Kvikmyndatökumaður ISIS er mögulega ekki Íslendingur

Það er mögu­legt að Abu Hamza, sem flúði úr röðum ISIS-sam­tak­anna og veitti frétta­rit­ara The Economist í mið­aust­ur­löndum við­tal um inn­viði sam­tak­anna, hafi ekki farið rétt með þjóð­erni kvik­mynda­gerð­ar­manns­ins sem hann sagði að hefði gengið til liðs við sam­tökin og væri að búa til mynd­bönd fyrir þau.

Í blogg­færslu eftir frétta­rit­ar­ann, Söruh Birke, sem birt­ist í fyrra­dag á heima­síðu New York Review of Books, var sagt að kvik­mynda­gerð­ar­mað­ur­inn væri íslenskur og að hann væri ástæðan fyrir því að mynd­bönd sem ISIS-sam­tökin nota til að laða að nýja fylg­is­menn og áhorf­endur í Vest­rænum ríkjum væru orðin fag­mann­lega unnin.

Greint var frá færsl­unni í íslenskum fjöl­miðlum, meðal ann­ars Kjarn­anum.

Í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um full­yrð­ingar Abu Hamza segir Sarah Birke að það sé mögu­legt að Hamza hafi gert mis­tök þegar hann sagði mann­inn vera af íslensku þjóð­erni. Upp­lýs­ing­arnar hafi verið hafðar eftir honum en ekki leitað ann­arrar stað­fest­ingar.

[caption id="attachment_14071" align="alignnone" width="602"] ISIS-sam­tökin hafa vakið á sér mikla athygli, og valdi óhug, með því að setja mynd­bönd af liðs­mönnum sínum vera að afhöfða vest­ræna gísla á netið.[/caption]

Utanríkisráðuneytið veit ekki um neinn


ISIS stendur fyrir íslamskt ríki Íraks í Sýrlandi og sam­tökin voru upp­haf­lega hluti af Al Kaída. Þau klufu sig síðar frá og þykja mun rót­tæk­ari en Al Kaída. ISIS-sam­tökin hafa náð undir sig stórum svæðum í Írak og Sýrlandi og berj­ast hat­ram­lega gegn þar­lendum stjórn­völdum. Fjöl­margir Evr­ópu­búar hafa gengið til liðs við sam­tökin und­an­farin miss­eri. Þau hafa vakið á sér mikla athygli, og valdi óhug, með því að setja mynd­bönd af liðs­mönnum sínum vera að afhöfða vest­ræna gísla á netið.

Kjarninn greindi frá því í gær að utan­rík­is­ráðu­neyt­inu væri ekki kunn­ugt um að Íslend­ingur starfi með eða hafi starfað með SIS-sam­tök­unum með neinum hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár