald­urs­hopnum 12 til 49 ára nán­ast helm­ing­ast á þessum sex árum, eða um 46 pró­sent.

Athygli vekur hins vegar að Stöð 2 hefur bætt við sig áhorfi á milli 2013 og 2014 þrátt fyrir að færri horfi yfir­höfuð á sjón­varp. Alls hefur áhorfið þar í ald­urs­hópnum 12 til 80 ára auk­ist um níu pró­sent. Áhorfið hjá fólki undir fimm­tugu hefur hins vegar nán­ast staðið í stað.


Áhorf á SkjáEinn, næst stærstu áskrift­ar­stöð lands­ins, hefur einnig dreg­ist mikið saman á tíma­bil­inu. Sá sam­dráttur er hins vegar ekki sam­bæri­legur við hinar stöðv­arnar þar sem SkjárEinn breytt­ist úr frí­stöð í áskrift­ar­stöð í nóv­em­ber 2009. Ef horft er á breyt­ingu á áhorfi á SkjáEinn á milli nóv­em­ber­mán­aðar 2013 og 2014 kemur í ljós að áhorf jókst um 13,2 pró­sent í ald­urs­hópnum 12 til 80 ára. Hjá áhorf­endum undir 50 ára jókst áhorfið um tæp 19 pró­sent. Vert er að taka fram að hlut­deild Skjá­sEins í heild­ar­á­horfi í nóv­em­ber­mán­uði 2014 var 6,9 pró­sent á meða að hlut­deild RÚV var tæp 53 pró­sent og Stöðvar 2 rúm 27 pró­sent.

Kjarninn greindi frá því í byrjun októ­ber að áhorf á frétta­tíma sjón­varps­stöðv­anna hefði dreg­ist mikið saman frá árinu 2008. Sá sam­dráttur virð­ist vera í sam­ræmi við minnk­andi sjón­varps­á­horf lands­manna, sér­stak­lega þeirra sem yngri eru.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár