Utanríkisráðuneytinu ekki kunnugt um Íslending sem starfi fyrir ISIS

Utan­rík­is­ráðu­neyti Íslands er ekki kunn­ugt um að Íslend­ingar starfi með eða hafi starfað með ISIS-sam­tök­unum með neinum hætti. Þetta segir Urður Gunn­ars­dóttir, fjöl­miðla­full­trúi ráðu­neyt­is­ins.

Kjarninn greindi frá því í morgun að Sýr­lend­ing­ur­inn Abu Hamza, sem flúið hefur úr röðum ISIS-sam­tak­anna, sem einnig eru þekkt sem Íslamska Ríkið, hefði sagt frétta­rit­ara The Economist í Mið­aust­ur­löndum að íslenskur kvik­mynda­gerð­ar­maður hefði gengið til liðs við sam­tökin. Aðkoma hins íslenska kvik­mynda­gerð­ar­manns útskýri fag­mann­lega unnin mynd­bönd sem notuð séu til að laða nýja með­limi að ISIS-sam­tök­unum og til að vekja athygli á þeim á Vest­ur­löndum. Á meðal þeirra mynd­banda sem ISIS-sam­tökin hefur dreift eru mynbönd af afhöfð­unum vest­rænna manna sem sam­tökin hafa verið með í haldi.

Frétta­rit­ar­inn, Sarah Birke, greindi frá þessu í blogg­færslu sem birt­ist í gær á heima­síðu New York Review of Books.

[caption id="attachment_14087" align="alignnone" width="850"] Á meðal þeirra mynd­banda sem ISIS-sam­tökin hefur dreift eru mynbönd af afhöfð­unum vest­rænna manna sem sam­tökin hafa verið með í haldi.[/caption]

Ísland hefur stutt við aðgerðir gegn ISIS


ISIS stendur fyrir íslamskt ríki Íraks í Sýrlandi og sam­tökin voru upp­haf­lega hluti af Al Kaída. Þau klufu sig síðar frá og þykja mun rót­tæk­ari en Al Kaída. ISIS-sam­tökin hafa náð undir sig stórum svæðum í Írak og Sýrlandi og berj­ast hat­ram­lega gegn þar­lendum stjórn­völdum. Fjöl­margir Evr­ópu­búar hafa gengið til liðs við sam­tökin und­an­farin miss­eri. Þau hafa vakið á sér mikla athygli, og valdi óhug, með því að setja mynd­bönd af liðs­mönnum sínum vera að afhöfða vest­ræna gísla á netið.

Íslensk stjórn­völd hafa stutt við alþjóð­legar aðgerðir gegn ISIS, sem fel­ast meðal ann­ars í hern­að­ar­legum stuðn­ingi við írösk stjórn­völd, sporna við fjár­mögnun sam­tak­ana, að bregð­ast við áróð­urs­starf­semi þeirra, hafa eft­ir­lit með far­ands­víga­mönnum og stuðla að mann­úð­ar­að­stoð fyrir almenna borg­ara á þeim svæðum sem ISIS hefur herjað á.

[caption id="attachment_2799" align="alignnone" width="730"] Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra sótti fund utan­rík­is­ráð­herra­fund þeirra sex­tíu ríkja sem taka þátt í aðgerðum gegn ISIS í Brussel í síð­ustu viku.[/caption]

Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra sótti fund utan­rík­is­ráð­herra­fund þeirra sex­tíu ríkja sem taka þátt í aðgerðum gegn ISIS í Brussel í síð­ustu viku. Í til­kynn­ingu ráðu­neytis hans, sem send var út eftir fund­inn, sagði Gunnar Bragi: „Við styðjum aðgerðir gegn ISIS enda brýnt að bregð­ast grimmd­ar­verkum sam­tak­anna. Ísland leggur sín lóð á voga­skál­arnar með því að styðja neyðar- og manna­úð­ar­að­stoð fyrir óbreytta borg­ara í gegnum stofn­anir Sam­ein­uðu þjóð­anna“.

ISIS skráði lén á Íslandi


Í októ­ber síð­ast­liðnum var greint frá því að ISIS hefði skráð lén með .is end­ingum. Um var að ræða Khilafah.is, frétta­síðu sam­tak­anna. ISNIC, sem fer með léna­skrán­ingu .is léna, lok­aði lénum sem ISIS not­að­ist við þann 12. októ­ber á grund­velli reglna fyr­ir­tæk­is­ins um léna­skrán­ingu, þar sem fram kemur að rétt­hafa léns beri að ábyrgj­ast að notkun léns sé í sam­ræmi við íslensk lög.

Þetta var í fyrsta og eina skiptið sem ISNIC hefur lokað léni vegna inni­halds hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár