Heiðar Már ætlar að höfða nýtt mál, vill hærri bætur frá Seðlabanka

Heiðar Már Guð­jóns­son, eig­andi fjár­fest­inga­fé­lags­ins Ursus, hefur dregið til baka mál sem hann höfð­aði í sumar gegn Eigna­safni Seðla­banka Íslands og Seðla­banka Íslands. Heiðar Már höfð­aði málið vegna meints tjóns sem hann telur sig hafa orðið fyrir vegna sölu­ferli Sjóvár, en hann telur að ESÍ og Seðla­bank­inn hafi ekki staðið við samn­ing um sölu á trygg­inga­fé­lag­inu til hóps sem hann leiddi árið 2010. Heiðar Már fór fram á rúm­lega 1,4 millj­arða króna ásamt vöxtum í bætur. Hann ætlar að hækka kröf­una um hálfan millj­arð króna. Krafan verður því um 1,9 millj­arðar króna.

[quote font="0" align="right"]Nýtt mál með hærri kröfu verður höfðað þegar í stað og hér­aðs­dómur hefur fellt málið niður,“ segir Heiðar Már.[/quote]

Heiðar Már stað­festir þetta við Kjarnann en segir að nýtt mál verði höfðað. „Málið er dregið til baka í því skyni að hækka fjár­hæð kröfu sem Ursus gerir í mál­inu á hendur ESÍ og SÍ. Nýtt mál með hærri kröfu verður höfðað þegar í stað og hér­aðs­dómur hefur fellt málið niður,“ segir Heiðar Már.

Komið var í veg fyrir að Heiðar Már fengi að leiða hóp til að kaupa Sjóvá árið 2010 vegna rann­sóknar gjald­eyr­is­eft­ir­lits Seðla­bank­ans áá skulda­bréfa­út­gáfu félags Heiðars sem grunur lék á um að færu í bága við reglur Seðla­bank­ans um gjald­eyr­is­mál. Málinu var síðar vísað til emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara sem tók ákvörðun um að hætta rann­sókn þess í febr­úar 2012. Rík­is­sak­sókn­ari stað­festi síðar ákvörðun sér­staks sak­sókn­ara.

Heiðar Már til­kynnti í kjöl­farið að hann hefði falið lög­mönnum sínum að und­ir­búa skaða­bóta­mál á hendur Seðla­bank­anum vegna þess fjár­hags­lega tjóns sem rann­sóknin hefði valdið honum.

Már sagður hafa þrýst á að Heiðar Már yrði ekki með

Trygg­inga­fé­lagið Sjóvá fór illa út úr hrun­inu. Í maí 2009 ákvað íslenska ríkið að koma inn í félagið. Vátrygg­inga­rekstur Sjóvár var svo „seldur“ inn í nýtt félag, Sjóvá-almennar trygg­ingar ehf., þann 30. sept­em­ber 2009 .

Framlag rík­is­ins varð á end­anum 11,6 millj­arðar króna, sem voru greiddar með kröfum á aðra sem ríkið átti. Auk þess lögðu Glitnir og Íslands­banki til um fimm millj­arða króna svo nýja félagið yrði starf­hæft. Í kjöl­farið var nýja Sjóvá sett í sölu­ferli til að reyna að ná með­gjöf­inni til baka.

Sjóvá var aug­lýst til sölu í jan­úar 2010. Fjár­festa­hópur sem leiddur var af Heiðari Má Guð­jóns­syni átti hæsta til­boðið og hóf samn­inga­við­ræður við Seðla­banka Íslands, sem hélt á hlut rík­is­ins, og Íslands­banka um kaupin.

Auk Heiðars Más stóðu að til­boð­inu meðal ann­ars Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn, Stefnir, Ársæll Valfells og systk­inin Guð­mundur og Berglind Jónsbörn, kennd við Sjóla­skip í Hafn­ar­firði. Eitthvað varð­andi til­boðið og hóp­inn sem að því stóð var ekki nægi­lega traust að mati Seðla­bank­ans.

Ástæðan var athugun á við­skiptum Heiðars Más með aflandskrónur. DV greindi frá því á sínum tíma að Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri hefði setti þrýst­ing á að Heiðar Már hyrfi úr hópnum og á fundi með full­trúum Seðla­bank­ans hafi verið lögð fram gögn um við­skipti hans með aflandskrónur og honum bent á að þar til bær rann­sókn­ar­yf­ir­völd kynnu að hafa áhuga á þeim við­skiptum.

Már hafnar því að hafa staðið í vegi Heiðars Más

Már hafn­aði þessu í aðsendri grein í Við­skipta­blað­inu tveimur árum síðar. Þar seg­ist hann hafa bundið vonir við að Heiðar Már gæti leitt hóp fjár­festa í kaupum á stórum hlut í Sjóvá og að hann yrði á end­anum for­stjóri félags­ins. Framkoma og við­mót lög­manna Heiðars Más á fundi þar sem rætt var um söl­una hafi hins vegar orðið til þess að draga úr þeim vonum seðla­banka­stjór­ans.

[caption id="attachment_14100" align="alignnone" width="640"] Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri sagð­ist hafa bent á það á fund­inum að mál félags Heiðars Más hafi á þessum tíma verið til með­ferðar hjá gjald­eyr­is­eft­ir­liti bank­ans og að salan á Sjóvá væri háð nið­ur­stöðu þess. Már neit­aði því algjör­lega að hafa hótað að senda mál Heiðars Más til lög­reglu, enda hefði hann ekki haft neitt vald til þess.[/caption]

Már sagð­ist hafa bent á það á fund­inum að mál félags Heiðars Más hafi á þessum tíma verið til með­ferðar hjá gjald­eyr­is­eft­ir­liti bank­ans og að salan á Sjóvá væri háð nið­ur­stöðu þess. Már neit­aði því algjör­lega að hafa hótað að senda mál Heiðars Más til lög­reglu, enda hefði hann ekki haft neitt vald til þess.

Aðrir keyptu Sjóvá og skráðu á markað

Hópurinn sagði sig frá ferl­inu áður en nið­ur­staða gjald­eyr­is­eft­ir­lits­ins lá fyrir og þar með áður en Fjár­mála­eft­ir­lið gat skilað afstöðu sinni um hæfi kaup­enda­hóps­ins til að eiga trygg­inga­fé­lag. Það gerð­ist í nóv­em­ber 2010, um ell­efu mán­uðum eftir að sölu­ferlið hófst. Sjóvá var því áfram til sölu.

Í lok júlí 2011 var síðan til­kynnt um að hópur fjár­festa hefði keypt rúm­lega helm­ings­hlut í Sjóvá. Hópurinn hafði verið settur saman af Stefni, eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæki í eigu Arion banka, og keypti hlut­inn í nafni félags sem heitir SF1 slhf. Stærstu eig­endur þess eru líf­eyr­is­sjóðir, félag í eigu Síld­ar­vinnsl­unnar (sem er að hluta til í eigu Samherja), félag í eigu Stein­unnar Jóns­dóttur, félag í eigu Ernu Gísla­dóttur, félag í eigu Tómasar Krist­jáns­sonar og Finns Reyrs Stef­áns­sonar (eig­in­manns Stein­unnar Jóns­dóttur) og félag í eigu Jóns Diðriks Jóns­sonar. Hópurinn fékk auk þess for­kaups­rétt á um 20 pró­senta hlut til við­bótar og nýtti sér hann skömmu síðar. Hann átti því 73 pró­senta hlut í Sjóvá í lok árs 2012. Afgang­ur­inn var í eigu rík­is­ins, þrota­bús Glitnis og Íslands­banka.

Í apríl 2014 voru hluta­bréf í Sjóvá svo skrá í Kauphöll Íslands. Mark­aðsvirði félags­ins miðað við gengi bréfa þess í dag er um 20,5 millj­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár